Innlent

Munu verjast skaðabótakröfu verslunarstjórans

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Skúli Gunnar Sigfússon, eigandi Subway á Íslandi sem rekur 23 staði á Íslandi.
Skúli Gunnar Sigfússon, eigandi Subway á Íslandi sem rekur 23 staði á Íslandi. Vísir/Anton Brink
Guðmundur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Subway á Íslandi, segir að eftir að fyrirtækið hafi farið yfir ákveðin gögn hafi verið dregin sú ályktun að verslunarstjóri Subway í Vestmannaeyjum hefði gerst brotleg við lög.

„Við leggjum þau gögn fyrir lögreglu og óskum eftir því að hún rannsaki það mál betur. Niðurstaðan er sú að grunurinn er nógu sterkur að lögregla ákveður að ákæra í málinu,“ segir Guðmundur í samtali við Vísi.

Verslunarstjórinn fyrrverandi var í Héraðsdómi Suðurlands í síðustu viku sýknuð af ákæru lögreglustjórans í Vestmannaeyjum fyrir fjárdrátt. Hún var sökuð um að hafa tekið fé úr peningakassa veitingastaðarins, um 11 þúsund krónur, auk þess að hafa í leyfisleysi gefið eiginmanni sínum Subway bát og glas af gosi. 

Var farið fram á að konan endurgreiddi upphæðina, 12.589 krónur, auk dráttarvaxta en málið kom upp í mars 2015. Var konunni sagt upp störfum í framhaldinu og málið fór á borð lörgeglu.

Konan bar því við að hafa með leyfi gæðastjóra fyrirtækisins gefið manni sínum að borða en hann hafi í fleiri en eitt skipti aðstoðað við viðgerð á tækjabúnaði veitingastaðarins. Vitni staðfestu það og eitt varð vitni að því þegar gæðastjóri sagði í lagi að launa manninum greiðan með veitingum. Gæðastjórinn sagðist fyrir dómi ekki minnast þess en útilokaði það þó ekki.

Varðandi peningana sem áttu að hafa horfið úr peningakassanum sagðist konan hafa þurft að eyða sölufærslum úr kassanum þar sem hann átti það til að frjósa. Það hefði tafið fyrir allri afgreiðslu og lausnin verið sú að eyða færslunni til að geta opnað kassann og haldið afgreiðslu áfram. Samstarfsfólk staðfesti fyrir dómi að kassinn hefði átt það til að frjósa.

Í gangi er skaðabótamál konunnar á hendur Subway sem krefst 2,3 milljóna króna í bætur en fjallað var um kröfuna á Vísi í morgun. Guðmundur segir Subway munu taka til varnar í málinu sem sé einsdæmi hjá Subway á Íslandi, í það minnsta þau tvö ár sem hann hafi starfað hjá Subway. Hann kannist ekki við önnur sambærileg mál frá fyrri tíð.

Allur kostnaður vegna málsins féll á íslenska ríkið, tæplega ein milljón króna.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×