Miklar sveiflur í borginni Jóhann K. Jóhannsson skrifar 30. ágúst 2017 21:00
Framsóknarflokkurinn og Björt framtíð næðu engum manni inn í borgarstjórn væri kosið í dag samkvæmt könnun sem Stöð 2, Vísir og Fréttablaðið birtu í dag. Samkvæmt henni er Sjálfstæðisflokkurinn með yfirburðastöðu í borginni en Samfylking næði aðeins tveimur mönnum inn í borgarstjórn. Samkvæmt niðurstöðu könnunarinnar fengi Sjálfstæðisflokkurinn 34,2 prósent atkvæða og er það næstum tvöfalt meira en Vinstri græn en þeir eru næst stærsti flokkurinn samkvæmt niðurstöðum. Samfylkingin er með 13,7 prósent, Píratar 12,4 prósent og Flokkur fólksins mælist með 7 prósent. Miðað við þessa niðurstöðu næðu Framsókn og flugvallarvinir og Björt framtíð engum manni inn í borgarstjórn. Miðað við þessa niðurstöðu væri kosið í dag fengi Flokkur fólksins einn mann inn í borgarstjórn, Píratar og Samfylking tvo, Sjálfstæðisflokkurinn sex, Viðreisn einn og Vinstri grænir þrjá. Hugmyndir hafa verið upp um að fjölga borgarfulltrúum úr fimmtán í tuttugu og þrjá og verði það gert er niðurstaðan á þessa leið. Flokkur fólksins fengi tvo borgarfulltrúa, Píratar og Samfylking þrjá, Sjálfstæðisflokkurinn níu, Viðreisn 1 og Vinstri grænir fimm. Hringt var í 1.063 kjósendur í Reykjavík samkvæmt slembiúrtaki dagana 28. og 29. ágúst. Af þeim náðist í 791 og skiptust svarendur jafnt eftir kyni og hlutfallslega eftir aldri. Svarhlutfallið var 74,4 prósent en alls tóku 46 prósent þeirra sem náðist í afstöðu. Þá sögðust tólf prósent ekki ætla kjósa eða skipa auðu og átján prósent voru ekki búin að gera upp hug sinn. Tuttugu og fjögur prósent þeirra sem haft var samband við vildu ekki svara spurningunni. Nánari upplýsingar um framkvæmd könnunarinnar má lesa í Fréttablaðinu.Sjálfstæðisflokkurinn leiðtogalaus Niðurstaða könnunarinnar er áhugaverð í ljósi þess að oddviti Sjálfstæðisflokksins, Halldór Halldórsson, tilkynnti í kvöldfréttum Stöðvar 2 um miðjan ágúst að hann muni ekki bjóða sig fram í komandi borgarstjórnarkosningum. Flokkurinn er því leiðtogalaus eins og staðan er í dag en stefnt er að leiðtogakjöri innan flokksins. Samkvæmt heimildum fréttastofu hafa Svanhildur Hólm Valsdóttir, aðstoðarkona Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra, Eyþór Arnalds, fyrrverandi oddviti Sjálfstæðisflokksins í Árborg, Páll Magnússon, alþingismaður, Borgar Þór Einarsson, aðstoðarmaður Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, utanríkisráðherra og Jón Karl Ólafsson, framkvæmdastjóri flugvallasviðs Isavia, verið nefnd sem álitlegt leiðtogaefni flokksins í borgarstjórnarkosningum næsta vor.Ákall á breytingar Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, segir fylgið sýna að borgarbúar leggi traust sitt á Flokk fólksins og segist hún ótrúlega þakklát fyrir þann mikla velvilja og vinsemd sem meðlimir flokksins finni fyrir. Hún segir ljóst að Reykvíkingar séu að kalla eftir breytingum. „Við setjum aðalmarkmiðin á húsnæðismálin og skólakerfið. Skólakerfið er eitt af því sem að mig langar virkilega að taka vel til í og svo samgöngurnar. Þetta eru þau málefni býst ég við sem að við eigum öll eftir að nálgast hvert á sinn hátt,“ segir Inga Sæland.Breytt niðurstaða þegar lagt verður á borð Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, segist ekki telja að flokkurinn sé að tapa borginni. Könnunin komi ekki skemmtilega út en þegar nær dragi að kosningum og íbúar sjái hver baráttumálin séu og Samfylkingin geti sýnt betur hverju hún hefur verið að vinna að á þessu kjörtímabili munu niðurstöðurnar vera aðrar. „Meirihlutinn er þarna með tæpan meirihluta. Við tökum það til okkar. Við höfum verið dugleg að vinna. Við höfum gert stórátak í húsnæðisuppbygginu hér. Það hefur aldrei verið eins mikið byggt og núna. Við erum í stórsókn í skólamálum með menntastefnu og í velferðarmálum og fleiri málum. Við erum sannfærð um að þegar við leggjum það á borðið þegar kosningarnar nálgast þá munu Reykvíkingar styðja þennan meirihluta áfram,“ segir Heiða.
Sveitarstjórnarkosningar Mest lesið Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Innlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Erlent „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Erlent Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Innlent „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Innlent Fleiri fréttir Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúkrunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sinntu útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Dómurinn segi ekki alla söguna Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Sjá meira