Stofnanir hafa ekkert að athuga við fjársjóðsleit í Minden Garðar Örn Úlfarsson skrifar 28. júlí 2017 06:00 Kassi sem AMS vill skyggnast í er í sérstyrktu rými undir efsta þilfari Minden sem liggur á 2.242 metra dýpi um 120 mílur undan Íslandi. MYND/AMS
Landhelgisgæslan, Minjastofnun, Hafrannsóknastofnun og Heilbrigðiseftirlit Austurlands gera engar athugasemdir við að Umhverfisstofnun veiti leyfi til að opna flak þýska flutningaskipsins Minden. Skipið, sem áhöfnin sjálf sökkti í september 1939, liggur á ríflega 2,2 kílómetra dýpi um 120 mílur suðaustur af Íslandi. Eins og fram kom í Fréttablaðinu um miðjan júlí hefur breska fyrirtækið Advanced Marine Services (AMS) sagt Umhverfisstofnun að fyrirtækið hafi fundið kistu í póstherbergi Minden sem það telji innihalda ótiltekna verðmæta málma. Miðað við uppgefna stærð kistunnar var síðan sagt frá því Fréttablaðinu hvert verðmæti hennar gæti verði miðað við að innihaldið væri gull. Ítrekað skal hins vegar AMS hefur ekki gefið upp að það telji að gull sé í kistunni. AMS, sem Landhelgisgæslan vísaði frá flaki Minden í apríl, sótti í kjölfarið um starfsleyfi frá Umhverfisstofnun vegna þess að skera þarf gat á flakið til að ná kistunni út. Umhverfisstofnun leitaði í kjölfarið til nokkurra opinberra aðila og leitaði umsagna frá þeim vegna umsóknar AMS. Skilafrestur rann út 14. júlí en enn hafi ekki allir svarað. Meðal þeirra er utanríkisráðuneytið sem kveður málið í vinnslu. “SS Minden er skipsflak og telst þar með til fornleifa en þar sem það hefur ekki náð 100 ára aldri nýtur það ekki sjálfkrafa friðunar samkvæmt lögum um menningarminjar, segir Minjastofnun sem einnig vitnar til laga um landhelgi, efnahagslögsögu og landgrunn sem breytt var á þessu ári. „Brottnám muna sem eru fornleifafræðilegs og sögulegs eðlis af hafsbotni innan aðlæga beltisins án heimildar íslenskra stjórnvalda telst vera brot á lögum og reglum.“ Aðlæga beltið nái hins vegar 24 sjómílur frá landi. „Skipið SS Minden er 96 sjómílur utan þessarar línu og því gilda lög um menningarminjar ekki í þessu tilfelli,“ segir Minjastofnun. Landhelgisgæslan segir AMS nú hafa upplýst um eðli og umfang aðferðanna sem ráðast eigi í við Minden. „Fyrst svo er þá gerir Landhelgisgæslan engar athugasemdir við að umræddur framkvæmdaaðili hljóti leyfi,“ segir í umsögn stofnunarinnar sem þó leggur til að skipi AMS verði gert að tilkynna komu sína og lok aðgerða til Landhelgisgæslunnar. Jafnframt að skipið verið skráð í svokallaða ferilvöktun Landhelgisgæslunnar á meðan aðgerðin varir. Heilbrigðiseftirlit Austurlands segist ekki taka afstöðu til erindisins enda sé flakið langt undan landi „og ólíklegt að mengun frá aðgerðum berist inn í lögsögu sveitarfélaga innan vébanda HAUST,“ eins og segir í umsögninni. „Ekki verður séð af gögnum málsins að nein mengun hljótist af því. Engar lagnir liggja á þeim stað í skipinu sem ætlað er að fara inn í,“ bendir Hafrannsóknastofnun á og kveðst ekki gera athugasemdir.
Birtist í Fréttablaðinu Tengdar fréttir Sækja um að hefja aftur leit í flaki Minden Í skriflegu svari Umhverfisstofnunar kemur fram að starfsleyfisumsóknin barst stofnuninni 27. apríl síðastliðinn, rétt rúmri viku eftir að Seabed Construct sigldi úr höfn. 13. júlí 2017 11:02 Fjársjóðskistan í Minden gæti geymt jafnvirði 12 milljarða króna í gulli 15. júlí 2017 15:00 Vilja ná í fjársjóðskistu í póstherbergi Minden Félagið Advanced Marine Services vill starfsleyfi til að ná í kassa með góðmálmum sem það kveðst hafa fundið í póstherbergi þýska flutningaskipsins Minden sem liggur á 2.242 metra dýpi undan Íslandi. Umhverfisstofnun skoðar málið. 14. júlí 2017 06:15 Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Fleiri fréttir Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Sjá meira
Sækja um að hefja aftur leit í flaki Minden Í skriflegu svari Umhverfisstofnunar kemur fram að starfsleyfisumsóknin barst stofnuninni 27. apríl síðastliðinn, rétt rúmri viku eftir að Seabed Construct sigldi úr höfn. 13. júlí 2017 11:02
Vilja ná í fjársjóðskistu í póstherbergi Minden Félagið Advanced Marine Services vill starfsleyfi til að ná í kassa með góðmálmum sem það kveðst hafa fundið í póstherbergi þýska flutningaskipsins Minden sem liggur á 2.242 metra dýpi undan Íslandi. Umhverfisstofnun skoðar málið. 14. júlí 2017 06:15