Marsspá Siggu Kling – Tvíburi: Breytingar yfirvofandi sem tengjast því að þú færir þig til 3. mars 2017 09:00
Elsku tvíburi minn, þú ert svo mikið tengdur himintunglunum í tilfinningaorku þinni. Og þar sem það er búið að vera mikil spenna í kringum jörðina okkar þá drekkur þú það inn í líkama þinn og huga. Þú þarft núna að læra að aftengja þig, setja skýr mörk á það hvað skiptir máli og hvað skiptir ekki máli. Með hverjum þú ætlar að „chill-a“ og hverjir eiga það ekki skilið að vera í lífi þínu. Þér getur fundist eins og það sé verið að ráðast á þig á einhvern hátt sem þú átt ekki skilið. Og þar sem þú ert svo mikill magnari og magnar upp huga þinn, þá skalt þú vita að þetta er eitthvað sem þú ræður við. Þú þarft að sleppa, henda og fleygja, sem ætti að vera þitt mottó í þessum mánuði. Þú ert að fara inn í eitthvað skrautlegasta sumar sem þú hefur nokkurn tíma átt, svo að þú þarft að bæta við tilhlökkun í huga þinn. Þá fer þér að líða svo miklu betur. Það eru ýmsar breytingar yfirvofandi sem tengjast því að þú færir þig til eða skipuleggur mikla breytingu í lífi þínu, þetta gæti samt tekið dálítinn tíma. En hugsunin er byrjuð og allt byrjar nefnilega í hugsun. Það er í eðli þínu að opna of marga möguleika, og ef eitthvað klikkar þá getur þú farið eitthvað annað. Þetta tekur mátt þinn því að þú þarft að sjá hvert þú ætlar að fara. Lífið er alveg eins og að skipuleggja ferðalag og ef þú skipuleggur ferðalag til Danmerkur, þá ferðu ekki til Færeyja. Þegar þú ert búinn að breyta þessu þá eflist krafturinn þinn og fókus á hvað þú vilt og hver þú ert. Þá er enginn möguleiki fyrir neinn að halda þér niðri, ekki í eina mínútu. Í ástinni er svo mikilvægt að þú skoðir fyrir þig að húmorinn er lykillinn að ástinni og hamingjunni hjá þér. Svo að ef að þú ert að leita þér að ástarprins eða prinsessu og sú persóna fær þig ekki til að hlæja eða líða betur, þá skalt þú ekki hugsa lengra, heldur ýta bara á DELETE. Og þá munu nýir aðdáendur birtast þér. Mottó : Byrjaðu daginn með brosi þá breytist allt.Frægir Tvíburar: Ragnar Sigurðsson landsliðsmaður, Örn Árnason leikari, Óli Geir Jónsson plötusnúður, Bjarni töframaður, Hrund Þórsdóttir fréttakona, Össur Skarphéðinsson húmoristi, Johnny Depp leikari, Páll Magnússon fjölmiðlamaður, Kjartan Atli Kjartansson lífsspekúlant, Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari, Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar, Andri Freyr útvarpsmaður og Lýðveldið Ísland, Donald Trump, Þórarinn Þórarinsson blaðamaður.
Donald Trump Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Mótandi reynsla að upplifa dauðann Lífið Verður aðalnúmer hálfleikssýningar Ofurskálarinnar Lífið Boðaði vinkonurnar í bústað eftir að hafa upplifað Tinder á sterum Lífið Egill og Thelma eiga von á sínu öðru barni Lífið Selena Gomez giftist Benny Blanco Lífið Fann ástina loksins þegar hann tók sér marga elskhuga Lífið Ætla að syngja sig hás og dansa við Komdu um jólin Lífið samstarf Seld sú hugmynd að grannur líkami sé það eina sem er aðlaðandi Lífið Krakkatían: Lestrarkeppni, flugumferð og leiksýning Lífið Blondie verður stjarnan á RIFF um helgina Lífið Fleiri fréttir Egill og Thelma eiga von á sínu öðru barni Verður aðalnúmer hálfleikssýningar Ofurskálarinnar Mótandi reynsla að upplifa dauðann Selena Gomez giftist Benny Blanco Krakkatían: Lestrarkeppni, flugumferð og leiksýning Rapparinn og málverndarsinninn frjáls ferða sinna Boðaði vinkonurnar í bústað eftir að hafa upplifað Tinder á sterum Fréttatía vikunnar: Moulin Rouge, Blóðbankinn og Eurovision „Lætur mér líða eins og tími minn í Hollywood hafi verið ómaksins virði“ Fögnuðu sögulegum 850 þúsund króna hátalara Ella Egils Björgvin Franz brotinn en slær í gegn í Ladda og ræktinni Sonur Fóstbróður slær í gegn: „Ég er fastur þarna núna, orðinn háður“ „Kristrún Frostadóttir frá... Finnlandi?“ Lamaðist og missti sjón en fann styrk í sjálfri sér Víkingur Heiðar hlaut mjög virt verðlaun Fyrstur til að skíða niður Everest án súrefnis „Það sýður miklu frekar upp úr við uppvaskið“ „Mjög fallegt“ hús og „fullfrágengin“ lóð Elli Egils hannaði hátalara fyrir Bang & Olufsen Elli Egils hélt að Elli Egils væri grín Framtíð Ísraela í Eurovision ákveðin í nóvember Fargufan nýjasta æðið á Íslandi Selja íbúð í Vesturbænum: „Við eigum of mörg börn til að búa í henni áfram“ Lýsir raunum einhleypra í Reykjavík: „Tilhugalífið minnir á lélegt bókunarkerfi“ Þetta eru uppáhalds barnabækur ráðherranna Ástfangin á ný Hollywood-stjarna slær sér upp með prins „Er ekki hér til að keppast um fegurð“ Þriðja í heiminn hjá Rihönnu og A$AP Rocky Er ekki eðlilegt að stunda kynlíf á afmælinu? Sjá meira