Samtal við umdeildan leikstjóra Stefán Þór Hjartarson skrifar 29. júlí 2016 10:30 Michael Moore tekur á hinum ýmsu kvillum bandarísks samfélags í myndum sínum. Mynd/Getty
Hann kemur til Íslands með það fyrir augum meðal annars að skoða hvernig konur hafa náð langt, hvernig Vigdís Finnbogadóttir náði kjöri og er líka að skoða kvennafrídaginn og hvernig konur lögðu niður störf, sem varð heimsfrétt og er auðvitað stórmerkilegt,“ segir Ísold Uggadóttir sem verður kynnir kvöldsins en hún sá um framleiðslu á þeim hluta myndarinnar sem var tekinn upp hér á landi. Aðrir sem Moore ræðir við á Íslandi eru Halla Tómasdóttir, Jón Gnarr, Ólafur Þór Hauksson og fleiri. „Hann ætlar að sýna þessa mynd eiginlega í beinni útsendingu – hún er sýnd samtímis í öllum löndunum sem koma fram í myndinni á sama tíma. Michael er núna staddur á kvikmyndahátíðinni The Traverse City Film Festival, hann er dagskrárstjóri á þeirri hátíð og ber ábyrgð á henni. Þessar lifandi umræður að sýningu lokinni verða á sama tíma í öllum löndunum níu sem hann heimsækir í myndinni. Það útskýrir af hverju hún er sýnd klukkan fjögur á föstudegi um verslunarmannahelgina en þeir sem eru í bænum og vilja sjá Michael Moore á tjaldinu í Skype-samtali eftir myndina geta gripið tækifærið áður en þeir fara úr bænum. Myndin verður sýnd fjögur og samtalið byrjar um sex.“ Í myndinni ferðast Michael Moore til níu landa og skoðar þar góðar hugmyndir sem Bandaríkin gætu lært af. Titillinn „Where to Invade Next“ er ádeila á hernaðarstefnu Bandaríkjanna sem er Michael Moore ávallt mjög hugleikin og vísar þessi titill til þess að stjórnvöld í landinu eiga það til að ráðast inn í lönd til að tryggja sér auðlindir þeirra og Moore er hér, á gamansaman hátt, að stinga upp á að kannski ætti að „ráðast“ inn í ríkin níu til að eigna sér þessar góðu hugmyndir þeirra. Hann skoðar, fyrir utan Ísland, orlof á Ítalíu, skólamötuneyti í Frakklandi, iðnaðarstefnu Þýskalands, fangelsismálakerfi Noregs, kvenréttindastefnu Túnis og fleira. Frítt er á sýninguna. Eins og áður sagði byrjar viðburðurinn klukkan fjögur í dag, þá verður mynd Michaels Moore sýnd og klukkan sex hefst svo Skype-samræðan við leikstjórann og verða fulltrúar frá öllum ríkjunum níu með í spjallinu.
Mest lesið Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Lífið Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Lífið Nablinn hættur á leikskóla Lífið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Keppast um að minnast Stewarts Lífið Fleiri fréttir Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Sjá meira