Brexit efst á baugi í stefnuræðu drottningar Kjartan Kjartansson skrifar 21. júní 2017 13:31 Karl Bretaprins fylgdi móður sinni Elísabetu í þinghúsið í dag vegna veikinda Filipusar, hertoga af Edinborg. Vísir/AFP
Frumvörp sem tengjast brotthvarfi Breta úr Evrópusambandinu voru á meðal þess sem tilkynnt var um í stefnuræðu nýrrar ríkisstjórnar Bretlands sem Elísabet drottning las við þingsetningu í dag. Af tuttugu og fjórum frumvörpum sem minnihlutastjórn Theresu May forsætisráðherra ætlar að leggja áherslu á næstu tvö árin tengjast átta Brexit og áhrif útgöngunnar á atvinnuvegi landsins, að því er kemur fram í frétt breska ríkisútvarpsins BBC. Í þeim er kveðið á um að evrópsk lög verði breskum auk tillaga að nýjum lögum um fiskveiðar, viðskipti, tolla, fólksflutninga, landbúnað, kjarnorku og refsiaðgerðir. Hryggjarstykkið í Brexit-löggjöfinni er frumvarp sem afnemur lög um Evrópusambandsaðildina og bindur enda á lögsögu Evrópudómstólsins á Bretlandi. Samkvæmt því verða samevrópsku lögin að breskum en þingið mun síðan ákveða hvaða hlutum það vill halda og hverjum það vill sleppa. Aldagömul hefð er fyrir því að einvaldur Bretlands lesi stefnuræðu ríkisstjórna.
Brexit Mest lesið Losnar fyrr og fær ekki að koma aftur í 30 ár Innlent Íslendingur dæmdur í þrettán ára fangelsi í Rússlandi Erlent Kallar eftir náðun Kouranis og brottvísun strax á morgun Innlent Tvíburarnir fengu ár í viðbót Innlent Kallaði eftir aftöku heimilislauss fólks: „Drepa þau bara“ Erlent NATO og Rússland „augljóslega“ í stríði Erlent Tinder-svindlarinn handtekinn í Georgíu Erlent Veit um fjögur sjálfsvíg tengd gervigreind Innlent Ingvar aftur kominn í leyfi frá þingstörfum Innlent Loka fyrir heitt vatn vegna leka á Bústaðavegi Innlent Fleiri fréttir Conor McGregor dregur forsetaframboðið til baka NATO og Rússland „augljóslega“ í stríði Stórauka útgjöld til varnarmála Tinder-svindlarinn handtekinn í Georgíu Fordæma ummæli Musk á mótmælum gegn útlendingum Íslendingur dæmdur í þrettán ára fangelsi í Rússlandi Kallaði eftir aftöku heimilislauss fólks: „Drepa þau bara“ Svarar til saka fyrir morð á „blóðuga sunnudeginum“ AfD þrefalda fylgi sitt í fjölmennasta sambandslandinu Brueckner neitar að ræða við bresk lögregluyfirvöld Kalla rússneska sendiherrann á teppið Segir byssumanninn aðhyllast vinstri hugmyndafræði Fordæmir notkun fánans í þágu ótta og rasisma Trans kærasta Robinsons hafi verið „skelfingu lostin“ Lögreglumenn með brotnar tennur og harðorður Elon Musk Þrír horfnir ferðamenn í Færeyjum Rússnesk flygildi rufu lofthelgi NATO Drónaárás á eina stærstu olíuvinnslu Rússlands Skipar NATO-ríkjum að hætta að kaupa olíu af Rússum Á þriðja tug slasaðir eftir gassprengingu í Madríd Hundrað þúsund mótmæla hælisleitendum í Lundúnum „Ég hélt að hann yrði forstjóri“ Útnefnd forsætisráðherra Nepal fyrst kvenna Ekkja Kirk tjáir sig eftir morðið Öllum sem geri lítið úr morðinu „verði refsað“ Hefja frumkvæðisathugun á dauðsföllum tengdum bóluefnum Allsherjarþingið ályktar um palestínskt ríki NATO eflir varnir í austri Erna Solberg hættir Hinn 22 ára Tyler Robinson grunaður um morðið á Kirk Sjá meira