Sjötíu ár í dag frá björgunarafrekinu við Látrabjarg Kristján Már Unnarsson skrifar 13. desember 2017 20:15 Björgun skipbrotsmanna togarans Sargon, sem strandaði undir Hafnarmúla við Örlygshöfn 1. desember 1948, var notuð í heimildarmyndinni um björgunarafrekið við Látrabjarg ári áður. Mynd/Óskar Gíslason.
Það er af mörgum talið frækilegasta björgunarafrek Íslandssögunnar, þegar tólf sjómönnum var bjargað úr breskum togara sem strandað hafði undir Látrabjargi. Það var nákvæmlega í dag fyrir sjötíu árum sem björgunarmönnum tókst að ná mönnunum í land en fyrir afrekið sæmdi Georg sjötti Bretakonungur þá æðsta heiðursmerki Breta. Atburðurinn var rifjaður upp í fréttum Stöðvar 2. Heimildarmynd Óskars Gíslasonar varðveitir söguna um björgunarafrekið. Það er þó ekki strand togarans Dhoon þann 12. desember árið 1947 sem sést á myndunum heldur vildi svo til að annar breskur togari, Sargon, strandaði við Örlygshöfn í Patreksfirði ári síðar þegar Óskar var að taka upp myndina. Í báðum tilvikum var línu skotið út í togarann og skipbrotsmenn svo dregnir í land í björgunarstól en aðstæður voru hrikalegar í fjörunni undir Látrabjargi. Þrír skipverjar fórust en tólf tókst að bjarga um þrjátíu klukkustundum eftir strandið. Björgunarmenn komu úr sveitunum í kring; frá Hvallátrum, Hænuvík, Breiðavík, Kollsvík og Keflavík. Mesta afrekið var ekki síst að komast á strandstaðinn undir bjarginu og síðan að ná skipbrotsmönnum upp níutíu metra háa þverhnípta hamrana og upp á sjálft bjargið. Loks þurfti að koma köldum sjómönnunum til byggða í hlý hús.Þessi skýringarmynd Gísla Más Gíslasonar prófessors af Látrabjargi lýsir aðstæðum á strandstað.Mynd/Gísli Már Gíslason.Fyrir björgunina voru 24 Íslendingar, þar á meðal þrjár konur, sæmdir margskyns heiðursmerkjum, þar af sæmdi Bretakonungur fimm Íslendinga æðsta heiðursmerki Breta fyrir björgun úr sjávarháska, þá Andrés Karlsson, Bjarna Sigurbjörnsson, Daníel Eggertsson, Hafliða Halldórsson og Þórð Jónsson. Hér má sjá frétt Stöðvar 2 með mögnuðum myndum Óskars Gíslasonar, sem Kvikmyndasafn Íslands varðveitir:
Mest lesið Brynja Dan slítur öll tengsl við flokkinn Innlent „Undarlegt að það hafi ekki orðið mannslát þarna“ Innlent Skósveinn Trumps í allt of stórum skóm Erlent „Þetta er ekkert grín“ Innlent Pítsan sem kostaði 7.740 krónur Innlent Hætta við flutninga á Skólavörðuholtið Innlent Flutningstakmarkanir kosti samfélagið milljarða árlega Innlent Allt sem íbúar og tónleikagestir þurfa að vita Innlent Senda tvö þúsund landgönguliða til Mið-Austurlanda Erlent „Nú getum við sagt það fullum hálsi“ Innlent Fleiri fréttir Kosningar hafnar um sameiningu hreppanna Hefur ekki minnstu áhyggjur af bænum sem þurfti að rýma „Nú getum við sagt það fullum hálsi“ Flutningstakmarkanir kosti samfélagið milljarða árlega Pítsan sem kostaði 7.740 krónur „Þetta er ekkert grín“ Eyþór leiðir en vill ekki stólinn Hætta við flutninga á Skólavörðuholtið „Undarlegt að það hafi ekki orðið mannslát þarna“ Reykt þorskhrogn og handgerð páskaegg í Hörpu Gestir geti spókað sig í þjóðbúningi á samstöðufundi Ótrúlegt að ekki hafi orðið mannslát og óþolandi sóun raforku Brynja Dan slítur öll tengsl við flokkinn Stórt snjóflóð við Siglufjörð og veginum lokað Ákvörðunin stærri en núverandi ríkisstjórn Einn réðst á dyravörð og um tíu voru grunaðir um akstur undir áhrifum Matthías leiðir Framsókn í Árborg „Ekki rétt með farið að einkareknu stöðvarnar séu að skara fram úr“ Svona lítur nýja skólaþorpið í Laugardal út Samfélag sem hugsi svona þurfi líka endurhæfingu Kjartan Kjartansson hlaut blaðamannaverðlaun ársins Útför áhrifamanns, átök um úttekt Viðskiptaráðs og upphitun fyrir Laufeyju Lín Stofna framboð fyrir þá sem leggjast gegn sameiningu Bein útsending: Blaðamennska ársins verðlaunuð Fannst hvergi og var dæmdur í fangelsi Holtavörðuheiði var lokað vegna slyss Listar Vöku kynntir með pompi og prakt Skíðagöngumennirnir komnir í skjól Brotist inn hjá Alberti Kvöddu Davíð hinsta sinni Sjá meira