Kennurum án kennsluréttinda fjölgar enn Atli Ísleifsson skrifar 3. ágúst 2016 10:48 Meðalaldur kennara í grunnskólum heldur áfram að hækka. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Vísir/Getty
Kennarar án kennsluréttinda voru 5,4 prósent starfsfólks við kennslu haustið 2015 samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni. Á árunum 1998 til 2008 var hlutfall starfsfólks við kennslu í grunnskólum landsins, sem var án kennsluréttinda, á bilinu 13 til 20 prósent. Eftir hrun 2008 lækkaði hlutfallið um allt land og fór lægst í 4,1 prósent haustið 2012. „Síðan 2012 hefur kennurum án kennsluréttinda fjölgað ár frá ári og voru 5,4% haustið 2015. Þá var 261 starfsmaður við kennslu án kennsluréttinda og hafði fjölgað úr 216 haustið 2014,“ segir í frétt Hagstofunnar.Lægst í Reykjavík Hlutfall kennara án kennsluréttinda var lægst á landinu í Reykjavík, þar sem 2,4 prósent kennara vou án kennsluréttinda, og á höfuðborgarsvæðinu utan Reykjavíkur, 3,9 prósent. „Á tveimur landsvæðum var hlutfall kennara án réttinda hærra en 10%, á Vestfjörðum (16,9%) og á Suðurnesjum (14,5%). Á Vesturlandi og Norðurlandi vestra lækkaði hlutfall kennara án kennsluréttinda frá fyrra ári og hlutfallið var óbreytt á Austurlandi.“ Í frétt Hagstofunnar segir jafnframt að körlum fækki meðal starfsfólks við kennslu í grunnskólum, að meðalaldur kennara í grunnskólum haldi áfram að hækka og að nemendum í grunnskólum haldi áfram að fjölga og voru 43.760 haustið 2015. Þá segir að nemendum sem skráðir voru með erlent tungumál að móðurmáli hafi fjölgað ár frá ári frá því að Hagstofan hóf að safna inn þeim upplýsingum. „Haustið 2015 höfðu 3.543 grunnskólanemendur erlent tungumál að móðurmáli, eða 8,1%, sem er 0,6 prósentustigi meira en árið áður. Algengasta erlenda móðurmál nemenda var pólska (1.282 nemendur), þá filippseysk mál (336 nemendur) og enska (240 nemendur).“
Mest lesið Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Innlent Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Sjá meira