„Þykir leitt að því sé ranglega haldið fram að stuðningsmenn mínir hafi ekki áhuga á starfi þingsins“ Birgir Olgeirsson skrifar 7. september 2017 20:16 Ísak Einar Rúnarsson Aðsent
Ísak Einar Rúnarsson, sem er annar þeirra sem sækist eftir því að vera kjörinn formaður Sambands ungra Sjálfstæðismanna, hefur sent frá sér tilkynningu þar sem hann segist tilneyddur til að varpa ljósi á ákveðna þætti framboðsins vegna fjölmiðlaumfjöllunar undanfarna daga. Formannskosningin er lokahnykkurinn á Sambandsþingi SUS sem fer fram á Eskifirði og hefst á morgun. Tveir eru í framboði, annars vegar Ísak Einar og hins vegar Ingvar Smári Birgisson, en frá því var greint á vef Vísis fyrr í dag að stuðningsmenn Ingvars Smára saki stjórn Heimdalls, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, um að ganga erinda Ísaks Einars. Í tilkynningunni segir Ísak Einar umræðuna um sitt framboð hafa lotið að þrennu: Vali á þingfulltrúum Heimdallar, lögheimilisbreytingum og nú síðast ferðamáta framboðs hans á þingið, en Vísir sagði frá því í dag að Ísak Einar og kosningateymi hans ætli að bjóða sínum stuðningsmönnum í fjölmenna skemmtiferð austur á firði. Þeim sem stendur ferðin til boða hefur verið kynnt að allt verði í boði. Frí rúta, frí gisting og frítt áfengi.Segir kosningakerfi SUS hafa marga ágalla „Varðandi þingfulltrúa Heimdallar og annarra félaga er ég þeirrar skoðunar að enginn ætti að vera útilokaður frá þinginu og það ætti að vera opið öllum flokksbundnum Sjálfstæðismönnum á aldrinum 15-35 ára. Lög SUS gera hins vegar ráð fyrir því að hvert félag hafi ákveðinn fjölda fulltrúa en slíkt veldur því að færri komast að en vilja. Eftir að í ljós kom að einhverjir af núverandi trúnaðarmönnum flokksins fengu ekki sæti á þingið, t.a.m. Jóhannes Stefánsson varaþingmaður flokksins í Reykjavíkurkjördæmi, tók stjórn Heimdallar listann til endurskoðunar og lagði til við stjórn SUS að Jóhannesi og fleirum yrði úthlutað sæti. Þeirri tillögu hafnaði stjórn SUS á fundi fyrr í vikunni,“ segir Ísak. Hann segir lögheimilisbreytingar í aðdraganda þingsins á Eskifirði hafa verið fréttaefni. „Þær einskorðast þó ekki við annað framboðið eða Heimdall í Reykjavík, heldur hafa þær átt sér stað í fleiri félögum og meðal stuðningsmanna beggja framboða. Fyrirkomulag kosninganna í SUS hefur því miður orðið til þess að stjórnir félaga eru oft á tíðum hliðhollar öðrum formannsframbjóðandanum og skipa á þingið í samræmi við það. Þess vegna virðast margir stuðningsmenn mínir og stuðningsmenn mótframbjóðandans telja ómögulegt að fá sæti á þingið frá Sjálfstæðisfélaginu í sínu bæjarfélagi og grípa því til þess ráðs að færa lögheimili sitt til að auka líkur á að fá sæti á þinginu.“ Hann segir ljóst að það kosningakerfi sem gildir innan SUS hafi marga ágalla og yrði það hans fyrsta verk, nái hann kjöri sem formaður SUS, að vinna að breytingum á fyrirkomulagi þeirra. „Það er jafnframt umhugsunarefni að mótframbjóðandi minn og stuðningsmenn hans sem hafa farið með öll völd innan stjórnar SUS síðastliðin átta ár, skuli aldrei hafa lagt til breytingar á kerfinu.“Áfengi haldið frá þeim yngstu Þeir sem fara í rútuna á morgun munu gista á Sauðárkróki yfir nóttina en hann segir rangt að farið verði á Egilsstaði daginn eftir. Förinni sé heitið beint á sambandsþingið á Eskifirði. Hann tekur einnig fram að framboð hans hafi gætt þess að halda áfengi frá þeim sem ekki hafa aldur til að neyta þess. Þeir sem yngstir eru munu þess vegna fara í sér rútu. Tilkynningu Ísaks má lesa í heild hér fyrir neðan:Undirritaður er í framboði til formennsku í Sambandi ungra sjálfstæðismanna (SUS). Töluverð átök hafa staðið yfir í aðdraganda sambandsþingsins sem haldið verður á Eskifirði nú um helgina. Hingað til hef ég ekki viljað draga þau átök fram í opinbera umræðu en vegna fjölmiðlaumfjöllunar síðastliðna daga þar sem kastljósinu hefur aðallega verið beint að mínu framboði sé ég mig tilneyddan til þess að varpa ljósi á ákveðna þætti. Umræðan hefur lotið að þrennu: Vali á þingfulltrúum Heimdallar, lögheimilisbreytingum og nú síðast ferðamáta framboðs míns á þingið.Varðandi þingfulltrúa Heimdallar og annarra félaga er ég þeirrar skoðunar að enginn ætti að vera útilokaður frá þinginu og það ætti að vera opið öllum flokksbundnum Sjálfstæðismönnum á aldrinum 15-35 ára. Lög SUS gera hins vegar ráð fyrir því að hvert félag hafi ákveðinn fjölda fulltrúa en slíkt veldur því að færri komast að en vilja. Eftir að í ljós kom að einhverjir af núverandi trúnaðarmönnum flokksins fengu ekki sæti á þingið, t.a.m. Jóhannes Stefánsson varaþingmaður flokksins í Reykjavíkurkjördæmi, tók stjórn Heimdallar listann til endurskoðunar og lagði til við stjórn SUS að Jóhannesi og fleirum yrði úthlutað sæti. Þeirri tillögu hafnaði stjórn SUS á fundi fyrr í vikunni. Lögheimilisbreytingar í aðdraganda þingsins á Eskifirði hafa verið fréttaefni. Þær einskorðast þó ekki við annað framboðið eða Heimdall í Reykjavík, heldur hafa þær átt sér stað í fleiri félögum og meðal stuðningsmanna beggja framboða. Fyrirkomulag kosninganna í SUS hefur því miður orðið til þess að stjórnir félaga eru oft á tíðum hliðhollar öðrum formannsframbjóðandanum og skipa á þingið í samræmi við það. Þess vegna virðast margir stuðningsmenn mínir og stuðningsmenn mótframbjóðandans telja ómögulegt að fá sæti á þingið frá Sjálfstæðisfélaginu í sínu bæjarfélagi og grípa því til þess ráðs að færa lögheimili sitt til að auka líkur á að fá sæti á þinginu. Fyrir mér er alveg ljóst að það kosningakerfi sem gildir innan SUS hefur marga ágalla og það verður fyrsta verk mitt sem formaður SUS, nái ég kjöri, að vinna að breytingum á fyrirkomulagi þeirra. Það er jafnframt umhugsunarefni að mótframbjóðandi minn og stuðningsmenn hans sem hafa farið með öll völd innan stjórnar SUS síðastliðin átta ár, skuli aldrei hafa lagt til breytingar á kerfinu. Nú síðast hefur ferðamáti stuðningsmanna minna á þingið komið til umræðu. Þá þykir mér rétt að leiðrétta rangfærslur sem komu fram í frétt Vísis um málið fyrr í dag. Raunin er sú að stuðningsmenn mínir munu flestir leggja af stað á þingið á föstudegi eftir vinnu með rútu. Þaðan verður keyrt yfir á Sauðárkrók þar sem gist verður yfir nóttina, enda er leiðin á Eskifjörð löng. Daginn eftir verður ekki farið á Egilsstaði líkt og kom fram í frétt Vísis, heldur verður farið beint á sambandsþingið á Eskifirði þar sem stuðningsmenn mínir taka þátt í dagskrá þingsins. Mér þykir leitt að því sé ranglega haldið fram að stuðningsmenn mínir hafi ekki áhuga á starfi þingsins, en lagt var upp með rútuferð til þess eins að halda kostnaði í lágmarki. Hins vegar hef ég heyrt af því að stuðningsmenn mótframbjóðenda míns muni margir koma með flugi á sunnudagsmorgninum, rétt fyrir kosningar.Að lokum er rétt að taka fram að framboð mitt hefur gætt þess í hvívetna að halda áfengi frá þeim sem hafa ekki aldur til að neyta þess. Þeir sem yngstir eru munu þess vegna fara í sér rútu. Í þessum töluðu orðum er ég á leið til Eskifjarðar og hlakka mikið til þingsins. Ég vona að fólk felli ekki áfellisdóma yfir þeim sem ekki geta tekið sér frí heldur þurfa að leggja af stað á þingið eftir vinnu eða skóla annað kvöld. Sjálfstæðisflokkurinn hefur alltaf sótt styrk sinn í fjöldann og ég er fullviss um að þingið verði bæði skemmtilegra, kraftmeira og áhugaverðara eftir því sem fleiri mæta. Ég hlakka til taka þátt í störfum þingsins með öllum þeim sem leggja leið sína þangað.Ísak Rúnarsson.
Tengdar fréttir Menntskælingum við Sund boðið í djammferð hringinn í kringum landið Ýmsar leiðir eru farnar til þess að tryggja sér formennsku hjá Sambandi ungra sjálfstæðismanna. 7. september 2017 15:00 „Leyndardómsfullu fólksflutningarnir“ hvorki flokknum né frambjóðendum til framdráttar Stjórn Heimdallar harmar það að aðeins helmingur ungra Sjálfstæðismanna í Reykjavík sem vilja sækja Sambandsþing SUS á Eskifirði um helgina fái aðalsæti. Breyta þurfi reglunum. 4. september 2017 15:31 Leyndardómsfullir fólksflutningar í aðdraganda formannskosninga Sjö ungir menn, sem allir bjuggu áður í öðrum bæjarfélögum, hafa flutt lögheimili sitt að Álftamýri 73 í Reykjavík í aðdraganda sambandsþings Sambands ungra sjálfstæðismanna, SUS, sem haldið verður helgina 8.-10. september. 1. september 2017 22:15 Mest lesið Dró til sín fé sem gjaldkeri framboðsins Innlent Repúblikanar unnu kjördæmastríðið Erlent Nýr bæjarstjóri fær rúmar 2,5 milljónir á mánuði Innlent Íslenskur ofurjeppi á leið í framleiðslu Innlent Með um 2,8 milljónir í laun sem bæjarstjóri Innlent Óvenjuleg fley undan ströndum Reykjavíkur Innlent Íbúi á höfuðborgarsvæðinu kærður fyrir að „misþyrma“ gæludýrinu sínu Innlent Ákvörðun innviðaráðherra beri vott um „ákveðið skeytingarleysi“ Innlent Segir Kúbu næsta á eftir Íran Erlent Mette-Marit á biðlista fyrir lungnaígræðslu Erlent Fleiri fréttir Saka stjórnvöld um að tefja endurreisn Grindavíkur Óvenjuleg fley undan ströndum Reykjavíkur Með um 2,8 milljónir í laun sem bæjarstjóri Kjarnorkuknúinn kafbátur í þjónustuheimsókn Ákvörðun innviðaráðherra beri vott um „ákveðið skeytingarleysi“ Íbúi á höfuðborgarsvæðinu kærður fyrir að „misþyrma“ gæludýrinu sínu Nýr bæjarstjóri fær rúmar 2,5 milljónir á mánuði Íslenskur ofurjeppi á leið í framleiðslu Dró til sín fé sem gjaldkeri framboðsins Reyndist fangi undir rafrænu eftirliti Hundruð sitja um störfin, íslenskur bíll og Hildur Guðna í beinni Segir ekkert eiga að koma í veg fyrir að Airbus noti Reykjavík Rannsaka líkamsárás gegn unglingsstúlku Pálmi fékk kröfum Bríetar vísað frá að mestu Mótmæli við Austurvöll Vill leysa flöskuhálsinn í raforkumálum Vestfjarða með lagabreytingu Hátt á þriðju milljón á mánuði Án ökuréttinda og óhæfur til aksturs þegar banaslysið varð Livio skylt að greiða Ingunni 25 milljónir Lækka bílastæðagjöld við Seljalandsfoss Mótmælendur í Skuggasundi fá ekki krónu Sættust um bikbreiðuna Búvörusamningar framlengdir um ár Ákærður fyrir manndráp af gáleysi eftir banaslys á Lækjargötu Of seint að Jónas fái að hvíla í friði Manndrápstilraun í bílakjallara á borði héraðssaksóknara Mótmæla fyrirhugaðri brottfararstöð „Ávallt komið skýrt fram“ að ekki sé um að ræða fasta búsetu „Auðvitað stendur valdaklíkan saman“ Þingmenn sem hætta og hagræðing í skötulíki Sjá meira
Menntskælingum við Sund boðið í djammferð hringinn í kringum landið Ýmsar leiðir eru farnar til þess að tryggja sér formennsku hjá Sambandi ungra sjálfstæðismanna. 7. september 2017 15:00
„Leyndardómsfullu fólksflutningarnir“ hvorki flokknum né frambjóðendum til framdráttar Stjórn Heimdallar harmar það að aðeins helmingur ungra Sjálfstæðismanna í Reykjavík sem vilja sækja Sambandsþing SUS á Eskifirði um helgina fái aðalsæti. Breyta þurfi reglunum. 4. september 2017 15:31
Leyndardómsfullir fólksflutningar í aðdraganda formannskosninga Sjö ungir menn, sem allir bjuggu áður í öðrum bæjarfélögum, hafa flutt lögheimili sitt að Álftamýri 73 í Reykjavík í aðdraganda sambandsþings Sambands ungra sjálfstæðismanna, SUS, sem haldið verður helgina 8.-10. september. 1. september 2017 22:15