Innlent

Rekinn úr Þjóðleikhúsinu vegna typpamyndar

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Þórir Sæmundsson var ein af stjörnum Þjóðleikhússins í fyrra.
Þórir Sæmundsson var ein af stjörnum Þjóðleikhússins í fyrra. Vísir/GVA

Þóri Sæmundssyni leikara var vikið frá störfum í Þjóðleikhúsinu eftir að hafa sent typpamynd af sér til samstarfskonu í leikhúsinu á menntaskólaaldri. Áður hafði leikhúsinu borist nafnlaus ábending um að fimmtán ára stúlka hefði fengið ósiðlegar myndir frá Þóri í skilaboðum á Twitter.



Á sjötta hundrað konur hafa skrifað undir yfirlýsingu þar sem krafist er að tekið verði á kynferðisofbeldi, áreitni og kynbundinni mismunun í sviðlista- og kvikmyndageiranum. Gerðu þær 62 sögur með dæmum um slíkt opinberar í yfirlýsingu í gær.



Þórir segir í ítarlegu viðtali við DV að honum hafi verið létt eftir að hafa lesið sögurnar. Ástæðan var sú að engin sagan hafi verið um hann.



Hann gengst við því að hafa sýnt af sér ósæmilega hegðun og áreitt konur. Hann segir það þó ekki vera ástæðuna fyrir því að hann var rekinn úr Þjóðleikhúsinu síðastliðið vor.



„Það hefði svo sem ekki komið mér á óvart þó ég hafi aldrei verið í neinni valdastöðu í leikhúsinu en þá hef ég eins og margir aðrir gerst sekir um ósæmilega hegðun og áreiti. Það tengist ekki leikhúsinu neitt,“ segir Þórir við DV.

Þórir Sæmundsson hefur notið vinsælda á Snapchat.

Nafnlaus ábending og typpamynd

Þórir var ein af stjörnum Þjóðleikhússins síðasta vetur. Var hann í aðalhlutverki í vinsælum sýningum á borð við Djöflaeyjunni og Hróa Hetti.



Skömmu eftir að sýningar á Djöflaeyjunni hófust barst nafnlaus ábending til Þjóðleikhússins samkvæmt heimildum Vísis. Þar var Þórir sakaður um að hafa sent stúlku í kringum fimmtán ára aldur ósiðlegar myndir af sér á Twitter. Sá sem sendi póstinn kynnti sig sem forráðamann stúlkunnar sem sagðist íhuga að leita með málið til kynferðisbrotadeildar lögreglu.



Þórir var kallaður á teppið í leikhúsinu en hann mun hafa gert lítið úr málinu. Þórir var samt látinn vita að hegðun á borð við þessa væri ekki liðin. Erfitt var fyrir stjórnendur að bregðast við málinu þar sem ábendingin var nafnlaus.



Liðu nokkrir mánuðir en þá barst önnur ábending og sú var ekki nafnlaus. Þórir hafði, samkvæmt heimildum Vísis, sent aukaleikara í Þjóðleikhúsinu á menntaskólaaldri, mynd af sér með stífan getnaðarlim. Við það var ekki búið og ljóst að segja þyrfti Þóri upp störfum.



Uppsögnin, mun samkvæmt heimildum Vísis, þó hafa verið á þeim forsendum að fleiri verkefni stæðu honum ekki til boða í leikhúsinu. Engum öðrum leikara var þó sagt upp á sama tíma.



Ástæðan fyrir því að honum var ekki sagt upp störfum vegna myndasendingarinnar mun hafa verið sú að þá hefði þurft að koma til áminning sem hefði kallað á annað brot til að hægt væri að segja honum upp.

Ari Matthíasson, þjóðleikshússtjóri.Vísir/Ernir

Segist ekkert vita um myndina eða stúlkuna

Þórir segir í viðtalinu við DV vera að vinna í sínum málum. Hann leggur áherslu á að hann þurfi að læra betur að umgangast samfélagsmiðla og stefnumótasíður þar sem ekki komi alltaf fram hve gamlir einstaklingarnir séu sem maður sé í samskiptum við.



„Mér finnst hrikalega erfitt að tala um þetta en eins og ég segi þá er ég að gangast við því sem ég hef gert og er að reyna að taka ábyrgð á því. Það er ekki eitthvað sem ég er bara að segjast gera. Ég er í ferli með sálfræðingi og í samtökum fyrir fíkla um þessa stjórnlausu hegðun og vinna bug á henni og breytast því auðvitað veit ég að þetta er rangt en eina vörnin mín er í rauninni að vilja ekki gangast við því að ég sé barnapervert,“ segir Þórir við DV.



Þá segist hann ekki vita hvaða mynd þetta sé sem átján ára stúlkan hafi fengið senda. Auk þess viti hann ekki hver stúlkan sé.



Ari Matthíasson Þjóðleikhússtjóri vildi ekki tjá sig um málið við Vísi.


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×