Mjög kjánalegt að kaupa eftirlíkingar Guðný Hrönn skrifar 20. febrúar 2017 09:30 Halla Helgadóttir er framkvæmdastjóri Hönnunarmiðstöðvar. Vísir/GVA
Verslun á netinu kallast hópur á Facebook sem ætlaður er öllum þeim sem hafa gaman af því að versla á netinu. Á þeirri síðu keppist fólk við að deila góðum ráðum um vefverslanir og ræða allt sem við kemur því að versla á netinu. Margt fólk í þeim hóp hikar ekki við að kaupa eftirlíkingar af hönnunarvörum. Í Facebook-hópnum Verslun á netinu er algengt að fólk deili myndum af varningi sem það verslar á síðum á borð við Aliexpress og Alibaba. Stór hluti þess varnings sem fólk virðist vera að kaupa sér eru eftirlíkingar af hönnunarvörum. Margir þeir sem deila myndum af eftirlíkingum af hönnun frá t.d. Iittala, Kartell og Kay Bojesen hika ekki við að stæra sig af því að eftirlíkingin sé mjög lík upprunalegri hönnun en mun ódýrari. Lífið tók Höllu Helgadóttur, framkvæmdarstjóra Hönnunarmiðstöðvar, tali en hún hefur sterkar skoðanir á hönnunarstuld líkt og þeim sem margir landmenn virðast stoltir styðja við með því að kaupa eftirlíkingar. Spurð út í hvaða áhrif hönnunarstuldur sem þessi hefur segir hún hann geta dregið undan nýsköpun og viðskiptum með ósvikna hönnun að gera. „Þetta dregur úr möguleikum fólks á að hanna, ná árangri og lifa á sköpun sinni,“ segir Halla. „Fólk áttar sig illa á því hversu mikil áhrif það hefur að kaupa eftirlíkingar.Til að setja þetta í skiljanlegt samhengi held ég flestir íslendinga yrðu óhressir með ef einhver úti í heimi myndi kópera höfundarverk Bjarkar Guðmundsdóttur eða misnota hennar hugverk. Ég hugsa að mjög margir yrðu reiðir yfir því.“ Þegar fólk kaupir vísvitandi eftirlíkingar af hönnun er um óheiðarleg viðskipti að ræða að mati Höllu. „Þeir sem kaupa stolna hönnun er í raun bara að styðja við stuld og ýta undir óheiðarlega starfsemi.“En hvað er hægt að gera til að uppræta vandamálið? „Mín skoðun er sú að fræðsla er alltaf best. Flestir vilja vera heiðarlegir og margir taka þátt í þessu af vanþekkingu. Það þarf að útskýra fyrir fólki hvað það er að gera og hvaða áhrif það hefur.“ „Svo er auðvitað til fólk sem er með einbeittan brotavilja, fólk sem er alveg sama, og er jafnvel að flytja inn stolna hönnun í stórum stíl. Þegar slíkt kemst upp er sá varningur gerður upptækur og honum fargað. Við þekkjum það auðvitað,“ segir Halla og nefnir sem dæmi húsgögnin sem voru keypt í ráðhúsið á sínum tíma. Um eftirlíkingar var að ræða og þeim var á endanum fargað. „Það var neyðarlegt mál þar sem eðlilegast hefði verið að verja fé í alvöru hönnunarvöru eða bara sleppa því. Það er mikil sóun fólgin í því að þurfa að eyða slíkum húsgögnum sem annars eru alveg nothæf, það eru ekki góðar fréttir.“Halla hefur ekki skýringu á af hverju sumt fólk sækir í að eiga eftirlíkingar. „Ef þú villt eiga dýra og flotta hönnunarvöru þá er ekkert varið í að eiga kóperinguna. Ef þig langar að eiga ákveðinn hlut vegna hönnunar, gæða og einstakra eiginleika þá er bara mjög kjánalegt að kaupa eftirlíkingu. Það er miklu eðlilegra að kaupa bara eitthvað annað. Það er mjög aumt að vera með eftirlíkingar og að auglýsa það á netinu er verulega hallærislegt. Ef þú hefur í rauninni engan áhuga á hönnuninni sem slíkri og gæðunum sem fylgja því að kaupa hannaðar vörur þá skil ég ekki af hverju fólk kaupir ekki bara eitthvað annað.“ Halla spyr sig svo að því hvort fólk átti sig almennt á því að mjög ódýrar fjöldaframleiddar vörur eru oft framleiddar með vafasömum hætti þar sem verið er að misnota fátækt fólk, m.a. börn. „Er fólk eitthvað að hugsa út í hvaðan varan kemur? Þegar vörur eru framleiddar í gríðarlegu magni og kosta verulega lítið, þá segir það sig sjálft að þetta bitnar á einhverjum í ferlinu. Einhver er að fá mjög lítið borgað, það er bara þannig. En þetta er auðvitað annað vandamál, stórt samfélagsvandamál.“ „Við viljum flest vera heiðarleg en í tæknivæðingu samtímans erum við í auknum mæli að telja okkur trú um að að það sé allt í lagi að stela hugverki því það er erfitt að koma í veg fyrir þannig stuld. Fólk reynir að telja sér trú um að þetta sé í lagi vegna þess að það verði ekkert tjón,“ segir Halla sem hvetur alla til að velta hönnunarstuldi fyrir sér. „Það hefur alltaf verið áskorun að verja höfundarrétt, og það hafa alltaf verið gerðar tilraunir til að fara illa með rétt höfunda og hönnuða.“
Mest lesið Lést af völdum alnæmis Lífið „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ Lífið „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Lífið Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert Lífið Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Lífið „Þetta eru pjöllu-klútar“ Lífið „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Lífið Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Lífið Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás Lífið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Lífið Fleiri fréttir Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Ungir veiðimenn nutu sín í sólinni Sjá meira