Var ákveðin í að ná þessum áfanga Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 11. júní 2016 15:30 Ingibjörg Ylfa með Kötu, sem er tveggja og hálfs árs þýskur fjárhundur og fíkniefnaleitarhundur embættis tollstjóra.
Aðalhundaþjálfari tollstjóraembættisins, Ingibjörg Ylfa Ólafsdóttir, hefur öðlast fullgild réttindi til að kenna leitarhundaþjálfun á vegum Frontex, Landamærastofnunar Evrópu og er komin þar á útkallslista. Samtals eru tuttugu og tveir á þeim lista og Ingibjörg Ylfa eini Íslendingurinn. Réttindin hlaut hún eftir að hafa lokið fimmþættu prófi sem haldið var á vegum tollstjóra, með heildareinkunninni „Outstanding“, eða framúrskarandi. Áður hafði hún lokið leiðbeinandanámi hjá Frontex. „Síðan ég hóf námið á vegum Frontex árið 2014 hefur ekkert annað komið til greina en að klára þennan áfanga,“ segir Ingibjörg Ylfa sem hefur líka réttindi til að dæma úttektir á leitarhundum í öðrum löndum og vonar að til þess komi einhvern tíma. „Það væri auðvitað mjög mikilvægt og ánægjulegt að geta komið á slíkri samvinnu milli landa,“ segir hún. Ingibjörg Ylfa hefur starfað við þjálfun leitarhunda hjá tollstjóra síðan 2009 og er í því af lífi og sál. „Í fyrra var haldið grunnnámskeið fyrir leitarhunda á vegum embættisins þar sem ég var skipuleggjandi og einn af þeim leiðbeinendum sem komu að kennslu á námskeiðinu. Það námskeið var liður í innleiðingu Frontex-staðalsins hér,“ segir hún stolt. Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 11. júní 2016.
Mest lesið Aðeins þrír dagar liðnir og Bergur biður um hjálp Lífið „Best að vera allsber úti í náttúrunni“ Tíska og hönnun Emúinn í dyragættinni reyndist eiga heima á Drunk Rabbit Lífið Katrín og Þorgerður gáfu syninum nafn Lífið Einn frægasti köttur landsins sló í gegn á dögunum Lífið Próteinbollur að hætti Gumma kíró Lífið Áslaug Arna kom sér fyrir á innan við viku Lífið „Pabbi minn vakir yfir mér“ Lífið Barbie dúkka með sykursýki týpu eitt Lífið Vissu fyrir löngu að þau vildu verja ævinni saman Lífið Fleiri fréttir Einn frægasti köttur landsins sló í gegn á dögunum Aðeins þrír dagar liðnir og Bergur biður um hjálp Emúinn í dyragættinni reyndist eiga heima á Drunk Rabbit Barbie dúkka með sykursýki týpu eitt Próteinbollur að hætti Gumma kíró Katrín og Þorgerður gáfu syninum nafn Hanna Katrín heiðursgrillari á Kótelettunni „Pabbi minn vakir yfir mér“ Heitustu skvísur landsins fögnuðu íslenskri húðvöru Áslaug Arna kom sér fyrir á innan við viku Skákborðsréttir nýjasta matartískan Tímalausar og fallegar brúðargjafir Þórdís Elva fann ástina í örmum poppstjörnu Eins og ef Laddi hefði hvatt krakka til að reykja krakk eða sígarettur Perry og Bloom saman á snekkju Bezos Vissu fyrir löngu að þau vildu verja ævinni saman Aðalsteinn og Elísabet selja íbúðina Sumarsalat sem lætur bragðlaukana dansa Bjössi og Dísa í carnival stemningu í miðbænum Samdi CIA lag Scorpions, Wind of Change, til að fella Sovétríkin? Stjörnulífið: „Grín sem gekk allt of langt“ „Síðustu tíu árin hafa verið erfið“ „Það segir eitthvað að þetta sé fjórtánda sumarið“ Varð mjög hræddur en fann huggun í húmornum Krakkatían: Tölur, mýs og tónlist Julian McMahon látinn Var orðið að spurningu um líf og dauða Fréttatía vikunnar: Andlát, fyllerí og fiskur Aron Kristinn orðinn pabbi Vonbrigði að aðeins tvær konur komi fram á Kótelettunni Sjá meira