Óljóst hvernig bregðast skal við kynferðisbrotum innan grunnskólanna Hersir Aron Ólafsson skrifar 27. febrúar 2018 21:15
Skortur er á viðbragðsáætlunum og skýrum leiðbeiningum vegna kynferðisofbeldis í grunnskólum og frístundamiðstöðvum í Reykjavík. Þetta er meðal þess sem fram kom í máli ungmenna sem sátu fund með borgarstjóra í dag. Um var að ræða sautjánda árlega fundinn sem Reykjavíkurráð ungmenna sat með borgarstjóra. Á fundinum fóru ungmennin yfir atriði sem betur mega fara í samfélaginu og gerðu tillögur að úrbótum. Fyrsta erindi fundarins flutti fulltrúi Elínborg Una Einarsdóttir, fulltrúi úr ungmennaráði Breiðholts, en hún vakti athygli á því að samkvæmt síðustu PISA könnun eru einkunnir nemenda af erlendum uppruna hér á landi um 23 prósentustigum lægri en innfæddra. Þetta sé mun verri tölfræði en í nágrannalöndum. „Þau geta fengið mjög takmarkaða aðstoð heimafyrir vegna skorts á íslenskukunnáttu,“ segir Elínborg. Hún segir nauðsynlegt að bæta heimanámsaðstoð fyrir þessa nemendur og auka á sama tíma íslenskukennslu fyrir foreldra, þannig að þeir geti veitt aðstoðina heimafyrir. „Við viljum líka fá jafningja, ungmenni sem standa námslega vel að vígi til að koma og hjálpa við lærdómsaðstoðina og fá það metið til eininga. Það gæti þá líka verið jákvætt upp á félagsleg tengsl,“ segir Elínborg.Oft erfitt að vita hvað býr að baki A, B og C Þá var einkunnakerfi grunnskólanna sem tekið var upp fyrir fáeinum árum sérstaklega gagnrýnt, en þar er gefið A,B,C OG D í stað tölustafa. „Þetta var svo slæm innleiðing. Það var engin fræðsla og ég held að kennarar hafi margir strax ekki viljað þessar breytingar og ekki viljað læra inn á þetta,“ segir Ebba Kristín Yngvadóttir, fulltrúi í ungmennaráði Grafarvogs. Þannig sé mikill skortur á samræmi í því hvað það þýði nákvæmlega að fá t.d. A eða B. Fræða þurfi bæði starfsfólk og nemendur, svo kerfið virki almennilega. „Ég gæti verið með B og tvær villur í prófi, en svo er einhver annar með B og 20 villur,“ bendir Ebba á. Kynferðisofbeldi oft dulið innan veggja skólans Síðasta, en hugsanlega veigamesta erindið, sneri svo að kynferðislegu ofbeldi og áreitni innan grunnskóla og frístundamiðstöðva. „Það er mjög algengt að ungmenni undir átján ára lendi í þessu og það er svolítið dulið að þetta sé að gerast innan veggja skólans,“ segir Eydís Helga Viðarsdóttir, fulltrúi í ungmennaráði Árbæjar og Holta. Hún lagði fram tillögu um bættar áætlanir og verklag í málaflokknum ásamt Kristínu Láru Torfadóttur, sem einnig situr í ungmennaráðinu. Kristín Lára bendir á að fyrir nokkrum árum hafi ítarlegar viðbragðsáætlanir og leiðbeiningar vegna eineltis verið settar inn á vefi flestra skólastofnana. Sömu sögu sé hins vegar ekki að segja um kynferðisbrot. Mikilvægt sé að ungmenni séu upplýst um að sökin sé ekki þeirra og að gott sé að segja frá. „Það væri hægt að hafa áberandi viðbragðsáætlun gegn kynferðislegu ofbeldi og áreitni inni á heimasíðu skólans sem væri þá mjög sýnileg eins og eineltisáætlunin er,“ segir Kristín.
Mest lesið Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Innlent Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Innlent Klausturbleikjan fæst ekki lengur Innlent Agnes var meira en bara morðingi Innlent Paradís Kushner ógn við aðildarviðræður Albaníu og ESB Erlent Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Innlent Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Innlent Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent Nemendum mismunað með ósamræmi einkunna Innlent „Skráningum rignir inn“ Innlent Fleiri fréttir Koma eigi í veg fyrir skólaforðun barna með samræmdum viðbrögðum Flúði á Hopp-deilibíl eftir innbrot og ók yfir göngubrú Agnes var meira en bara morðingi Saka ríkisstjórnina um svik Nemendum mismunað með ósamræmi einkunna Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Lokuðu götu á Ólafsfirði vegna tilkynningar um skotvopn Fylgi Sjálfstæðisflokks ekki meira í sex ár „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ „Skráningum rignir inn“ Eftirspurn eftir kókaíni virðist aldrei hafa verið meiri Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Nýtt innviðafélag hlýtur nafnið Göng og brú Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Rannsókn í gangi á lengd dauðastríðsins Kókaínhaldlagningar komnar í 200 kíló á hálfu ári Tveimur sagt upp á Bifröst Enn eitt fíkniefnametið slegið og yfirvöld hvött til að afturkalla hvalveiðileyfi Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Hvalur háði hálftíma dauðastríð Hanna Katrín eigi að standa með starfsfólki Hvals – ekki gagnrýna það Sjá meira