Anja Andersen vill nú verða landsliðsþjálfari Dana Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. júlí 2017 16:30 Anja Andersen er litríkur karakter. Vísir/Getty
Besta handboltakona Dana frá upphafi er um leið einn litríkasta íþróttamaður Dana í sögunni. Það hefur aftur á móti lítið heyrst frá henni síðustu árin en nú vill Anja Andersen komast í alvöruna á nýjan leik. Anja Andersen var kosin besta handboltakona heims árið 1997 og eftir flottan feril þá reyndi hún fyrir sér í þjálfun hjá bæði Slagelse og FCK Handball. Hún yfirgaf Danmörku 2010 og gerðist þjálfari Oltchim Vâlcea í Rúmeníu en hætti eftir aðeins tvo mánuði. Síðan þá hefur Andersen haldið sig frá sviðsljósinu en nú vil hin 48 ára handboltagoðsögn fá nýtt tækifæri til að þjálfa. Hún segist hafa tekið til hjá sér og sé nú allt önnur persóna. Anja Andersen ræðir framtíð og fortíð í viðtali við Berlingske Tidende og þar segist hún meðal annars hafa verið að skoða hugmyndafræði þjálfara eins og Svíans Bengt Johansson og Bandaríkjamannsins Phil Jackson. Phil Jackson vann ellefu NBA-titla sem þjálfari og undir stjórn Bengt Johansson var sænska handboltalandsliðið eitt það allra besta í heimi í næstum því heilan áratug. Stærsta fréttin er þó að Anja Andersen vill fá tækifæri til að þjálfa danska landsliðið. „Ég held að það væri áhugavert að þjálfa danska landsliðið. Það væri mjög spennandi að taka að sér það verkefni,“ sagði Anja Andersen. Anja Andersen lék á sínum 133 landsleiki fyrir Dani og skoraði í þeim 726 mörk. Hún varð heimsmeistari (1997). Ólympíumeistari (1996) og Evrópumeistari (1994 og 1996) með danska landsliðinu á sínum tíma auk þess að vinna Meistaradeildina þrisvar sem leikmaður.
Handbolti Mest lesið Infantino hættir við allt saman Fótbolti „Ég er rasisti og ég gerði þetta viljandi“ Sport „Ég mun að minnsta kosti sofa vel í nótt“ Fótbolti JP Morgan veldur fjaðrafoki í annað sinn Fótbolti Konurnar fyrsta fórnarlambið eftir útspil Infantino Fótbolti Ný heimildarmynd um banaslys Ólympíumeistarans Sport Sagði nei við Love Island og vann svo silfur á Samveldisleikunum Sport Ancelotti viðurkennir mistök í drykkjarhléi gegn Noregi á HM Fótbolti Vinícius á förum? Fótbolti „Verður skrýtið að sjá hann standa hinu megin“ Fótbolti Fleiri fréttir Ungverjagrýlan hrjáir ekki U18 lið Íslands Yngsti Skipagötu-bróðirinn skoraði þrettán mörk í fyrsta leik á EM Fjórtán marka stórsigur í fyrsta leik Var sagt upp á stórafmælinu og er haldinn út í heim Besti handboltamaður heims fór í markið Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Sjá meira