Febrúarspá Siggu Kling komin á Vísi!

Sigga leggur leggja áherslu á að fólk geri það besta úr því sem það les, nýta sér orkuna, klappa sér á bakið og elska lífið. Spárnar einkennast af gleði, krafti, orku og jákvæðni en það eru skilaboðin sem hún vill senda til samfélagsins.
Sigga Kling verður í beinni sjónvarpsútsendingu á Vísi klukkan 14:00 í dag og geta lesendur sent inn spurningar í athugasemdarkerfinu hér að neðan. Hægt verður að spyrja Siggu um allt á milli himins og jarðar.
Sigga býður upp á þjónustunámskeið fyrir fyrirtæki af öllum toga: Hópefli – hressingarfyrirlestur sem getur verið hentugur í hádegishlé eða í byrjun vinnudags. Einnig tekur hún að sér hópa sem vilja eiga jákvæða og gleðilega kvöldstund. Þeir sem hafa áhuga gefa haft samband við Siggu með því að senda tölvupóst á siggakling@gmail.com
Tengdar fréttir

Febrúarspá Siggu Kling – Fiskur: Ert á tímabili uppgjörs
Elsku fiskurinn minn, þetta er náttúrulega alveg á hreinu að þú átt þennan mánuð, og þetta verður þitt partý og þú svo sannarlega veislustjórinn.

Febrúarspá Siggu Kling – Ljónið: Hættu að tala um það sem lætur þér líða illa
Elsku ljónið mitt, það er ekki hægt að segja að þú sért karakterlaus, það er alltaf eitthvað að gerast í kringum þig.

Febrúarspá Siggu Kling – Vogin: Reiðin tekur kraftinn frá þér
Elsku vogin mín, þú veltir svo mikið fyrir þér tilgangi lífsins og ert svo mikill hugsuður, þú færð að sjálfsögðu ekki eitthvað eitt svar við því "hver tilgangur lífsins er“ en það mikilvægasta sem þú getur gert til að láta þér líða vel er akkúrat að hætta að spá í hver er tilgangur lífsins.

Febrúarspá Siggu Kling – Krabbi: Ekki búa til eitthvað leikrit
Elsku magnaði krabbinn minn, þú ert svo spennandi karakter, oft svo ægilega leyndardómsfullur en yfirleitt svo kraftmikill og geislandi. Þú hefur oft mikið vald yfir öðrum, vegna þess hversu kraftmikill þú ert.

Febrúarspá Siggu Kling – Tvíburi: Passa þú þig á því að láta alls ekki ljúga að þér
Elsku tvíburi minn, þú ert svo mikill innblástur fyrir okkur hin og við erum þér svo þakklát að þú sért yfirleitt til.

Febrúarspá Siggu Kling – Steingeit: Kauphækkun er svo sannarlega inni í tíðninni þinni
Elsku steingeitin mín, mikið afskaplega finnst mér mikið varið í þig. "Þú hefur svo margt til að bera þó að þú viljir það ekki endilega með öðrum "share-a“. Sú manneskja getur verið örugg sem á vin í steingeitardeildinni.

Febrúarspá Siggu Kling – Hrúturinn: Stress verður innan fjölskyldunnar
Elsku hjartans hrúturinn minn, þú hefur þau sterku einkenni að gefast aldrei upp. Það er akkúrat það sem segir að þú sért sigurvegari.

Febrúarspá Siggu Kling – Nautið: Auðvitað getur þú fengið kvíðakast
Elsku hjartans Nautið mitt, þolinmæðin er kannski ekki þitt sterkasta afl, þú átt það til núna og á næstunni að finnast hlutirnir ekki gerast á þeim hraða sem og þú vilt.

Febrúarspá Siggu Kling – Bogmaðurinn: Svolítill titringur í ástarsambandi
Elsku bogmaður, þú ert að fara inn í tímabil, þar sem þú ert að vígbúast, klæða þig í bardagafötin og ná þér í flotta bogann þinn.

Febrúarspá Siggu Kling – Sporðdreki: Hefur svo góða hæfileika til að dáleiða aðra
Elsku hjartans sporðdrekinn minn, þín orka er eins og stærsta rakettubomba sem seld hefur verið.

Febrúarspá Siggu Kling – Meyjan: Pældu ekki í annarra manna slóðagangi
Elsku meyjan mín, ég hef lært það í gegnum tíðina að meta meyjur meira en önnur merki. Ég var t.d í London í vikunni með skemmtilegum hópi og allt var dálítið út og suður hjá okkur.

Febrúarspá Siggu Kling – Vatnsberi: Ekki vera sár þó að einhver neiti þér
Elsku vatnsberi, það ert þú sem ert búinn að ríkja hérna síðasta mánuð því að núna eru afmælin búin hjá öllum vatnsberum.