Aron Pálmars ungverskur meistari annað árið í röð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. maí 2017 17:37 Aron Pálmarsson og félagar fagna. Vísir/EPA
Aron Pálmarsson og félagar í MKB Veszprém tryggðu sér í kvöld ungverska meistaratitilinn í handbolta þrátt fyrir þriggja marka tap á móti MOL-Pick Szeged, 30-27, í seinni úrslitaleik liðanna um titilinn. Leikurinn í kvöld fór fram á heimavelli MOL-Pick Szeged en Veszprém mátti tapa leiknum með fimm mörkum. MKB Veszprém vann nefnilega fyrri leikinn með sex marka mun á heimavelli, 23-17, og þar með með 50-47 samanlagt. Aron Pálmarsson skoraði fimm mörk fyrir Veszprém-liðið í þessum leik þar af þrjú þeirra á mikilvægum tímapunktum á lokakafla leiksins. Í fyrri leiknum var Veszprém tveimur mörkum undir í hálfleik en vann seinni hálfleikinn 15-7. Í kvöld var MOL-Pick Szeged liðið einu marki yfir í hálfleik, 15-14, en Aron skoraði tvö mörk í fyrri hálfleiknum. Aron kom í 22-20 þegar 18 mínútur voru eftir og Veszprém var komið í frábæra stöðu.Szeged-menn gáfust þó ekki upp og skoruðu þrjú mökr í röð og komust aftur yfir. Aron minnkaði muninn í eitt mark, 26-25, þegar níu mínútur voru eftir og það mark kom á góðum tíma enda þurfti Veszprém þá virkilega að marki að halda. Szeged-menn komust þremur mörkum yfir, 29-26, en þá kom annað mikilvægt mark hjá Aroni sem minnkaði muninn í tvö mörk þegar rúmar fjórar mínútur voru eftir. Þetta er í 25. sinn sem Veszprém verður ungverskur meistari en liðið er að vinna titilinn tíunda árið í röð, hefur unnið deildina allar götur frá með 2007-08 tímabilinu. Aron er á sínu öðru tímabili með liðinu og var því að verða ungverskur meistari annað árið í röð. Hér fyrir neðan má sjá leikmenn fagna titlinum í kvöld.
Handbolti Mest lesið Mbappé með tvö og Frakkar áfram eftir leik sem seinkaði um tvo tíma Fótbolti Skildu eftir miða í búningsklefa eftir leik Fótbolti „Ekki oft sem við erum gripnir í bólinu“ Fótbolti Haaland og félagar fögnuðu sigri með víkingaróðri úti á velli Fótbolti Áhorfendur beðnir um að mæta ekki Fótbolti Wimbledon-meistari í fjögurra ára bann Sport Einum mánuði yngri en Eiður Smári Íslenski boltinn Manchester United fær landsvæði fyrir nýja leikvanginn Fótbolti „Hefðum við nýtt okkar færi væri ég ekki að fara heim með núll stig“ Fótbolti Uppgjörið: KR - ÍA 5-3 | Átta marka súpa á Meistaravöllum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Sjá meira