Ljónin skrefi nær titlinum eftir sigur í uppgjöri toppliðanna Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 28. maí 2017 14:52 Alexander skoraði fimm mörk og var markahæstur í liði Löwen. vísir/getty
Rhein-Neckar Löwen steig stórt skref í átt að því að verja þýska meistaratitilinn í handbolta með 21-23 sigri á Flensburg í uppgjöri toppliðanna í dag. Ljónin eru nú með þriggja stiga forystu á Flensburg þegar þrjár umferðir eru eftir. Löwen á reyndar mjög erfiðan leik gegn Kiel í næstu umferð. Síðustu tveir leikirnir eru svo gegn Wetzlar og Melsungen. Leikurinn í Flens-Arena í dag var jafn og spennandi og aldrei munaði meira en þremur mörkum á liðunum. Löwen var tveimur mörkum yfir í hálfleik, 11-13, og skoraði svo fyrsta markið í seinni hálfleik. Flensburg svaraði með þremur mörkum í röð og eftir það héldust liðin í hendur. Ljónin voru samt alltaf skrefi á undan og Guðjón Valur Sigurðsson kom þeim tveimur mörkum yfir, 20-22, þegar fimm mínútur voru eftir. Kentin Mahé minnkaði muninn í eitt mark en Andy Schmid kláraði svo leikinn með frábæru marki rúmum 20 sekúndum fyrir leikslok. Lokatölur 21-23, Löwen í vil. Alexander Petersson var markahæstur í liði Löwen með fimm mörk. Guðjón Valur skoraði tvö mörk, bæði á lokakafla leiksins.
Handbolti Mest lesið Salah bað samherjana afsökunar Enski boltinn Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Enski boltinn Joshua kjálkabraut Paul Sport Dagskráin í dag: Enski boltinn í tíu klukkutíma Sport Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Enski boltinn Varði fjórar vítaspyrnur með brotna hendi Fótbolti Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Enski boltinn „Komum eins og aumingjar inn í þennan leik“ Körfubolti Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti „Jólasteikin mun bragðast betur í ljósi þessa sigurs“ Körfubolti Fleiri fréttir KA-menn fengu góða jólagjöf Flautumark hjá FH og ÍR með þeim í Höllina KA í undanúrslit á kostnað bikarmeistaranna Stærsti leikur ársins í Eyjum fer fram í kvöld „Er því miður kominn í jólafrí“ „Þetta var mjög skrítinn leikur“ Haukakonur í fjórða sætið KA/Þór - Valur 23-30 | Ótrúlegur viðsnúningur gestanna Ómar óstöðvandi og Magdeburg í undanúrslit Ómar Ingi fær meiri ábyrgð og tekur við kyndlinum af Aroni Ekkert stríð við Porto og einstakur Þorsteinn nítjándi maður Síðasta verkefni reyndist dýrt fyrir Sigvalda Teitur fer á EM sem hornamaður í stað Sigvalda Snorri kynnti EM-strákana okkar Hleyptu Þorsteini ekki heim og vilja ekki að hann fari á EM Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Geggjaðar Eyjakonur á toppinn Þorsteinn Leó að ná sér „langt á undan áætlun“ Birtu tölvupóst þar sem efast er um heilsu forseta IHF Valdi ekki eigin leikmann í landsliðið Halda Orra og Sporting engin bönd Viktor Gísli stóð vaktina er fullkomið gengi Börsunga hélt áfram Snorri kynnir EM-fara í vikunni Mega handvelja lið utan Evrópu inn í Meistaradeildina EM ekki í hættu Á hækjum á milli leikja og þoldi sífellt verri sársauka Uppgjörið: Haukar - Fram 25-27 | Meistararnir unnu toppliðið í naglbít „Fannst við bara lélegir í kvöld“ Botnliðið hrellti Aftureldingu og KA lék sér að eldinum Sjá meira