FH getur í fyrsta sinn komist í bikarúrslitin tvö ár í röð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. ágúst 2018 14:00 FH-ingar fagna bikarmeistaratitlinum 2010. vísir/daníel
FH-ingar hafa verið duglegir að bæta við sögu félagsins undanfarin ár með hverjum titlinum á fætur öðrum og í kvöld geta þeir afrekað það sem engu öðru FH-liði hefur tekist áður. FH-liðið heimsækir þá Stjörnuna í Garðabæ í undanúrslitum Mjólkursbikar karla í fótbolta. Leikurinn hefst klukkan 19.15 og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. FH hefur aldrei áður komist í bikarúrslitaleikinn tvö ár í röð. FH-ingar eru að flestra mati að reyna að bjarga tímabilinu með góðum árangri í bikarnum en Hafnarfjarðarliðið á ekki lengur raunhæfa möguleika á því að vinna Íslandsmeistaratitilinn. FH-liðið komst í bikarúrslitaleikinn í fyrra en tapaði þá 1-0 á móti ÍBV þar sem Gunnar Heiðar Þorvaldsson skoraði eina mark leiksins. FH er þriðja árið í röð í undanúrslitum bikarsins en tapaði fyrir ÍBV í þessum leik fyrir tveimur árum. FH-liðið hefur sex sinnum áður komist í bikaúrslitaleikinn en aldrei náð því að komast þangað tvö ár í röð. Mótherjar þeirra í kvöld úr Stjörunni komust tvö ár í röð í bikarúrslitaleikinn 2012 og 2013 en töpuðu báðum leikjunum. Það eru jafnframt einu bikarúrslitaleikir Garðarbæjarliðsins.Bikarúrslitaleikir FH og árið eftir: FH komst í bikarúrslitaleikinn 1972 (tap á móti ÍBV) en sumarið 1973 tapaði liðið á móti Keflavík í 8 liða úrslitunum. FH komst í bikarúrslitaleikinn 1991 (tap á móti Val) en sumarið 1992 tapaði liðið á móti Val í 8 liða úrslitunum. FH komst í bikarúrslitaleikinn 2003 (tap á móti ÍA) en sumarið 2004 tapaði liðið á móti KA í undanúrslitunum. FH komst í bikarúrslitaleikinn 2007 (sigur á Fjölni) en sumarið 2008 tapaði liðið á móti Keflavík í 16 liða úrslitunum. FH komst í bikarúrslitaleikinn 2010 (sigur á KR) en sumarið 2011 tapaði liðið á móti KR í 16 liða úrslitunum. FH komst í bikarúrslitaleikinn 2017 (tap á móti ÍBV) og getur endurtekið leikinn í kvöld.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Íslenski boltinn Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Íslenski boltinn Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Enski boltinn Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti Leitar að áhugamanni til að vinna Littler Sport Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ Íslenski boltinn Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Íslenski boltinn Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Enski boltinn „Stundum þarftu smá löðrung til að fara í fimmta gírinn“ Sport Fleiri fréttir Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Grindavík/Njarðvík - Þróttur R. 1-2 | Þróttur bikarmeistari í fyrsta sinn Valshjartað slær enn hjá hetju KR KR upp í Bestu deildina MSK Zilina að kaupa Dag Orra frá Val Þetta verður spennuleikur í Laugardalnum KR með örlögin í sínum höndum og sæti í Bestu deildinni í boði Töpin sitja ekki í leikmönnunum fyrir úrslitaleikinn Alþjóðadómarinn verður yfirþjálfari Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ „Við náðum einum af þessum stóru í ár“ „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Breiðablik - Afturelding 2-1 | Blikar bikarmeistarar í annað sinn Spenntur að sjá rauða hafið í stúkunni Meðvitaðir um pressuna „Hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik“ Ólafur skilur Magga en er ekki sammála „Vona að það verði enginn munur á vellinum“ Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Á ekki að snúast um karla gegn konum Pressa á Blikum og skipulagið gagnrýnt „Gríðarleg vonbrigði“ Víkinga en stór áfangi í augsýn Þessir dómarar dæma bikarúrslitin Dramatískt sigurmark lærisveina Heimis í umspilinu Sjá meira