Ólafur með þrettán prósent skotnýtingu í tapi Kristianstad Tómas Þór Þórðarson skrifar 12. maí 2017 18:47 Fyrirliðinn Ólafur Guðmundsson átti ekki góðan leik í kvöld. vísir/getty
Svíþjóðarmeistarar Kristianstad töpuðu í kvöld öðrum leik liðsins á móti Ystads í einvígi liðanna í undanúrslitum sænsku úrvalsdeildarinnar í handbolta, 26-23. Staðan í rimmunni er nú 1-1 en Kristianstad, sem er langbesta liðið í deildinni, vann öruggan sigur á heimavelli sínum í fyrsta leik liðanna. Kristianstad var tveimur mörkum yfir í hálfleik, 14-12, en þegar staðan var 17-15 fyrir gestina í seinni hálfleik skoraði Ystads fimm mörk á móti einu og breytti stöðunni í 20-18. Eftir það litu heimamenn ekki um öxl og unnu sterkan sigur. Línumaðurinn ungi, Arnar Freyr Arnarsson, var markahæstur Íslendinganna þriggja hjá Kristianstad en hann skoraði þrjú mörk í þremur skotum. Gunnar Steinn Jónsson reyndi eitt skot en skoraði ekki mark í leiknum. Stórskyttan Ólafur Guðmundsson, sem skoraði eitt mark í síðasta leik, átti mjög erfitt uppdráttar í kvöld en hann skoraði aftur aðeins eitt mark. Að þessu sinni skaut hann átta sinnum á markið og skotnýtingin því aðeins þrettán prósent hjá Ólafi. Íslendingarnir þrír skoruðu samtals sex mörk í fyrsta leiknum og fjögur í kvöld en þremenningarnir eru því búnir að skora tíu mörk í fyrstu tveimur leikjum liðanna í undanúrslitaeinvíginu. Kristianstad og Ystads mætast þriðja sinni á heimavelli meistaranna á mánudaginn.
Handbolti Mest lesið Fann gamlan vin í leit sinni að nýju og breyttu lífi Körfubolti Bellingham talaði um sig í þriðju persónu eftir leik: Sjáðu sigurmarkið Fótbolti Eru að reyna að kaupa kærustuparið Enski boltinn Njarðvík yfirgefur Ljónagryfjuna og fær nýjan heimavöll afhentan í sumar Körfubolti Ten Hag: Ekkert leyndarmál að aðrir komu til greina en sá besti var nú þegar í starfinu Enski boltinn Frábær mörk og óvæntur stórsigur Rúmena á Úkraínumönnum Fótbolti Mcllroy missti sigur úr greipum sér og DeChambeau vann opna bandaríska Sport UEFA gerir allt til þess að rússneski fáninn sjáist ekki í dag Fótbolti Neffati um Íslandsævintýrið: Grófur fótbolti í íslensku deildinni Íslenski boltinn Norðurlandamethafinn útskrifuð með BS gráðu í læknisfræði Sport Fleiri fréttir Guðmundur framlengir: „Hefur lyft öllu á hærra plan“ Eyjamenn safna liði: Róbert snýr aftur til Eyja Grótta sækir liðsstyrk frá föllnum Selfyssingum Kári Kristján verður áfram með ÍBV: „Tek annað hókípókí með krökkunum“ Sakaður um tilraun til nauðgunar en sektaður fyrir að bera sig Aron og Thea Imani mikilvægust í vetur „Ætlum að byggja upp til framtíðar“ Telur sig eiga heima í íslenska landsliðinu Viktor Gísli lagðist undir hnífinn: „Best að klára þetta núna þar sem við erum ekki að fara á Ólympíuleikana“ Barcelona Evrópumeistari eftir naglbít Skaðinn skeður í hálfleik hjá Magdeburg Reynir við fyrsta Evrópumeistaratitilinn í áttunda sinn í sínum síðasta leik Aðalsteinn tekur við Víkingum Börsungar elta Álaborg í úrslit Ómar Ingi með stórleik en Álaborg fór í úrslit Thea áfram í herbúðum þreföldu meistaranna Einar Baldvin til Aftureldingar Heldur út í atvinnumennsku og ætlar sér fast sæti í landsliðinu Hin þaulreynda Rut gengin í raðir silfurliðs Hauka Viktor ekki á förum frá Nantes: „Kitlaði alveg egóið að heyra þetta“ Segja að Viktor Gísli fari til Póllands og svo til Barcelona Guðmundur Helgi stígur til hliðar í Mosfellsbæ Oddur og Teitur í liði umferðarinnar eftir kveðjuleiki sína Gunnar Steinn snýr heim og stýrir Fjölni í Olís deildinni Landin hættir í landsliðinu eftir Ólympíuleikana Orri og félagar þrefaldir meistarar í Portúgal Meistaradeildartitillinn til Ungverjalands Teitur og Oddur voru báðir níu af níu í lokaumferðinni Óðinn tvöfaldur meistari i Sviss: Markahæstur í oddaleiknum Urðu að sætta sig silfrið þrátt fyrir magnaða endurkomu Sjá meira
Ten Hag: Ekkert leyndarmál að aðrir komu til greina en sá besti var nú þegar í starfinu Enski boltinn
Viktor Gísli lagðist undir hnífinn: „Best að klára þetta núna þar sem við erum ekki að fara á Ólympíuleikana“
Ten Hag: Ekkert leyndarmál að aðrir komu til greina en sá besti var nú þegar í starfinu Enski boltinn