Stærstu aflraunastjörnur Íslands keppa á WOW Stronger Birgir Olgeirsson skrifar 4. janúar 2017 10:38 Annie Mist, Ragnheiður Sara, Katrín Tanja og Hafþór Júlíus keppa öll á þessu móti. Mynd/Vísir „
Þetta verður svaðalegt partí,“ segir Evert Víglundsson Crossfit-þjálfari um um keppnina WOW Stronger þar sem besta aflraunafólk Íslands, Hafþór Júlíus Björnsson, Katrín Tanja Davíðsdóttir, Annie Mist Þórisdóttir og Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir, keppa í CrossFit með Strongman áherslum. Mótið fer fram í CrossFit Reykjavík í Faxafeni 12 klukkan 14:30 á laugardag. Æfingarnar sem keppt verður í er sambland af Strongman-keppnisgreinum, kraftlyftingum, ólympískum lyftingum og Crossfit. Er búist við snörpum æfingum og þungum lyftu sem er sagt skemmtilegt áhorfs. Þetta verður í fyrsta skiptið sem keppni í Strongman-greinum og CrossFit er blandað saman, eða allavega svo vitað er.Evert Víglundsson.Mynd/VísirHugarfóstur Everts og Annie Evert segir hann og Annie Mist hafa gengið með þessa hugmynd í nokkurn tíma. „Við ákváðum að skella í það. Tímasetningin hentar einstaklega vel því fram undan er þétt dagskrá hjá öllum af okkar helstu aflraunastjörnum. Þetta var því eini dagurinn sem var í boði,“ segir Evert. Hann segist vonast til þess að þetta form á keppni verði að reglulegum viðburði og gætu Íslendingar orðið stórir á því sviði því ekki vantar afrekin á þessu sviði. Hafþór Júlíus er atvinnumaður í Strongman og sterkasti maður Íslands, Katrín Tanja er núverandi heimsmeistari í CrossFi, Annie Mist er fyrrverandi heimsmeistari í CrossFit og Ragnheiður Sara er Evrópumeistari í CrossFit og varð í 3. sæti á heimsleikunum í CrossFit. Þá mæta 8 erlendi keppendur til leiks, þar á meðal Patrick Vellner sem varð í 3. sæti á heimsleikunum í CrossFit. Evert segir erlendu keppendurna vera úr CrossFit-heiminum en þekktir fyrir að vera „extra-sterkir“.Mynda saman lið Í Strongman er áherslan á gífurlegan styrk en í CrossFit er mikið lagt upp úr hraða og úthaldi. Því gætu einhverjir spurt sig hvernig Hafþór Júlíus á að geta keppt við Katrínu Tönju í hraðagreinum og Katrín Tanja við Hafþór Júlíus í kraftagreinum.Katrín Tanja Davíðsdóttir,Vísir/GVA„Við setjum þetta upp þannig að þetta eru lið og liðið er tveir strákar og ein stelpa. Svo eru greinarnar þannig að þú velur einn úr liðinu til að takast á við eina af greinunum. Í keppninni verður til dæmis 140 kílóa drumbalyfta og þú setur ekki Katrínu Tönju í hana heldur myndir þú velja Hafþór. Svo þarf að ganga á höndum og þá velur þú ekki Hafþór heldur Katrínu Tönju til að gera það. Heilt yfir þurfa þau liðin að vinna vel saman en það kemur smá sérhæfing inn á milli,“ segir Evert.Góðvildin ræður för Eins og fyrr segir er okkar besta fólk í þessum aflraunagreinum atvinnumenn á sínu sviði en Evert segir peningana ekki hafa lokkað þau á þetta mót. „Það er góðvildin. Það verða einhver smá peningaverðlaun en aðallega er þetta góðvild,“ segir Evert. Hann segir þau öll vera góða vini sem vilji gera eitthvað skemmtilegt saman. Erlendu keppendurnir eru allt vinir þeirra sem þau bjóða hingað til lands með hjálp WOW Air til að keppa og hafa gaman á Íslandi. Evert hvetur alla til að mæta og lofar magnaðri sýningu. „Þetta verður bara eins og eitt stórt sirkusatriði. Við verðum með áhorfendastúkur þar sem 500 manns komast í sæti, miðar fást á Tix.is. Við stúkum af hluta af CrossFit Reykjavík þar sem þetta er haldið og íþróttamennirnir verða í miðjunni, þannig að þetta verður eins og ljónagryfja. Við slökkvum ljósin, það verða kastarar, reykur og rakettur. Þetta verður bara sýning.“
Mest lesið Fann ástina og tók sénsinn í New York Lífið Lést af völdum alnæmis Lífið „Þetta eru pjöllu-klútar“ Lífið Ókunnug mamma ekki sátt með kaupin Tíska og hönnun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Lífið Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert Lífið Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás Lífið Fyrsta stiklan úr mynd Eggers og Sjónar Bíó og sjónvarp Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Lífið Synir Britney gengu tískupallinn í París Tíska og hönnun Fleiri fréttir Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Sjá meira