Fjögur systrapör í kvennaliði Vals Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. júní 2017 15:30 Fjögur systrapör í val. Talið frá vinstri: Margrét Lára, Elísa, Hrafnhildur, Hlíf, Nína, Katrín, Hlín og Málfríður Anna. Mynd/Eva Björk
Sannkölluð fjölskyldustemmning er á æfingum meistaraflokks kvenna hjá Val í sumar því í meistaraflokknum eru nú fjögur systrapör. Það þekkja flestir landsliðsysturnar Margrét Láru og Elísu Viðarsdóttur en það eru fleiri systir í Valsliðinu. Málfríður Anna og Hlín Eiríksdætur eru báðar komnar upp úr unglingastarfi Vals og sömu sögu er að segja af þeim Katrínu og Nínu Kolbrúnu Gylfadætrum. Fjórða systraparið eru síðan þær Hrafnhildur og Hlíf Hauksdætur. Hrafnhildur kom til Vals frá Selfossi fyrir þetta tímabil en Hlíf hefur spilað með Valsliðinu með hléum undanfarin áratug. Íþróttaljósmyndarinn Eva Björk Ægisdóttir tók mynd af öllum systrunum saman og vakti athygli á þessu á samfélagsmiðlum. Málfríður Anna og Hlín Eiríksdætur hafa spilað alla sjö leiki Vals í sumar eins og Margrét Lára Viðarsdóttir. Hrafnhildur og Hlíf Hauksdætur hafa spilað 6 af 7 leikjum og Katrín Gylfadóttir hefur komið við sögu í tveimur leikjum. Elísa Viðarsdóttir hefur ekki spilað með Val í sumar vegna hnémeiðsla sem hún varð fyrir í landsleik í apríl og Nína Kolbrún Gylfadóttir bíður eftir sínu fyrsta tækifæri með meistaraflokknum í sumar. Málfríður Anna og Hlín Eiríksdætur eru báðar að feta í fótspor móður sinnar, Guðrúnar Sæmundsdóttur. Þegar Guðrún lagði skóna á hilluna eftir sumarið 1996 búin að vinna fjölmarga titla með Valsliðinu þá hafði aðeins ein kona spilað fleiri landsleiki, bara tvær konur spilað fleiri leiki í efstu deild og einungis fjórar konur skorað fleiri mörk í efstu deild en hún. Guðrún spilaði alls 36 landsleiki og skoraði í þeim 4 mörk. Hún skoraði 68 mörk í 168 leikjum með Val í efstu deild.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira