Íslendingaliðið Kristianstad í mjög góðum málum á toppnum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. mars 2017 18:30 Ólafur Guðmundsson er fyrirliði Kristianstad. vísir/getty
Kristianstad hélt sigurgöngu sinni áfram í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld þegar liðið vann öruggan níu marka sigur á Alingsås HK, 25-16. Alingsås er í fimmta sæti deildarinnar og því sýnir frammistaða Kristianstad í kvöld að liðið er til alls líklegt í baráttunni um titilinn í ár. Íslendingarnir voru saman með átta mörk í leiknum en Kristianstad er komið með níu fingur á deildarmeistaratitilinn eftir hann. Þetta er sjöundi deildarsigur Kristianstad-liðsins í röð og hann skilaði liðinu þriggja stiga forystu á toppi deildarinnar þegar aðeins tvær umferðir eru eftir. Stórskyttan Ólafur Guðmundsson skoraði fimm mörk úr sjö skotum og gaf eina stoðsendingu, leikstjórnandinn Gunnar Steinn Jónsson skoraði tvö mörk úr fjögur skotum og línumaðurinn Arnar Freyr Arnarsson nýtti eina skotið sitt í kvöld. Kristianstad var þremur mörkum yfir í hálfleik, 9-6, og gekk síðan frá leiknum með mjög góðri byrjun á seinni hálfleiknum. Ólafur fór langt með að gera út um leikinn þegar hann skoraði tvö mörk í röð og kom sínu liði sjö mörkum yfir, 14-7, þegar tuttugu mínútur voru eftir. Seinna markið skoraði hann eftir að hafa komist inn í sendingu leikmanna Alingsås. Gunnar Steinn komst síðan Kristianstad átta mörkum yfir í næstu sókn liðsins og eftirleikurinn varð auðveldur.
Handbolti Mest lesið Stuðningsmenn Blika og Víkinga spyrja fyrir hverja leikurinn sé Íslenski boltinn UEFA lofar að hafa engin drykkjarhlé Fótbolti Bauluðu á verðandi US Open meistara Golf Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Körfubolti Karlar sem skulda meðlag í Argentínu mega ekki horfa á Messi á HM Fótbolti Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Enski boltinn Bröndby-bullur ráðast ekki bara á Víkinga heldur einnig á konur í hjólastól Fótbolti Grænhöfðaeyjar komu aftur á óvart og sögulegt hjá Mo Salah og félögum Fótbolti Lést uppi á hótelherbergi í draumaferð sinni á HM Fótbolti Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Sjá meira