Mikill viðbúnaður vegna bílslyss í Hvalfjarðargöngunum Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 5. júní 2016 14:16 Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út vegna slyssins og sést hér fljúga frá vettvangi. Vísir/eyþór
Uppfært klukkan 15:35: Fimm manns voru í bílunum tveimur samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni og voru þeir allir fluttir á slysadeild. Ekki liggja fyrir upplýsingar um líðan þeirra að svo stöddu. Uppfært klukkan 15:25: Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni skullu fólksbíll og jeppi saman í göngunum en bílarnir voru að koma úr gagnstæðri átt. Uppfært klukkan 15:02: Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu voru fjórir fluttir slasaðir á Landspítalann. Tveir bílar munu hafa skollið saman í göngunum. Allir viðbragðsaðilar eru farnir af vettvangi og hefur slökkviliðið á Akranesi tekið vettvanginn yfir. Göngin verða áfram lokuð og er vegfarendum beint um hjáleið um Hvalfjörð. Uppfært klukkan 14:37: Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu er byrjað að flytja slasaða á Landspítalann. Þó nokkuð margir eru slasaðir samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu en varðstjóri gat ekki gefið nákvæmari upplýsingar um hversu margir væru slasaðir eða hve alvarlega né hversu margir bílar hefðu verið í árekstrinum. Þá er þyrla Landhelgisgæslunnar farin af vettvangi og flutti hún að minnsta kosti einn á slysadeild. Hvalfjarðargöngunum var lokað vegna slyssins og verða þau lokuð í nokkurn tíma samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni.vísir/eyþórUppfært klukkan 14.23: Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um alvarlegt bílslys í Hvafjarðargöngunum klukkan 13:55. Búið er að loka göngunum í báðar áttir og er búist við því að vegurinn verði lokaður í nokkurn tíma. Hægt er að komast hjáleið um Hvalfjörð. Fjöldi sjúkrabíla er nú á leið í Hvalfjarðargöngin en þar varð alvarlegt bílslys fyrir stundu. Þegar fréttastofa hafði samband við slökkviliðið vegna útkallsins gat varðstjóri ekki gefið nánari upplýsingar um slysið að svo stöddu. Búið er að loka göngunum vegna slyssins. Greinilegt er að mikill viðbúnaður er vegna slyssins en í það minnsta fimm sjúkrabílar auk slökkviliðs og lögreglu eru á leið á staðinn. Þá var þyrla Landhelgisgæslunnar einnig kölluð út samkvæmt upplýsingum frá stjórnstöð Landhelgisgæslunnar.
Mest lesið „Ef þessum skipum verður ógnað þá verður brugðist við því“ Innlent Segir ríkisvaldið hafa fallið á lyfjaprófi Innlent „Farðu nú að hætta þessu þvaðri viðrinið þitt“ Innlent Hafi komið líki stúlkunnar fyrir í ferðatösku Erlent Úlfar vill verða lögreglustjóri á ný Innlent Bræður hvor sínum megin við hagræðinguna í borginni Innlent Þór kominn að Bandero og fylgir honum eftir Innlent Öll híbýli fullbókuð og hesthúsin verða stappfull Innlent Þorgerður varar ESB við nýjum aðildarskilmálum Innlent Selja mannvirki bæjarins á flugvellinum á tólf milljónir Innlent Fleiri fréttir Þorgerður varar ESB við nýjum aðildarskilmálum Rigningu spáð í Reykjavík alla vikuna og fólk á leið austur „Ræddum að þetta gæti verið kveðjugjöf“ Erfiðar aðstæður þegar göngumaður slasaðist á leið í Hrafntinnusker Reglugerðin rétt ókomin: „Auðvitað er þetta áfellisdómur yfir réttarframkvæmd á Íslandi“ Þór með Bandero í gæslu á hvalamiðum „Held að foreldrar hafi bara tekið þetta til sín“ „Farðu nú að hætta þessu þvaðri viðrinið þitt“ Fresta framkvæmdum á brúnni vegna vætutíðar Úlfar vill verða lögreglustjóri á ný „Ef þessum skipum verður ógnað þá verður brugðist við því“ Þór kominn að Bandero og fylgir honum eftir Segir ríkisvaldið hafa fallið á lyfjaprófi Væta með köflum í flestum landshlutum Handtekinn ölvaður á rafhlaupahjóli Bræður hvor sínum megin við hagræðinguna í borginni Fræsa og malbika Reykjanesbraut í kvöld Öll híbýli fullbókuð og hesthúsin verða stappfull Selja mannvirki bæjarins á flugvellinum á tólf milljónir Sérsveitarmenn um borð í Þór „Það koma bara færri“ Einn fluttur á spítala eftir líkamsárás Bandero byrjað að senda Landhelgisgæslunni staðsetningu sína „Við sváfum ekkert, dauðhræddir á refresh-takkanum alla helgina“ „Þau tala stundum um að við ælum í gegnum puttana“ „Ætlum rétt að vona að þessi tímalína standist“ Hafa ekki gefið Landhelgisgæslunni upp staðsetningu Bandero Boðar frekari niðurskurð síðar í sumar Gefa ekki upp staðsetningu sína og Hildur boðar frekari niðurskurð Hlaut stunguáverka og var fluttur á sjúkrahús Sjá meira