Engin niðurstaða af sáttafundi flugvirkja: Telja sig eiga inni launaleiðréttingu Birgir Olgeirsson skrifar 9. desember 2017 18:49 Boðað hefur verið til annars fundar hjá Ríkissáttasemjara klukkan eitt á mánudag. Vísir/Vilhelm
Ellefta sáttafundi í kjaradeilu flugvirkja hjá flugfélaginu Icelandair lauk án niðurstöðu klukkan fimm í dag. Boðað hefur verið til annars fundar hjá Ríkissáttasemjara klukkan eitt á mánudag. Félagar í Flugvirkjafélagi Íslands sem starfa hjá Icelandair hafa boðað til ótímabundins verkfalls frá klukkan 06:00 17. desember næstkomandi takist ekki að semja fyrir þann tíma. Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélags Íslands, segir í samtali við Vísi að á fundinum í dag hafi verið rætt um þau atriði sem áður hefur verið rætt á fundi með sáttasemjara og ekkert nýtt komið fram. Engin niðurstaða hafi því verið af fundinum önnur en að boða til annars fundar á mánudag. Fundurinn í dag var sá fyrsti eftir að boðað var til verkfalls aðgerða en áður hafði verið fundað tíu sinnum með ríkissáttasemjara. Óskar segir við Vísi að deilan snúist um launaleiðréttingu sem flugvirkjar telja sig eiga inni. Hann vildi ekki gefa upp hve háar kröfurnar eru. Verði af verkfallinu mun það hafa í för með sér mikla röskun á flugi, samkvæmt tilkynningu sem Icelandair sendi til Kauphallarinnar í gær. Deilu flugvirkja og Icelandair var vísað til sáttasemjara 8. september en á borði sáttasemjara er einnig deila Félags íslenskra atvinnuflugmanna og Icelandair og deila flugvirkja og Air Atlanta Icelandic.
Verkfall flugvirkja Icelandair Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Skafið og saltað Veður „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Erlent Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Innlent Fleiri fréttir Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Tvö á einu rafmagnshlaupahjóli og flutt á bráðamóttöku „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Sigurvin kallaður út vegna Hildar Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkataki Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram Skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna plássleysis Stefna á að hefja leit í nóvember Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Komi ekki til greina að hætta við talnakvarðann Kallað eftir rannsóknum vegna geðrofslyfs og áskorun til ráðherra Sjá meira