Nóttin hjá lögreglu á landinu: Tveir gistu fangageymslur á Akureyri Atli Ísleifsson skrifar 31. júlí 2016 10:00 Samkvæmt lögreglu á Akureyri er þetta með rólegustu verslunarmannahelgum síðustu ára. Vísir/Pjetur
Nokkuð var að gera hjá lögreglunni á Flúðum í nótt vegna ölvunar hátíðargesta en fjölmenni er nú á staðnum. Engin alvarleg mál hafa þó verið tilkynnt þar. Tveir gistu fangageymslur á Akureyri í nótt. Brot annars mannsins var minni háttar en hinn fannst sofandi í bænum og vegna ástands var ákveðið að láta hann sofa úr sér í fangaklefa. Umferð þar nyrðra hefur gengið vel en samkvæmt lögreglu er þetta með rólegustu verslunarmannahelgum síðustu ára. Sömu sögu er að segja frá Ísafirði þar sem allt fór rólega fram. Lögregla segir að fáir séu í bænum miðað við að nú sé verslunarmannahelgi.Spennt upp hurðÍ Kópavogi var tilkynnt um mann mann vera að fara í geymslu á mannlausu húsi og bera þar út muni. Maðurinn sagði lögreglu að hann hafi keypt hlutina samkvæmt auglýsingu og átti að sækja hlutina og borga seljanda síðar. Maðurinn hafði spennt upp hurð til að nálgast munina, en munirnir voru teknir af manninum og afhendir eiganda og verður maðurinn kærður fyrir innbrot og þjófnað. Einn var handtekinn í austurhluta Reykjavíkur grunaður um þjófnað, akstur bifreiðar undir áhrifum fíkniefna og að aka sviptur ökuréttindum. Þá var maður handtekinn í austurbæ Reykjavíkur grunaður um þjófnað, akstur bifreiðar undir áhrifum fíkniefna, aka sviptur ökuréttindum og akstur mót rauðu ljósi. Tilkynnt hafði verið um manninn við mannlaust hús á Seltjarnarnesi. Átta aðrir ökumenn voru einnig stöðvaðir á höfuðborgarsvæðinu í nótt grunaðir um ölvun eða undir áhrifum fíkniefna við akstur.
Tengdar fréttir Erill hjá lögreglunni í Eyjum: Nokkur líkamsárásarmál inn á borð lögreglu Nítján fíkniefnamál hafa komið upp á Þjóðhátíð í ár. 31. júlí 2016 09:44 Mest lesið Hringvegurinn lokaður og viðvaranir í gildi Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Innlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Innlent Fleiri fréttir „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Hringvegurinn lokaður og viðvaranir í gildi Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Sjá meira
Erill hjá lögreglunni í Eyjum: Nokkur líkamsárásarmál inn á borð lögreglu Nítján fíkniefnamál hafa komið upp á Þjóðhátíð í ár. 31. júlí 2016 09:44