Mun verða við beiðni Braga um endurupptöku Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 8. júní 2018 19:14 Ásmundur Einar Daðason er velferðarráðherra. Vísir/Eyþór.
Velferðarráðuneytið mun verða við beiðni Braga Guðbrandssonar um endurupptöku á athugun ráðuneytisins á kvörtunum þriggja barnaverndarnefnda í garð Braga. Fullt tilefni sé til þess að verða við þeirri beiðni miðað við óháða úttekt á málinu sem kynnt var í dag.Þetta kemur fram á vef ráðuneytisins þar sem segir að farið verði vel yfir niðurstöður úttektarinnar og það skoðað hvernig bæta megi verklag og stjórnsýslu ráðuneytisins. Hefur ráðuneytið einnig óskað eftir fundi með höfundum úttektarinnar, Kjartani Bjarna Björgvinssyni, dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur, og Kristínu Benediktsdóttur, dósent við lagadeild Háskóla Íslands.Í henni kom fram að Velferðarráðuneytið gerði ekki fullnægjandi ráðstafanir með vísan til til yfirstjórnunar- og eftirlitsheimilda sinna til að upplýsa um það hvort og þá hvaða grundvöllur væri fyrir þeim ávirðingum sem bornar voru á Barnaverndarstofu og starfsmenn hennar og þá einkum forstjóra hennar, sem þá var Bragi en hann er nú í leyfi þar sem hann sækist eftir sæti í Barnaréttarnefnd Sameinuðu þjóðanna fyrir hönd Íslands. Upphaf málsins má rekja til umfjöllunar Stundarinnar um að Bragi Guðbrandsson hafi sem forstjóri Barnaverndarstofu hlutast til í máli sem var til meðferðar hjá barnaverndarnefnd á höfuðborgarsvæðinu.
Tengdar fréttir Velferðarráðuneytið brást ekki nógu vel við Niðurstaða óháðrar úttektar kynnt. 8. júní 2018 10:57 Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Erlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fleiri fréttir Aldursviðeigandi kynfræðsla þurfi að hefjast í leikskóla „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Tvö á einu rafmagnshlaupahjóli og flutt á bráðamóttöku „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Sjá meira