Raufarhólshellir greiðfær til að sýna ferðamönnum Kristján Már Unnarsson skrifar 24. maí 2017 20:15
Aðgengi að Raufarhólshelli í Þrengslunum hefur nú verið stórbætt enda er hann að fá nýtt hlutverk sem ferðamannastaður, þar sem seldur verður aðgangur með leiðsögn um einn stærsta helli Íslands. Í fréttum Stöðvar 2 var rætt við Hallgrím Kristinsson, framkvæmdastjóra Raufarhóls ehf. Það er um hálftíma akstur að hellinum úr Reykjavík en þar rís nú þjónustuhús þar sem hellafarar fá afhenta hjálma og ljós. Í dag var verið að þjálfa væntanlega leiðsögumenn en fyrirtækið Raufarhóll ehf. hefur tekið hellinn á leigu frá landeigendum í því skyni að bjóða upp á skipulagðar skoðunarferðir. Vandinn var hins vegar sá að vegna grjóturðar og stórgrýtis hefur verið erfitt að klöngrast um þennan 1.360 metra langa helli, þann lengsta á landinu utan Hallmundarhrauns. „Hér hefur fólk verið að slasa sig og detta í gegnum árin og margoft þurft að kalla á björgunarsveitir. En sem betur fer ekki alvarleg slys. En með þessu móti erum við að gera hann greiðfæran og gefa fólki aðgengi að hellinum, sem annars hefði átt í erfiðleikum með að koma hingað inn,” segir Hallgrímur. Inni í Raufarhólshelli. Hallgrímur Kristinsson sýnir fréttamanni göngupall.Stöð 2/Friðrik Þór Halldórsson.Það voru hins vegar kvikmyndagerðarmenn sem hófu stígagerðina við gerð bíómyndarinnar um Noah svo að þeir Russel Crowe og Anthony Hopkins færu sér ekki að voða. Stígurinn sem lagður var fyrir leikarana þótti góð fyrirmynd, grjót úr hellinum var notað til að hlaða greiðfæran göngustíg. En sumsstaðar var hreinlega ekki hægt að leggja stíga og þar var ákveðið að smíða palla úr járni, sem ryðgar að ákveðnu marki til samræmis við ryðrauðan lit, sem víða sést í hellisveggjum. „Þannig að þetta fellur ofboðslega vel hér inn. Það smitar ekki út frá sér. Og þessa palla er hægt að taka eftir tugi ára og allt verður eins og áður var.” Verið er að koma fyrir ljóskösturum til að ferðamenn njóti þess að sjá jarðmyndanir og litadýrð og er þess gætt að raflagnir og ljósabúnaður sjáist sem minnst, að sögn Hallgríms.Raufarhólshellir er við Þrengslaveg, skammt ofan Þorlákshafnar. Þar rís nú þjónustuhús með salernum og bílastæðið hefur verið stækkað.Stöð 2/Friðrik Þór Halldórsson.Hellirinn verður formlega opnaður á ný þann 1. júni en um helgina verður þar opið hús, eða raunar opinn hellir, og aðgangur ókeypis. Takmarkaður fjöldi kemst þó að um helgina og frá föstudegi verður hægt að skrá sig á heimasíðu hellisins, The Lava Tunnel. Aðgangseyrir fyrir fullorðna verður annars 4.900 krónur í sumar, lægra verð fyrir börn, en fer síðar í 6.400 krónur. Á bak við verkefnið standa fjárfestar sem flestir eru í ferðaþjónustu. En hve mikil er fjárfestingin? „Hún hleypur á mörghundruð milljónum króna,” svarar Hallgrímur.
Tengdar fréttir Björguðu þremur konum úr niðamyrkum helli Þrjár konur sátu klukkustundunum saman í niðamyrkri djúpt inni í Raufarhólshelli í Þrengslunum ofan við Þorlákshöfn í gærdag, uns björgunarsveitarmenn fundu þær um klukkan hálf átta í gærkvöldi og hjálpuðu þeim út. 27. ágúst 2014 07:29 Raufarhólshellir lokaður og læstur Almenningur fær ekki framar að koma inn í hellinn nema að greiða aðgangseyri. 9. janúar 2017 08:00 Um 150 Íslendingar fóru með hlutverk í Noah Alls unnu 220 manns að kvikmyndinni Noah, sem tekin var upp að hluta til hér á landi, og voru Íslendingar meira en helmingur þeirra. Um 150 Íslendingar fóru með misstór hlutverk í myndinni. Leigðar voru samtals 3.650 nætur á hótelherbergjum. Tökuliðið leigði þrjátíu jeppa, tíu sendibíla og 75 fólksbíla. 24. ágúst 2012 06:30 Ómetanlegir hraunhellar þegar verið stórskemmdir Frjáls umferð almennings og ferðaþjónustufyrirtækja hefur valdið óbætanlegum skaða á flestum merkustu hraunhellum landsins. Grípa þarf til heildarfriðlýsingar að mati samráðsnefndar og loka tugum hella án tafar. 15. maí 2013 07:00 Fannst meðvitundarlítill í Raufarhólshelli Mikill viðbúnaður var hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg fyrir hádegi. 4. september 2016 17:28 Mest lesið „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Erlent Ætla að brenna rusl og skapa orku Innlent Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Innlent Fleiri fréttir Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Sjá meira
Björguðu þremur konum úr niðamyrkum helli Þrjár konur sátu klukkustundunum saman í niðamyrkri djúpt inni í Raufarhólshelli í Þrengslunum ofan við Þorlákshöfn í gærdag, uns björgunarsveitarmenn fundu þær um klukkan hálf átta í gærkvöldi og hjálpuðu þeim út. 27. ágúst 2014 07:29
Raufarhólshellir lokaður og læstur Almenningur fær ekki framar að koma inn í hellinn nema að greiða aðgangseyri. 9. janúar 2017 08:00
Um 150 Íslendingar fóru með hlutverk í Noah Alls unnu 220 manns að kvikmyndinni Noah, sem tekin var upp að hluta til hér á landi, og voru Íslendingar meira en helmingur þeirra. Um 150 Íslendingar fóru með misstór hlutverk í myndinni. Leigðar voru samtals 3.650 nætur á hótelherbergjum. Tökuliðið leigði þrjátíu jeppa, tíu sendibíla og 75 fólksbíla. 24. ágúst 2012 06:30
Ómetanlegir hraunhellar þegar verið stórskemmdir Frjáls umferð almennings og ferðaþjónustufyrirtækja hefur valdið óbætanlegum skaða á flestum merkustu hraunhellum landsins. Grípa þarf til heildarfriðlýsingar að mati samráðsnefndar og loka tugum hella án tafar. 15. maí 2013 07:00
Fannst meðvitundarlítill í Raufarhólshelli Mikill viðbúnaður var hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg fyrir hádegi. 4. september 2016 17:28