Talið að tvíburar Beyoncé og Jay-Z heiti Rumi og Sir Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 1. júlí 2017 19:14 Jay Z og Beyoncé á Grammy verðlaunahátíðinni í febrúar síðastliðnum. Vísir/Getty
Stjörnuparið Beyoncé og Jay-Z eignuðust tvíbura um miðjan júnímánuð og nú er talið að parið hafi opinberað nöfn barnanna. Fyrir eiga hjónin dótturina Blue Ivy Carter og hafa margir verið forvitnir að vita hvaða nafn tvíburarnir, sem eru drengur og stúlka, muni fá. Fyrirtæki þeirra hjóna, sem á réttinn á nöfnum þeirra sótti í vikunni um réttinn á nöfnunum Rumi Carter og Sir Carter, samkvæmt bandaríska tímaritinu People. Sama fyrirtæki sótti um réttinn á nafninu Blue Ivy fyrr á þessu ári. Í umsókninni var sótt um rétt á framleiðslu á ýmsum vörum, til dæmis ilmum, snyrtivörum, lyklakippum, ungbarnavarningi, vatnsflöskum, kaffikönnum, spilum, strigapokum, boltum ásamt fleiru. Nafnið Rumi virðist vera vísun í persneska skáldið Jalauddin Rumi sem var uppi á þrettándu öld. Orðinu sir, sem þýðir á ensku herra, bregður fyrir í einu af ljóðum Rumi. Samkvæmt vefsíðunni Behind The Name er Sir katalónska birtingarmynd orðsins Syrus eða Cyrus sem þýðir krúna.
Mest lesið Býr beint fyrir neðan barnsmóður sína Lífið Fjölgar í fjölskyldu Maríu Birtu og Ella Lífið Eru smáhrifavaldar að taka yfir markaðinn? Lífið Laufey syngur á íslensku á nýrri plötu: „Hver annar af kynslóð Laufeyjar er að gera tónlist eins og þessa?“ Tónlist Klæddist brúðarkjólnum daglega í stúdentsprófunum Tíska og hönnun Sex bestu veitingastaðirnir í Skandinavíu Lífið Saga og Steindi í nýrri gamanþáttaröð Bíó og sjónvarp Kaupa glæsihús frænku Patriks Lífið Ástarleikir á fjölbreyttum stöðum Lífið Berbrjósta og bleikhærðar með byltingu Lífið Fleiri fréttir Eru smáhrifavaldar að taka yfir markaðinn? Sex bestu veitingastaðirnir í Skandinavíu Býr beint fyrir neðan barnsmóður sína Fjölgar í fjölskyldu Maríu Birtu og Ella Ástarleikir á fjölbreyttum stöðum Fullkominn kókos og chiagrautur að hætti Elísabetar Mettu Sóley og Kormákur skáluðu í síðsumarsólinni Segir lýtaaðgerðir hennar leið til að eldast með reisn Kaupa glæsihús frænku Patriks Opnar sig eftir handtökuna Töluðu íslensku við mannhafið Hin 93 ára Jóhanna skríður enn um garðinn til að halda honum fínum Fárveik í París Fullkominn brúðkaupsdagur í sænskum kastala Skiptir stærðin raunverulega máli? Berbrjósta og bleikhærðar með byltingu Taylor Swift trúlofuð Taumlaus gleði og stjörnum prýddir tónleikar Stórstjörnur í mögulegum ástarþríhyrningi Leikur Elsu Lund í fatla eftir vondan skell Segir Gleðigönguna ekki vera fyrir sig en styður baráttuna Einbýlishús með möguleika á makaskiptum Sagan þegar Villi Vill ákvað að lagið Söknuður yrði í eigin jarðarför Frumsýning á Vísi: Stikla fyrir aðra seríu af Bannað að hlæja Dansinn dunaði á Menningarnótt Will Smith sakaður um að falsa áhorfendur með gervigreind Lil Nas X laus gegn tryggingu „Blessaður, þú ert með heilaæxli“ Woody Allen segist enginn aðdáandi Pútíns Ein glæsilegasta leikkona landsins selur slotið Sjá meira
Laufey syngur á íslensku á nýrri plötu: „Hver annar af kynslóð Laufeyjar er að gera tónlist eins og þessa?“ Tónlist
Laufey syngur á íslensku á nýrri plötu: „Hver annar af kynslóð Laufeyjar er að gera tónlist eins og þessa?“ Tónlist