Palli spennir bogann til hins ýtrasta með risatónleikum í Höllinni Stefán Þór Hjartarson skrifar 6. janúar 2017 10:15 Nákvæmlega engu verður til sparað í ljósum, hljóði og mynd. Mynd/Ólöf Erla „
Mig hefur dreymt um það í mörg ár að halda risatónleika í Laugardalshöllinni og nú lítur allt út fyrir að það sé að fara að gerast. Ég er kominn með virkilega gott teymi bak við mig, Sena Live ætlar að aðstoða mig við að koma þessu á svið,“ segir Páll Óskar Hjálmtýsson aðspurður um fregnir af risaviðburði tengdum honum sem eigi að vera á dagskránni á þessu ári. „Ætlunin er að halda risapopptónleika í Laugardalshöllinni 16. september. Okkur langar að gera tilraun – athuga hvort að það sé hægt að gera flókna, íburðarmikla popptónleika sem eru á pari við Beyoncé, Justin Bieber og Madonnu en með íslensku starfsfólki í hverju horni. Áhorfendur verða virkir þátttakendur í ljósasýningunni. Hver áhorfandi fær armband sem er beintengt við ljósaborðið og á ákveðnum augnablikum býr ljósamaðurinn til grafík með áhorfendunum. Þessi tækni er komin það langt að ef áhorfandi hreyfir sig kannski tvo metra til vinstri breytist liturinn í armbandinu kannski úr rauðu yfir í grænt. Við ætlum að prufukeyra þessa tækni, meðal annars. Einnig er hugmyndin að sviðið nái svo langt fram í sal að þegar ég stend fremst geti ég náð augnsambandi við fólkið í stúkunni.“Eru þið þegar byrjuð að undirbúa tónleikana? „Við erum allavega byrjuð núna að vinna alla forvinnu hvað varðar sviðsuppsetningu, ljósahönnun, vídeógrafík, búninga og í rauninni að teikna þetta upp. Þetta er svolítið flókið en ég trúi því að þetta sé hægt með íslensku starfsfólki í öllum stöðum. Þetta eru ekki venjulegir tónleikar – þetta er meira eins og leikhús og maður þarf að nálgast þetta eins og söngleik. Það þarf fyrst að gera handrit, og þetta handrit er tilbúið. Stella Rósinkranz mun leikstýra þessu með mér ásamt því að sjá um dansana. Nú er komið að því að okkur vantar tólf stráka og fjórar stelpur – við ætlum sem sagt að halda opin inntökupróf fyrir alla sem eru orðnir eldri en átján ára. Þetta verður haldið í Dansstúdíói World Class í Laugum núna 22. janúar – nú hlakka ég til að sjá hvernig Íslendingar dansa! Allir dansstílar og bara allir sem hafa áhuga á að taka þátt eru hjartanlega velkomnir.“Hvernig verður sniðið á þessu, verður þetta tónleikaröð eða einn stór viðburður og hvað ætlarðu að spila? „Eins og planið lítur út núna setjum við í gang eina kvöldtónleika 16. september en fyrr um daginn myndi ég hafa sérstaka barnatónleika, ætlaða börnum og fjölskyldufólki, þar sem miðaverðið yrði helmingi lægra. Ég held að það sé besta leiðin til að ná til þeirra sem eru einfaldlega of ungir til að mæta á fullorðinstónleikana um kvöldið – þetta er svo mikil dansmúsík að þetta verða djammtónleikar. Við ætlum að fara yfir allan ferilinn eins og hann leggur sig – frá 1993 og til dagsins í dag. Það kemur ný plata í september, þannig að í rauninni má segja að þetta séu í og með útgáfutónleikar. Ég get ábyrgst það að það fólk sem hefur ekki áhuga á tónlistinni minni hefði samt gaman af þessari upplifun og að sjá hversu langt er hægt að ganga og hversu mikið við kunnum hérna. Þetta hefði ekki verið hægt fyrir tíu árum – við þurfum að draga næstum allan tækjabúnað sem er til á landinu inn í Laugardalshöllina og byrja að keyra,“ segir Palli að lokum, að vonum ánægður með að sjá loksins hilla undir að draumur hans rætist.
Mest lesið Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Lífið Lady Gaga orðin mamma Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Fleiri fréttir Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Sjá meira