Fótbolti

Synd að þurfa að lemja glæsimenni eins og GSP

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Það er létt yfir Bisping og GSP.
Það er létt yfir Bisping og GSP. vísir/getty
Millivigtarmeistarinn Michael Bisping heldur áfram að skemmta andstæðingi sínum um helgina, Georges St-Pierre, með kostulegum ummælum.

Bisping er mikill ruslakjaftur og hefur gert allt til þess að æsa GSP upp. Það bara virkar ekki. St-Pierre finnst hann bara fyndinn og skellihlær að öllu sem hann segir. Að öðru leyti virðist vera nokkuð gott á milli þeirra.

„Georges er stórglæsilegur og það er synd að ég þurfi að lemja þetta fallega andlit,“ sagði Bisping er þeir voru saman í sjónvarpsþætti.

Í nýjasta þætti af Embedded er einnig fylgst með fleiri stjörnum UFC 217 sem meðal annas skella sér á hokkýleik með NY Rangers.

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×