Kristianstads fékk skell í Frakklandi 14. október 2017 17:30 Leikmenn Kristianstads á æfingu með íslenska landsliðinu. Vísir/Anton
Gunnar Steinn Jónsson, Ólafur Guðmundsson, Arnar Freyr Arnarsson og félagar í Kristianstad áttu litla möguleika gegn franska félaginu Nantes í Meistaradeild Evrópu í handbolta í dag. Eftir að hafa verið átta mörkum undir í hálfleik lauk leiknum með níu marka tapi Kristianstad, 25-34. Það voru ekki aðeins íslenskir leikmenn sem tóku þátt í þessum leik en dómaraparið var íslenskt, þeir Svavar Pétursson og Arnar Sigurjónsson voru á flautunni í Frakklandi í kvöld. Þeir gátu þó ekki bjargað okkar mönnum, þrátt fyrir að liðin skiptust á mörkum til að byrja með tók Nantes frumkvæðið snemma leiks og náði góðu forskoti fyrir hálfleik þar sem liðið leiddi 19-11. Seinni hálfleikurinn var því aðeins formsatriði fyrir heimamenn að klára en þegar mest var fór munurinn upp í tólf mörk þótt að sænska félaginu hafi tekist af og til að kroppa í forskotið. Gunnar Steinn komst á blað með eitt mark í leiknum úr tveimur skotum en Ólafur náði í tvígang að koma boltanum í netið í fimm tilraunum. Sænska félagið er því áfram með aðeins eitt stig að fimm leikjum loknum°en sigur franska félagsins þýðir að Nantes er komið með fimm stig í fimmta sæti.
Handbolti Mest lesið Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Körfubolti Stóru liðin á eftir Kroupi Enski boltinn Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Íslenski boltinn HM-minning: Leyfði herbergisfélaganum að vera hetjan Fótbolti Keegan með fjórða stigs krabbamein Enski boltinn Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Enski boltinn Er hægt að stöðva Víkingana? Sport Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Enski boltinn Þróttarar með mikilvægan sigur á Grindvíkingum Íslenski boltinn Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Handbolti Fleiri fréttir Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Sjá meira