Áfengiskaupafríðindi æðstu stofnana afnumin Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 18. ágúst 2017 15:33 Þær stofnanir sem njóta ívilnunar eru embætti forseta Íslands, Alþingi, ráðuneyti og embætti biskups Íslands vísir/ernir
Ríkisstjórn Íslands samþykkti í dag tillögu Benedikt Jóhannessonar, fjármála- og efnahagsráðherra, um að ívilnun með niðurfellingu áfengisgjalds gagnvart æðstu stofnunum ríkisins verði afnumin frá og með 1. október næstkomandi. Þær stofnanir sem njóta ívilnunar eru embætti forseta Íslands, Alþingi, ráðuneyti og embætti biskups Íslands. Heimildin hefur verið háð því að þær vörur sem keyptar eru séu notaðar til risnu á vegum stofnananna og að kaupin séu færð í bókhald og greidd af þeim. Þau rök sem lágu til grundvallar því að æðstu stofnunum ríkisins og þjóðkirkjunni yrðu veitt þessi fríðindi voru fyrst og fremst af fjárhagslegum toga, en áfengiskaupafríðindi fela í sér ívilnun sem jafna má til skattastyrks úr ríkissjóði. Markvisst hefur verið unnið að því á undanförnum árum að fækka skattastyrkjum. Meðal röksemda fyrir því eru að auka á almennt jafnræði, gagnsæi og festu í fjárstjórn. „Þessar reglur voru barn síns tíma og mér þótti við hæfi að færa þær til nútímans og gera kostnað vegna áfengiskaupa gagnsærri. Eitt á yfir alla að ganga í þessu sem öðru. Ekki er gert ráð fyrir að bæta ráðuneytunum þetta með auknu fjármagni.“ segir Benedikt Jóhannesson, fjármála- og efnahagsráðherra. Heildareftirgjöf áfengisgjalda til þeirra sem nutu niðurfellingar þeirra, annarra en erlendra sendiráða og alþjóðastofnana, sem gera það lögum samkvæmt, nam á síðastliðnu ári 10,5 milljónum króna.
Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Máttu tæma lónið Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira