„Við erum 93 sem keppum um titilinn Miss Universe. Það er heilmikil samkeppni en góður andi í hópnum,“ sagði Arna Ýr um keppnina í samtali við Lífið.
Arna Ýr vakti mikla athygli í fyrra þegar hún hætti keppni í Miss Grand International eftir að eigandi keppninnar setti út á holdarfar hennar. Lýsti hún því yfir í lok október í fyrra að hún myndi ekki taka þátt í slíkri keppni aftur. Þykir henni þessi keppni greinilega betri.
„Ég ætlaði bara að hætta að láta mig hafa eitthvað sem ég væri ekki að fíla. Þessi keppni var númer eitt, tvö og þrjú æðisleg og þess vegna er ég í þessu.“ Í kynningarmyndbandi fyrir keppnina segir Arna Ýr að jákvæð líkamsímynd sé henni mikilvæg.
Framkvæmdarstjórar Miss Universe Iceland eru Jorge Esteban og Manuela Ósk Harðardóttir og þau eru stödd með Örnu Ýr í Las Vegas. „Hún er svo 1000% tilbúin í þetta,“ sagði Manuela á dögunum um undirbúning Örnu.
Stúlkan sem hlýtur titilinn Miss Universe mun fá afnot af lúxusíbúð í New York í heilt ár og jafnframt fá laun þann tíma. Aðstandendur Miss Universe eru með heilmikla góðgerðarstarfsemi og verður eitt meginhlutverk stúlkunnar sem vinnur að vera sendiherra keppninnnar og sinna ýmsum góðgerðarstörfum víðsvegar um heiminn.
Arna Ýr vakti mikla athygli í vikunni fyrir „þjóðbúning“ sinn sem hún sýndi á sérstökum viðburði í Las Vegas um síðustu helgi.
„Í anda sterkra víkingakvenna er Ísland í þjóðbúningi sem búinn er til úr svörtum fjöðfum, gerviroði og með batteríknúna exi sem lýsist upp. Þessi víkingur er sláandi,“ sagði kynnirinn þegar Arna Ýr gekk á sviðið.
Manuela Ósk hefur hvatt Íslendinga til þess að kjósa Örnu Ýr í netkosningu sem ræður því hver verður 16 stúlkan sem kemst í úrslitin. Gætu atkvæðin í vinsældarkosningunni því hjálpað Örnu Ýr í keppninni. Hægt er að kjósa HÉR á vefsíðu keppninnar.
Hér fyrir neðan má sjá myndir af Örnu Ýr sem hún hefur birt á Instagram síðu sinni og sem birst hafa á opinberri Instagram síðu hennar, Miss Universe Iceland.