Zik Zak fagnar 16 ára afmæli 16. febrúar 2017 12:15 Afmælishátíðin hófst í dag og stendur fram á mánudag.
ZIK ZAK KYNNIR Afmælishátíð Zik Zak hófst með pompi og pragt í morgun og fengu fyrstu viðskiptavinir dagsins veglegan kaupauka. Verslunin er sextán ára og verður haldið upp á afmælið alla helgina og fram á mánudag. Á meðan á hátíðinni stendur verða flott afmælistilboð í versluninni auk þess sem viðskiptavinir geta tekið þátt í glæsilegu happdrætti og eiga meðal annars kost á því að vinna hundrað þúsund króna gjafabréf. Í Zik Zak er að finna ríkulegt úrval af hversdags- og spari kvenfatnaði í öllum stærðum. Sömuleiðis úlpur sem hafa notið mikilla vinsælda. Þar fást líka skór, skart og fylgihlutir og stendur til að auka úrvalið af skarti til muna.Boðið er upp á allt að sextíu prósent afmælisafslátt af völdum vörum.„Við leggjum mikla áherslu á að bjóða snið og stærðir sem henta ólíkum vexti. Stærðirnar eru ýmist frá xs til xxxl eða 36 til 56. Við erum með fatnað frá hinum ýmsu framleiðendum en auk þess hönnum við og framleiðum okkar eigin línu undir merkinu Zik Zak,“ segir Sigríður Ómarsdóttir, einn eigandi Zik Zak. „Við höfum mikla reynslu af því að vinna með íslenskum konum og erum farnar að lesa þær ansi vel. Við ákváðum því að bæta við eigin línu til að geta lagað úrvalið enn frekar að þeirra þörfum.“ Nýjasta Zik Zak línan er komin í hús og ríkir mikil ánægja með hana. „Það sem einkennir hana helst eru góð snið, góðar stærðir og frábært verð. Línan kemur í stærðum 36 til 56 og ættu því allar konur að finna flík við hæfi. Með því að hanna línuna sjálf getum við líka haldið verðinu niðri en það er okkur mikið hjartans mál.“Zik Zak hefur þjónað íslenskum konum í sextán ár. Verslunin hefur verið í Kringlunni frá árinu 2008 og hefur verið rekin þar við góðan orðstír. „Við höfum frá upphafi fengið árlega viðurkenningu frá Kringlunni fyrir hundrað prósent árangur í hulduheimsóknum en þar er meðal annars lagt mat á þjónustu, viðmót, snyrtimennsku og verðmerkingar,“ segir Berglind Ásgeirsdóttir, stofnandi Zik Zak. Berglind segir mikið kapp lagt á góða þjónustu. „Við fáum til okkar mikinn fjölda kvenna á öllum aldri sem sumar eru óöruggar með sig og reynum að leiðbeina þeim eftir bestu getu með hentug snið og stærðir. Verslunin er þekkt fyrir mjög mikið og fjölbreytt úrval og viðskiptavinir þurfa góða aðstoð við að finna það sem hentar best. Við tölum frá hjartanu og eigum auðvelt með að mæta ólíkum þörfum. Við erum líka svolítið gamaldags að því leyti að við erum ekki í símanum eða tölvunni þegar viðskiptavinurinn kemur inn og megum alltaf vera að því að taka á móti honum,“ segir Berglind.Sigríður segir viðskiptavini oft nefna það að þeim þyki einstaklega gott að koma í verslunina. „Hér taka konur á móti konum og við leggjum okkur fram um að eiga persónuleg og hlýleg samskipti.“ Verslunin hefur að sögn Sigríðar notið mikilla vinsælda að undanförnu og eru þær enn að aukast. „Við tökum því að sjálfsögðu fagnandi og erum alltaf á tánum við að sinna þörfum viðskiptavina,“ segir Sigríður og bendir á að sjaldgæft sé að finna fataverslun hér á landi sem býður bæði ódýrar vörur og framúrskarandi þjónustu. Berglind segir Zik Zak vera með marga fastakúnna. „Þær konur sem hafa ekki kost á að koma í verslunina sökum veikinda eða fötlunar senda svo gjarnan eiginmenn eða aðra ættingja með úrklippur af fötum úr auglýsingum sem við finnum til. Þeir koma svo aftur og aftur og það er voða gaman.“ Zik Zak er með 17.000 fylgjendur á facebook. „Þar er dásamlegt samfélag útaf fyrir sig og við erum mjög duglegar að setja inn myndir af nýjum vörum, tilboðum og öðru sem er að gerast," segir Sigríður og bendir á að á þriðjudaginn verði dregið í happdrættinu og tilkynnt um vinningsahafana á facebook. Hún bendir líka á það að á laugardag verður hægt að hringja inn á Bylgjunna og getur einn heppinn hlustandi nælt sér í 100.000 króna gjafabréf í beinni. Þær Berglind og Sigríður hvetja alla til að líta við í afmælið og nýta sér allt að sextíu prósent afmælisafslátt. „Við tökum vel á móti öllum og bjóðum þeim sem vilja upp á kók og Prins Polo.“Gestir geta gætt sér á kóki og Prins Póló. Einn heppinn hlustandi Bylgjunnar á þess kost að vinna 100.000 króna gjafabréf.
Mest lesið Heitustu trendin fyrir sumarið 2024 Lífið Hönnunarhús Markúsar Mána og Kristínar til sölu Lífið Hafa ekki sést saman í sjö vikur Lífið Myndaveisla: Sællegar skvísur í sumarfíling Lífið „Fengum ekki sjokk, en við fengum sjokk að hann væri með hjartagalla“ Lífið Elísabet og Áki nefndu stúlkuna Lífið Setja upp söngleiki, leikrit og tónleika í Háskólabíó í sumar Lífið Fantaflott með frönskum gluggum í Vesturbænum Lífið Andri og Erla selja í Seljunum Lífið „Lítið rauðhært kríli væntanlegt í nóvember“ Lífið Fleiri fréttir X-ið ógnar en Bylgjan ekki? Heldur FM957 bikarnum? Nýja línan frá Barton Perreira kynnt í Auganu Óreiðulaus eldhús með þráðlausu kerfi KitchenAid Verum viðbúin með góðri vörn þegar sólin skín! Magnesíum potturinn í Laugardalslaug snýr aftur! Bill Barton kemur í Augað í Kringlunni Sumar að hætti Múmínálfanna lokkar þig út í góða veðrið Einstakar húðmeðferðir sem auka heilbrigði húðarinnar „Okkar sérsvið liggur í sætindum“ – mæðradagsbombur frá 17 sortum Glæsileg dagskrá á Þjónustudegi Toyota á laugardag Umfram allt að húsgögnin þoli íslenskt veðurfar Nýi Draumurinn slær í gegn Dáleiðsludagurinn 11. maí Er hægt að nota of mikið af sólarvörn? Taktu þátt í Ford Fantasy leik Bestu deildar karla Ný vörulína lagar litabletti í húð The House of Beauty fagna sex ára afmæli með látum Taktu þátt í spennandi vorleik á Vísi Fermingargjöf sem lifir um ókomin ár 10 ár af matargleði: Eldum rétt býður í milljón króna ferðalag ILVA tilnefnt til hönnunarverðlauna Bo Bedre Karlmannsnærbuxurnar sem eru að gera allt vitlaust Taktu þátt í skemmtilegum sumarleik! Metum hvort við viljum breyta góðri sögu með sannleika Virkilega spennandi lokamót framundan Hanna draumareitinn fyrir sumarið Fyrstur Íslendinga að keppa í SkyRunning World Series DONE gæinn, markaðsmaður ársins? Brúðkaupsdansinn er einn af hápunktum brúðkaupsins Ný viðbót frá NIVEA dregur úr sýnileika húðslita og litabletta Sjá meira