Drakk fyrsta kaffibollann 7 ára 20. febrúar 2017 16:00 Uppáhellt kaffi eftir V60-aðferðinni er uppáhaldskaffi Tuma.
Tumi var aðeins sjö ára þegar hann smakkaði kaffi í fyrsta sinn og eftir það varð ekki aftur snúið. Hann hefur mikinn áhuga á kaffi og starfar nú sem fræðslustjóri hjá Te og kaffi. „Ég kem úr mikilli kaffidrykkjufjölskyldu. Uppáhaldskaffið mitt er uppáhellt kaffi en ég helli upp á eftir aðferð sem heitir V60. Hún kemur upprunalega frá japanska fyrirtækinu Hario. Ég nota pappírsfilter, helli mjórri bunu af heitu vatni yfir kaffið og læt það drjúpa niður. Grófleiki kaffisins, hitastig vatnsins og tíminn hefur allt áhrif á hvernig kaffið verður á bragðið. Helst drekk ég kaffi frá búgarði í Gvatemala sem heitir Parcela Celajes og fæst eingöngu á kaffihúsum Te og kaffi. Það er ristað í Austurstræti 9,“ segir Tumi, sem sér um ristunina þar einu sinni í viku. „Þar er starfrækt kaffihúsið Micro Roast sem segja má að sé tilraunastofa Te og kaffi. Þar ristum við allt kaffið, höldum námskeið og kaffismökkun,“ útskýrir Tumi. Hann segir kaffi latte, cappuccino og uppáhellt kaffi langvinsælustu kaffidrykkina á kaffihúsum landsins. „Enginn kaffidrykkur kemst nálægt því að steypa þeim af þessum stalli. Þegar kemur að nýjungum dettur mér fyrst í hug flat white og cortado. Upphaflega voru kaffi latte og cappuccino sami drykkurinn sem síðan þróaðist hvor í sína áttina. Cappuccino er minni og með meiri froðu en kaffi latte. Flat white er í enn minni bolla, eða um 150 ml bolla, og er með minni froðu en cappuccino. Í raun er það líkt og lítill latte nema með mjög mjúkri froðu og er bragðmeira.“ Margir fara flatt á því að freyða mjólk í kaffi en Tumi segir að g-mjólkin eigi ekki að klikka. „Auðveldast er að freyða g-mjólkina. Þar á eftir er best að freyða fjörmjólk eða undanrennu því þær eru próteinmiklar en fitulitlar. Galdurinn er að nota fjörmjólkina eða undanrennuna strax og búið er að freyða hana því hún skilur sig hratt. Svo er hætt við að hún verði freydd of mikið og verði þá of þykk.“ Nýristað kaffi er leyndardómurinn á bak við gott kaffi og einnig er mikilvægt að gæta vel að hreinlæti. „Ég mæli með að fólk fari eftir ákveðinni uppskrift og noti vog þegar það lagar kaffi, en almennt virðist fólk feimið við að nota vog. Það er eins með kaffi og bakstur. Það þarf að vita hversu mörg grömm af hveiti og vatni eigi að vera í brauðinu og það er eins með kaffið. Gott er að þekkja grunninn, vita hversu mörg grömm af kaffi og vatni þarf til að fá sömu útkomuna. Það er aukaatriði hversu mörg grömmin eru, svo lengi sem þú veist hvað þér finnst gott og þá er hægt að nota þessu sömu aðferð áfram.“ Tumi segir mikinn áhuga á kaffinámskeiðinu og bendir á að 7. og 14. mars verði haldin espresso-námskeið. Nánari upplýsingar fást á heimasíðunni www.teogkaffi.
Mest lesið Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Lífið Tæplega helmingur tilnefndra leikara til Eddunnar erlendur Bíó og sjónvarp Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Lífið Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Lífið Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð Lífið Sautján þúsund miðar seldir á Kaleo Tónlist „Er ég að klikka strax í 50?“ Lífið Gabbana stígur til hliðar hjá Dolce & Gabbana Tíska og hönnun „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Lífið Skóspark og Krakkadagar hjá Icewear: Gengið inn í vorið Lífið samstarf Fleiri fréttir Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Söfnuðu kleinuhringjum ofan í fötu með skrautlegri aðferð Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið The Streets koma fram á Iceland Airwaves „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Aflýsa Wireless eftir að Kanye var meinað að fara til Bretlands Mos Def kemur fram í Gamla Bíó í maí Eftir á fyndið að vera stönguð niður af kind Ráðherrabarn komið í heiminn Furðubandið sem tryllti netið Móðir drengs í ofbeldissambandi opnar sig Offset skotinn við spilavíti í Flórída „Ekki óttast mistök, en vertu skíthrædd við eftirsjá“ Ye á Wireless: Styrktaraðilar hætta við og forsætisráðherrann blandar sér í málið Stjörnulífið: „Sannleikurinn er sexí“ Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Sjá meira