Fallegar neglur sem passa við allt 23. febrúar 2017 10:00 „
Undanfarið hefur ekkert eitt verið meira í tísku en annað. Fólk er bara að fá sér það sem það langar í,“ segir Þórhildur Sólbjørnsdóttir ,nagla- og förðunarfræðingur, spurð út í tískustrauma í nöglum. „Reyndar má segja að „nude“ sé alltaf sterkt en svo er vinsælt að vera með glimmer eða glingur á baugfingri og margar eru með slíkt á fleiri fingrum. Hjá mér hefur verið vinsælt í meira en ár útlit sem kallast „Baby boomer“ eða „French ombre“ en þá er hvítur litur látinn feida út í „nude“.Krómneglur hafa verið heitar, bæði silfrað og rósrautt króm og einnig hvítar krómneglur. „French“ er eiginlega alveg dáið út. Vinsælasta lögunin á nöglunum kallast ballerína. Svo eru alltaf einhverjar sem vilja eitthvað verulega krassandi en oftast vilja konur bara fallegar neglur og að þær passi við allt.“ Hvernig er best að hugsa um neglurnar? „Neglur eru ekki verkfæri og þó þær geti verið mjög sterkar á ekki að nota þær á þann hátt. Þær geta brotnað mjög illa. Naglaböndin þarf að passa vel og bera á þau naglaolíu eða handáburð, sérstaklega í hitabreytingum, kulda og þurrki. Það er erfitt að setja neglur fallega á ef naglaböndin eru illa farin og þá geta komið sár og sprungur,“ útskýrir Þórhildur.Hún segist fá stelpur allt niður í fermingaraldur í neglur til sín en það verði þó að vera með leyfi foreldra. Yfirleitt byrji stelpur í fyrsta bekk í menntaskóla og eftir það verði ekki aftur snúið. Það sé auðvelt að ánetjast fallegum nöglum. „Ég er með konur yfir sextugt sem koma reglulega í neglur til mín. Það að vera með fallegar neglur gefur mörgum meira sjálfstraust. Stelpur sem vinna til dæmis við afgreiðslustörf minnast gjarnan á þetta. Þær hlakki til að mæta í vinnuna þegar neglurnar eru fallegar.“
Mest lesið Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Lífið Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Lífið Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Lífið Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Lífið Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar Lífið Halla Hrund og uglurnar þrjár Lífið Litavalið sem breytti öllu á nýja heimilinu Lífið samstarf Sbarro tekur næsta skref: Heitar pizzur allan sólarhringinn Lífið samstarf Þjóðhátíð sett í blíðviðri í Eyjum Lífið Guðjón Þorgils flytur lag Hinsegin daga Tónlist Fleiri fréttir Fiðrildi og flugeldar í maganum í Herjólfsdal Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Þjóðhátíð sett í blíðviðri í Eyjum Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Sam Smith trúlofað Halla Hrund og uglurnar þrjár Útför Megasar Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Kíkti í kaffi til kanslarans Hvað veistu um… skák? „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Madison Beer trúlofast NFL-kappa Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Fjórar konur ásaka Leto um refsiverða háttsemi í nýrri heimildarmynd Vann með fimm poppstjörnum á einni viku Sjóðheitur Patrekur Jaime með stórstjörnuteiti Tilraunakennd tískusýning í bílakjallara Safna fjármagni með múrmeldýrum á OnlyFans Gurrý komin aftur á markaðinn Förðunardrottning selur á Framnesvegi „Heimurinn er betur staddur með Höllu sem forseta“ Tíu ár frá greiningunni: „Ég var alltaf ákveðin í að sigrast á meininu“ „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Sjá meira