Að bjarga mömmu og pabba frá stafrænum móðurmálsdauða Anton Karl Ingason skrifar 1. júní 2017 07:00 Íslendingar eru smám saman að átta sig á því að alþjóðleg framþróun í máltækni á að óbreyttu eftir að grafa undan stöðu íslenskunnar í daglegu lífi á næstu árum. Líklegt er að íslenska víki fyrir ensku í fjölmörgum hversdagslegum aðstæðum sem einkennast af nánu sambandi milli tölvutækni og mannlegs máls. Markmiðið með þessum pistli er að vekja athygli á því að máltækni er ekki síst málefni eldri borgara og benda á hvernig ungt fólk getur látið að sér kveða til að bregðast við vandanum.Hvers vegna er íslensk máltækni málefni eldri borgara? Þegar ný tækni nær mikilli útbreiðslu er vanalegt að yngri kynslóðir aðlagist henni fyrst. Þegar nýtt app á borð við Snapchat eða WhatsApp slær í gegn eru það ekki eldri borgarar sem eru fyrstir til að tileinka sér nýjungarnar. Svipað mun eflaust eiga við um vöxt máltækni á næstu árum, en kynslóðamunur gæti orðið enn afdráttarlausari á þessu sviði vegna þess að máltækni snýst um mannlegt mál og hæfni til að fara út fyrir þægindaramma móðurmálsins er líka tengd yngri kynslóðum. Ef máltækni á Íslandi verður fyrst og fremst innflutt ensk máltækni mun eldri borgari framtíðarinnar þurfa að tileinka sér nýstárlega tækni á talaðri ensku til að hafa aðgang að ýmiss konar hversdagslegri þjónustu. Sumir munu gera það en aðstæðurnar gætu orðið óþægilegar fyrir aðra og jafnvel útilokandi. Jafnvel þó að fólk geti bjargað sér á ensku við einhverjar aðstæður getur því þótt annarlegt og kvíðvænlegt að móðurmálið deyi á tilteknum sviðum daglegs lífs og við taki enskumælandi vélmenni. Afgreiðsla á skyndibitastað er starfsgrein sem mun trúlega hverfa á næstu 10-20 árum vegna þess að ódýr sjálfvirkni á örugglega eftir að ráða við það að taka niður pöntun á samloku og afgreiða hana. Máltækni verður án efa vanalegur þáttur í slíkri starfsemi. Viðskiptavinir munu geta lýst því í töluðu máli hvort þeir vilji papriku, jalapeno o.fl. með máltíðinni. Þó að það sé dýrt í upphafi að búa til máltæknilausn er ódýrt að nota hana og fyrirtæki sem reka samlokustaði munu örugglega hafa áhuga á að geta boðið upp á sömu þjónustu og áður án launakostnaðar. Án íslenskrar máltækni munu viðkomandi fyrirtæki þurfa að velja á milli þess að ráða íslenskumælandi afgreiðslufólk eða nota enska máltækni og skila meiri hagnaði. Slíkar ákvarðanir mun þurfa að taka víða og hagnaðarsjónarmið munu örugglega vega þungt í a.m.k. sumum tilvikum. Hvernig er hægt að bjarga pabba og mömmu? Ef þig grunar að foreldrar þínir muni ekki leggja í eða ráða við að tala við samlokuvélmenni á ensku í framtíðinni en vilt stuðla að því að þeir geti keypt sér skyndibita og nýtt sér hvers kyns aðra þjónustu sem mun reiða sig á máltækni innan skamms þá er rétti tíminn núna til að láta að sér kveða. Í fyrsta lagi er mikilvægt að halda áfram að byggja upp vitundarvakningu um að íslensk tunga þurfi máltækni til að geta lifað heilbrigðu lífi á næstu árum og áratugum. Það gerum við með því að taka þátt í umræðu um íslenska máltækni, hvort sem er á samfélagsmiðlum, í persónulegum samskiptum eða annars staðar. Í öðru lagi er nauðsynlegt að sum okkar taki beinan þátt í að byggja upp íslenska máltækni. Það er hægt að gera með því að afla sér sérfræðiþekkingar og hjálpa til við að þróa lausnir sem gera samlokuvélmennum kleift að tala íslensku. Þessu mætti fólk velta fyrir sér þegar það útskrifast úr framhaldsskóla. Háskólanám í íslenskri málfræði, tölvunarfræði eða skyldum greinum getur nefnilega verið góður kostur fyrir þá sem vilja bjarga mömmu og pabba frá stafrænum móðurmálsdauða.Höfundur er lektor í íslenskri málfræði og máltækni við HÍ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson Skoðun Skoðun Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff skrifar Sjá meira
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar