Heitin strengd fyrir 2017 Ólöf Skaftadóttir skrifar 1. janúar 2017 11:00 Sif Sigmarsdóttir
Sif Sigmarsdóttir rithöfundur Mér var nýlega sagt að meðal mannshjartað slægi þrjúþúsund milljón sinnum áður en yfir lyki. Aðeins þrjúþúsund milljón sinnum – ef við erum heppin. Við þeirri staðreynd er hægt að bregðast með tvennum hætti. 1) Láta bugast af því hve grimmilega nauman tíma náttúran skammtar okkur. 2) Fyllast lotningu frammi fyrir hinni óendanlega flóknu fléttu tilviljana sem gæddi okkur þessu hverfula líffæri og nýta hvern einasta slátt þess til hins ýtrasta. Áramótaheit mitt er að velja síðari kostinn. Árið 2017 ætla ég að gera meira, hugsa minna og drekka meira kaffi. Fréttablaðið/Antonbrink Emmsjé Gauti rappari Halda áfram að gefa út hittara sem fólk getur hlustað á meðan það stendur við áramótaheitin sínFréttablaðið/VilhelmBrynjar Níelssonþingmaður Sjálfstæðisflokksins Ég strengi aldrei nein heit fyrir utan það eina þegar ég kvæntist. Og ef mér dytti hug að strengja einhver heit væri það allra síst um áramót.Fréttablaðið/AntonbrinkÞórunn Antoníasöngkona og útvarpskona á FM957 Að dansa meira og treysta. Svo langar mig mikið til þess að rekast á Bill Murray og fá mér með honum viskí-dreitil einhverstaðar í háhýsi í Japan - helst á karíókí bar. Lífið er nefnilega alveg drepfyndið og fullt af ævintýrum. 2017 verður ár sigra, hugrekkis og húmors.Fréttablaðið/Antonbrink Björt Ólafsdóttirþingmaður Bjartrar framtíðar Áramótaheitin eru sum orðin árleg. Svona meira eins og áminning en heit. Fara í ræktina og hitta vini okkar oftar. En svo er ég með annað splúnkunýtt. Ég ætla að dusta rykið af tungumálum sem ég hef lært. Hvort það verði danskan eða franska mun aðeins fara eftir því hvað ég sé fram á mikinn frítíma á komandi áriFréttablaðið/GVASirrý Hallgrímsdóttiraðstoðarmaður mennta- og menningarmálaráðherra 2017 verður ár heilsunnar. Ég ætla að hætta að borða nammi og fara í ræktina að lágmarki 4 sinnum í viku!Fréttablaðið/ErnirEva Laufey Kjaran Markmiðið er að eyða sem mestum tíma með fjölskyldu og vinum, borða mikið af góðum mat og ferðast. Semsagt njóta þess að vera tilFréttablaðið/ArnþórKristín Ólafsdóttirpistlahöfundur Ég ætla að klára BA-gráðuna mína og prófa svo að vera ekki í skóla í fyrsta sinn síðan ég var 6 ára. Mig langar líka að verða betri í að samgleðjast öðrum og ég ætla að byrja að æfa mig í því strax í janúar. Samhliða því vil ég svo ná að hlaupa 10 km á brettinu í ræktinni og verða í kjölfarið spengileg eins og Steina systir mín. Ólafur Arnarson. Fréttablaðið/GVAÓlafur Arnarsonformaður Neytendasamtakanna Ég ætla klárlega að hreyfa mig meira og komast gott form Tilgangurinn með þessu er vitanlega að stuðla að góðri heilsu og líkama sem vekur aðdáun í sundskýlu.Unnur Ösp Stefánsleikkona Það er einfalt og gott áramótaheitið: horfa meira uppúr símanum og í andlit ástvina!Kristófer Helgasonútvarpsmaður á Bylgjunni Mitt markmið á nýju ári er að halda áfram að rækta heilsuna og hjálpa öðrum að gera slíkt hið sama í gegnum hitt starfið mitt - sem er að þjálfa og kenna fólki að sveifla ketilbjöllum í World Class á Selfossi.Margeir Steinar Ingólfssonplötusnúður Ég ætla að vera góður við menn og málleysingja, brosa meira og svo skal mér takast að komast í splitt. En ég feilaði einmitt á því áramótaheiti á síðasta ári.Kolbeinn Óttarsson Proppéþingmaður VG Þetta verða sérstök áramót hjá mér, því ég hyggst eyða þeim einn í sumarbústað í Þjórsárdal. Þar ætla ég að fara í smá uppgjör á lífi og löngunum og já, strengja einhvers konar heit í fyrsta skipti á ævinni. Það mun snúast um það að segja skilið við fortíðina, taka ábyrgð á gjörðum mínum og hefja nýjan kafla í lífinu með hreint blað.Ragnheiður Elín Árnadóttiriðnaðarráðherra Áramótaheitin hafa verið hefðbundin í gegnum tíðina...svona "borða minna og hreyfa sig meira" áramótaheit. Nú stend ég hins vegar á svo miklum tímamótum persónulega að mér finnst ég verða að taka þetta alla leið. Ég verð fimmtug á árinu, er að breyta um starfsvettvang og hef einhvern veginn öll tækifæri möguleg til þess að gera 2017 að stórkostlegu ári. Ég ætla að vanda mig og velja vel. Sinna þeim sem ég hef vanrækt vegna stjórnmálastúss, hvort sem það eru vinir eða fjölskylda, einfalda líf mitt og hreinsa allan óþarfa í burtu. Taka til í skápum og skúmaskotum og bara gera skemmtilega hluti með skemmtilegu fólki. Og já..svo verð ég að fá mér nýja mjaðmakúlu. Íþróttameiðsl sko.
Mest lesið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Eva Marie Saint er látin Lífið „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Lífið Kona fagnar tólf árum í nýjum og glæsilegum Firði Lífið samstarf Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Lífið Fleiri fréttir Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Sjá meira