Starfsmenn BUGL í gáma vegna rakaskemmda Hersir Aron Ólafsson og Hulda Hólmkelsdóttir skrifa 3. september 2017 12:30 Húsnæðismál barna- og unglingageðdeildar Landspítalans hafa verið í ólestri undanfarin misseri. Vísir/Vilhelm
Aðstöðu starfsmanna á BUGL verður að hluta til komið fyrir í gámum á meðan gert er við rakaskemmdir í eldra húsi deildarinnar. Búast má við talsverðu raski á starfseminni meðan á viðgerð stendur. Húsnæðismál barna- og unglingageðdeildar Landspítalans hafa verið í ólestri undanfarin misseri. Þannig hafa umfangsmiklar rakaskemmdir herjað á bæði eldri og nýrri byggingu deildarinnar við Dalbraut í Laugardal. Hafist var handa við úttekt og viðgerðir nýrra hússins fyrir um tveimur árum eftir að starfsmenn fundu fyrir óþægindum sem rakin voru til myglusvepps. Ingólfur Þórisson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Landspítalans, segir að verið sé að ljúka við þrif á nýrri byggingunni – en nú taki við umfangsmiklar lagfæringar á þeirri eldri. „Það er töluvert um rakaskemmdir í því sem við höfum þurft að bregðast við. Í því sambandi þá skoðuðum við þann möguleika að færa legudeild BUGL í St. Jósefsspítala í Hafnarfirði en eftir ítarlega skoðun á því var það ekki talið forsvaranlegt miðað við þann kostnað sem það hefði í för með sér. Þannig að við ætlum að leysa vandann á staðnum,“ segir IngólfurGæti dregið úr fjölda legurýma Málið verður þó ekki leyst innan dyra, heldur verður starfsfólki komið fyrir í færanlegu húsnæði. „Við ætlum að leigja skrifstofugáma og flytja hluta af skrifstofum tengdum legudeildinni út í gámana og færa okkur til í húsinu. Klæða húsið og skipta um glugga, endurnýja þak og laga innandyra. Það gerum við í áföngum.“ Ingólfur vonast til þess að húsnæðismálin verði komin í gott horf í kringum sumarlok eða haust næsta árs. Hins vegar muni framkvæmdirnar óhjákvæmilega hafa áhrif á umhverfi sjúklinga á BUGL. „Legudeildin þarf að flytja sig á milli álma og það kemur til með að draga eitthvað úr þeim fjölda legurýma sem við höfum.“
Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Máttu tæma lónið Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira