Vann 70 milljónir í Happdrætti Háskóla Íslands Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 12. desember 2017 21:23 Heildarupphæð útgreiddra vinninga á árinu hjá Happdrætti Háskóla Íslands nemur 1.372 milljónum króna. Vísir/Valgarður
Einn heppinn miðaeigandi hlaut 70 milljónir króna í milljónaveltu Happdrættis Háskóla Íslands en dregið var í kvöld. Um er að ræða hæsta vinning sem greiddur hefur verið út í íslensku happdrætti á þessu ári. Þá fékk annar heppinn miðaeigandi 25 milljónir króna í vinning á trompmiða og fjórir fengu 5 milljónir hver. Alls fengu 3.318 heppnir miðaeigendur vinning í desemberútdrætti Happdrættis Háskóla Íslands og nemur heildarupphæð vinninga um 209 milljónum króna, sem er hæsta upphæð sem greidd hefur verið út í sögu happdrættisins. „Sjötíu milljónir er hæsti vinningur sem við höfum greitt út á einn miða á þessu ári. Vinningurinn kemur á besta tíma - svona rétt fyrir jólin,” segir Úlfar Gauti Haraldsson, rekstrarstjóri flokkahappdrættis hjá HHÍ í tilkynningu. „Við erum himinlifandi með útdráttinn enda höfum við aldrei greitt út jafn háa upphæð í vinninga í einum mánuði og hvað þá til svona margra miðaeigenda.” Heildarupphæð útgreiddra vinninga á árinu hjá Happdrætti Háskóla Íslands nemur 1.372 milljónum króna sem skiptist á milli 39.260 heppinna miðaeigenda. Megin markmið happdrættisins er efling Háskóla Íslands með byggingu húsnæðis og að útvega góðan tækjakost. Um einn milljarður króna af tekjum happdrættisins rennur árlega til Háskóla Íslands.
Mest lesið Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik Sjá meira