Hefur oft orðið fyrir barðinu á óprúttnum netverjum Guðný Hrönn skrifar 2. febrúar 2017 10:45 Guðrún Veiga er með um 17.000 fylgjendur á Snapchat og sumir þeirra eiga erfitt með að liggja á skoðunum sínum. Vísir/Eyþór
Bókarhöfundurinn Guðrún Veiga Guðmundsdóttir er virk á samfélagsmiðlum og það ætti að vera óhætt að kalla hana Snapchat-stjörnu enda er hún með um 17.000 fylgjendur á þeim miðli. Guðrún Veiga hefur spáð töluvert í nethegðun fólks í gegnum tíðina enda hefur hún orðið fyrir barðinu á nokkrum óprúttnum netverjum síðan hún fólk að blogga og tjá sig opinberlega. „Ætli ég hafi ekki fyrst farið að gefa nethegðun fólks sérstaklega gaum þegar ég varð skyndilega umræðuefni í einhverjum Facebook-hópnum fyrir þremur árum,“ segir Guðrún Veiga Guðmundsdóttir sem hélt á sínum tíma úti vinsælu bloggi. „Ég hafði skrifað eitthvað á bloggið sem einhverjum mislíkaði. Umræða sú var miður fögur og ég man að ég vaktaði hana eins og fálki – sat við tölvuna með ótal svör á reiðum höndum, klár í að hamra á lyklaborðið öll mín fínustu fúkyrði og láta fáeina hausa fjúka. Fyrst hringdi ég auðvitað grenjandi í mömmu yfir mannvonsku netverja og hún bað mig um að láta það ógert að svara og vera með skæting – slíkt yrði mér seint til framdráttar og myndi setja mig á sama lága plan og aðrir þátttakendur umræðunnar væru á. Ég hlýddi (eins og ég geri alltaf) og sé ekkert eftir því. Ég er ekki viss um að ég hefði komið neitt stórkostlega vel út þarna – skrifandi einhver svör æst, sár og snarvitlaust,“ útskýrir Guðrún Veiga. „Síðan þá hefur margt breyst. Facebook-hóparnir eru orðnir óteljandi og margir hverjir vettvangur þar sem andstyggilegar umræður um einstaklinga og hópa eru daglegt brauð. Fólk hefur í raun alls staðar orðið vettvang og tækifæri til þess að tjá skoðanir sínar og því mjög áhugavert að skoða hvernig fólk hagar sér og hvað það leyfir sér að láta út út sér með lyklaborðið eitt að vopni.“ Þegar Guðrún Veiga er spurð út í skrýtna og leiðinlega hluti sem fólk hefur látið flakka við hana í gegnum netið veit Guðrún varla hvar hún á að byrja. „Þegar fólk sendir mér skilaboð í gegnum þessa helstu samskiptamiðla, Facebook og Snapchat til dæmis, þá er stundum eins og það haldi að það sé að skrifa jólasveininum bréf. Að það sé enginn sem fái bréfið. Að þessi manneskja sem er áberandi á einhverjum samfélagsmiðli sé bara skáldsagnapersóna einhvers konar – ekki manneskja af holdi og blóði með tilfinningar sem særast alveg jafn auðveldlega og þínar eigin,“ segir Guðrún Veiga sem telur sig verða orðna nokkuð sjóaða í þessum málum. „Ég er komin með skráp sem myndi halda á mér hita á hæsta tindi Everest (segir konan sem kemst ekki upp Esjuna). En auðvitað á ég mína viðkvæmu bletti sem lítið má snerta án þess að mér sárni. Sumir vilja vel með ábendingum sínum. Aðrir eru bara að skipta sér af því sem þeim kemur ekki við.“Orðin sjóuð í þessum málumÁrásirnar sem Guðrún hefur orðið fyrir eru af ýmsum toga. „Á tímabili fékk ég sífellt sendar einhvers konar dylgjur um að ég gæti ekki verið að borða svona mikið sælgæti eins og ég virtist gera á Snapchat. Ég væri pottþétt að tyggja fyrir framan myndavélina og myndi svo hrækja því út úr mér um leið og andlit mitt væri úr mynd. Nú, eða að ég væri síælandi bara. Það var skrýtið að þurfa að svara fyrir. Þeir sem þekkja mig vita að ég myndi frekar henda fötunum mínum í ruslið heldur en minnsta sælgætisbita,“ segir Guðrún sem reynir að hafa húmor fyrir þessum ásökunum. „Holdafar mitt og líkamsþyngd er óþrjótandi uppspretta misgáfulegra spurninga. Ég gæti í raun endalaust talið. Sumt spaugilegt og skrýtið. Annað svolítið sárt.“ „En ég leita þessar umræður ekki uppi til þess að lesa,“ segir Guðrún svo spurð út í hvernig henni líði þegar ókunnugt fólk talar um hana á netinu. „Ég fæ annað slagið veður af þeim í gegnum vini og ættingja og forvitnin ber mig ofurliði þannig að ég fer á stúfana. Þær slá mig nú í flestum tilvikum ekki fast, þótt misfagrar séu. Svona verður maður sjóaður. Það er líka nauðsynlegt að læra að láta þetta sem vind um eyru þjóta að mestu – ekki kæmist maður langt í lífinu ef allur þvættingur internetsins fengi að hafa sín áhrif. Ef ég hef hins vegar vogað mér að tala um málefnið – fara út í svona umræður, til dæmis á Snapchat, þá fæ ég undantekningarlaust athugasemdir á borð við: „Ef þú vilt vera opinber persóna þá verður þú bara að geta tekið gagnrýni, þýðir ekki að vera hörundsár og skælandi“. Gagnrýni (að rýna til gagns) og netníð er eitthvað sem ansi margir ættu að læra muninn á. Og hvar er sú regla skráð, að ef einhver er opinber persóna, þá megi flekka mannorð og gera lítið úr mannkostum viðkomandi að vild án nokkurra eftirmála?“Með tilkomu samfélagsmiðla eins og Snapchat er orðið afar auðvelt að senda skilaboð á fólk.Er stundum tekin full bókstaflegaGuðrún fékk á dögunum ábendingu frá ókunnugri konu í gegnum Snapchat um að hún ætti frekar að vera með stutt hár, það færi henni betur. Hún finnur fyrir að margt fólk hefur mikla þörf fyrir að tjá sig um útlit hennar og annarra á netinu. „Já, mikla þörf að mér virðist. Glósur um holdafar virðast ýmsir upplifa, vangaveltur um lýtaaðgerðir og jafnvel augnskuggaval. Það er ekkert langt síðan að ég fékk ábendingu um að rauður augnskuggi (sem ég þá skartaði) væri ógeð við blá augu. Ég hlusta ekki á svona rugl, var að lesa það að rauður yrði eldheitur augnskuggalitur árið 2017.“ Spurð um góð ráð sem hún lumar á fyrir netverja mælir Guðrún með að fólk segi ekkert á netinu sem það myndi ekki segja úti í hinum raunverulega heimi. „Ég held að fólk ætti að ímynda sér aðstæðurnar og samskiptin í „raunheimi“. Ef við höldum okkur til dæmis við ábendinguna um stutta hárið. Myndir þú hlaupa á eftir einhverri vesalings konu inni í Hagkaupi og garga: „Hei, hæ – fyrirgefðu, þú þarna í bláu úlpunni. Já, þú! Hefur þú íhugað að klippa þig stutt? Nei, veistu, það færi þér miklu betur og gott ef það myndi ekki bara yngja þig um nokkur ár!“? Sama dæmi má taka um augnskuggann. Bara þú og ókunnug kona í goskælinum og hún snýr sér að þér: „Nei, sorrí, ég finn mig knúna til að segja þér að rauður augnskuggi er ógeð við blá augu“.“ Þeir sem fylgjast með Guðrúnu Veigu á Snapchat vita að hún notar gjarnan kaldhæðni þegar hún tjáir sig og fólk á það til að taka það sem hún segir bókstaflega, það getur valdið misskilningi. „Já, fólk tekur mig oft á tíðum full bókstaflega. Eins og þegar ég sagðist enn vera með níu ára gamlan son minn á brjósti, það var gott samkvæmi að svara skilaboðunum sem bárust í kjölfarið.“ „Ég ritskoða mig ofsalega takmarkað því þá fyrst yrði lítið gaman að þessu öllu saman. Ætli það sé ekki svolítið þess vegna sem ég fæ eitt og annað yfir mig, ég á það til að segja það sem mér dettur í hug hverju sinni og stundum grafa eigin gröf nokkuð hratt og örugglega. Allt sem ég segi og geri er þó yfirleitt í góðu gamni gert og ekki ætlað til þess að skaða nokkurn mann. Ég vil meina að ég sé grínisti þó að maðurinn minn sé mér ekki alveg sammála.“ Áhugasamir um nethegðun ættu að fylgjast með kvöldfréttum Stöðvar 2 á morgun, föstudag, en þar munu nokkrir þekktir einstaklingar lesa upp ljótar athugasemdir um sjálfa sig af netinu og Guðrún Veiga er meðal þeirra.
Mest lesið Veggjadans á Hörpu og snyrtivörur úr sælgæti Lífið Krakkatía vikunnar: Menning, bangsar og líffæri Lífið Serena Williams opnar sig um notkun þyngdarstjórnunarlyfja Lífið Bjargaði lífi systur sinnar ellefu ára gömul Lífið Woody Allen aðalnúmerið hjá Rússum Bíó og sjónvarp Svona verður dagskráin á Menningarnótt Lífið Hlynur Pálmason með þrennu í San Sebastian Bíó og sjónvarp Kynferðisleg gremja, sænskur senuþjófur og náttúruklám Gagnrýni Miklar tilfinningar og mikil stemning í Reykjavíkurmaraþoninu Lífið Níu ástæður fyrir því að stunda morgunkynlíf Lífið Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Menning, bangsar og líffæri Veggjadans á Hörpu og snyrtivörur úr sælgæti Miklar tilfinningar og mikil stemning í Reykjavíkurmaraþoninu Serena Williams opnar sig um notkun þyngdarstjórnunarlyfja Fréttatía vikunnar: Svíþjóð, sektir og vextir Bjargaði lífi systur sinnar ellefu ára gömul Níu ástæður fyrir því að stunda morgunkynlíf Bragðgóðar kalkúnabollur í kókos og límónusósu Hörður Björgvin kom Móeiði á óvart HAF-hjónin breyta vídjóleigu í bakarí Ari og Helga Lilja flytja á milli glæsihúsa í Garðabæ Mamman grét, eiginmaðurinn fraus en Veru var létt Innlit í nýtt svefnhólfahótel við Hverfisgötu Millie Bobby Brown og Bongiovi hafa ættleitt stúlku Fullkomið og fór langt fram úr væntingum Þungarokkstjarna lést í mótorhjólaslysi Lil Nas X handtekinn og vistaður á sjúkrahúsi Fjögurra daga Njáluhátíð sett á Hvolsvelli í kvöld Tvö maraþon eftir af sex: Úr þoku í sól, misörlátir ferðamenn og hálendið kvatt „Sjúllaður“ sítrónu og jarðaberja næturgrautur Draumadís Þórhildar og Hjalta komin í heiminn Svona verður dagskráin á Menningarnótt Breskur auðkýfingur brjálaður og norsku kafararnir of dýrir Nafn sonarins innblásið af Frakklandi Súrrealískt þegar Jay Leno vinkaði fjölskyldunni á Facetime Borgarstjóri fagnaði brúðkaupsafmæli með strætóferð og indverskum mat Svarar samskiptastjóra Trump sem kallaði hann lúser Þetta borðar Lína Birgitta alla morgna „Indælasti dómari í heimi“ er látinn Seiðandi víbrur sem virka í bólinu Sjá meira