Sport

Ótrúleg frumraun 14 mánuðum eftir heilauppskurð | Myndband

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Daniel Poncedeleon er kominn á stóra sviðið.
Daniel Poncedeleon er kominn á stóra sviðið. vísir/getty
Daniel Poncedeleon, 26 ára gamall hafnaboltakastari frá Bandaríkjunum, þreytti frumraun sína í MLB-deildinni, þeirri sterkustu í heimi, með St. Louis Cardinals á dögunum.

Poncedeleon átti magnaða frumraun en engum leikmanni Cincinatti Reds tókst að skora í þeim sjö lotum sem Poncedeleon kastaði. Hann átti stóran þátt í því að St. Louis vann leikinn, 1-0.

Hann er langt frá því fyrsti maðurinn til að standa sig svona vel í frumraun á stóra sviðinu en þetta var sérstakt því hann varð fyrir meiðslum í leik í neðri deildum bandaríska hafnaboltans fyrir fjórtán mánuðum síðan sem urðu til þess að hann fór í bráða heilauppskurð.

Poncedeleon kastaði á leikmann Iowa í maí á síðasta ári og fékk boltann beint aftur í höfuðið á ógnarhraða með þeim afleiðingum að hann steinrotaðist. Kastarinn var færður á sjúkrahús þar sem að hann lagðist undir hnífinn.

Hann var kominn aftur á ról í ágúst og fékk svo stóra tækifærið með Cardinals í fyrradag. Hann lét tækifærið svo sannarlega ekki renna sér úr greipum og þakkaði manninum á himnum fyrir allt saman.

„Ég kom ekki nálægt þessari sögu minni. Það er annar maður sem býr til áætlanir fyrir okkur og það er Guð,“ sagði Daniel Poncedeleon.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×