Flytja þarf fárveikt fólk Svavar Hávarðsson skrifar 4. nóvember 2016 07:00 Þær aðstæður koma upp reglulega að flytja þarf fólk í flutningabílum á milli spítalanna í Fossvogi og á Hringbraut því nauðsynleg tæki eru svo fyrirferðarmikil að þau komast ekki í sjúkrabíl. Mynd/LSH
Reynsla síðustu ára sýnir að flytja þarf sjúklinga í um níu þúsund skipti á milli starfsstöðva Landspítalans í Fossvogi og á Hringbraut á hverju ári. Slíkir flutningar geta reynst þeim veikustu stórhættulegir og beinbrotnum börnum mjög erfiðir. Ólafur Baldursson, framkvæmdastjóri lækninga á LSH, staðfestir að daglega þarf að flytja 25 sjúklinga að meðaltali – og koma upp aðstæður þar sem notast þarf við flutningabíla í stað sjúkrabíla þar sem fyrirferðarmikill búnaður þarf að fylgja hinum veika. Varla þarf að fjölyrða um óhagræðið og kostnaðinn sem af þessu hlýst, segir Ólafur en hver ferð bætir heilum degi við dvöl hvers sjúklings á spítalanum með tilheyrandi kostnaði og óhagræði fyrir einstaklinginn.Ólafur BaldurssonVÍSIR/ERNIRÓlafur segir að þessir flutningar geti verið lífshættulegir og nefnir dæmi af hjartasjúklingi sem þarf að fara í hjarta- og lungnavél. „Þetta eru sjúklingar sem eru lífshættulega veikir og eiga sér þá einu von að komast í þessa vél sem er einungis staðsett á Hringbraut. Ef allt væri eðlilegt myndi okkur aldrei detta það í hug að flytja þennan sjúkling – aldrei nokkurn tímann,“ segir Ólafur. „Það er annað dæmi sem truflar okkur mjög mikið og það eru börn með ákveðna tegund af beinbrotum. Þau koma brotin í Fossvog, og um hluta þess hóps gildir að það þarf að flytja þau í ákveðnum fyrirferðarmiklum búnaði í sendibíl á milli spítalanna, með tilheyrandi verkjum og óþægindum. Það er með öllu óásættanlegt að þurfa að gera þetta, en eins og allir vita er barnaþjónustan staðsett við Hringbraut en slysaþjónustan í Fossvogi,“ segir Ólafur. Spurður hvort sjúklingur hafi beinlínis látist vegna flutnings á milli staða svarar Ólafur því til að flutningur sjúklinga milli spítala hafi klárlega átt þátt í að tefja greiningu og meðferð margra sjúklinga, en erfitt sé að fullyrða að flutningurinn einn og sér sé orsök dauðsfalls. „En því oftar sem þarf að flytja sjúkling, þeim mun meiri áhættu er hann settur í, og ef um lífshættuleg veikindi er að ræða er augljóst að viðbótarflutningur eykur lífshættuna verulega, og það að óþörfu. Þetta er óásættanlegt fyrir okkur öll. Svo vel vill til að við eigum frábært sjúkraflutningafólk sem stendur sig með mikilli prýði, en það getur ekki bjargað öllu og það er slæmt að búa við klofinn spítala sem setur það, og okkur öll, í þessa aðstöðu,“ segir Ólafur. En það þarf að flytja fleira á milli húsa Landspítalans en veikt fólk; um 25.000 ferðir þarf á milli húsa með sýni hvers konar og fjölmargar ferðir sérhæfðra starfsmanna á milli staða þar sem þeirra er þörf á hverjum tíma. Þessu til viðbótar nefnir Ólafur að þegar komið er með sjúklinga á Hringbraut bíður oft flókinn flutningur með fárveikt fólk um rangala og upp lyftur, sem eru allt of litlar fyrir tækjabúnaðinn.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Fleiri fréttir Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Sjá meira