Þrenging vegna hjólastígs á Grensásvegi boðin út að nýju Bjarki Ármannsson skrifar 3. febrúar 2016 10:40 Verkið felst í því að fækka akreinum á Grensásvegi milli Miklubrautar og Bústaðavegs og koma þar fyrir hjólastíg. Vísir/Loftmyndir.is
Samþykkt var á borgarstjórnarfundi í gærkvöldi að bjóða út þrengingu Grensásvegs að nýju. Útboðið var auglýst um helgina án þess að borgarstjórn hefði samþykkt fyrirhugaðar breytingar á veginum en það dregið til baka fyrir fundinn. Halldór Halldórsson, oddviti Sjálfstæðismanna í borginni, furðaði sig á auglýsingu útboðsins í gær. Hann kveðst ánægður með það að borgin hafi dregið það til baka og viðurkennt mistök. „Það var náttúrulega bara eðlilegt, það varð að gerast,“ segir Halldór. „Það var ekki verið að virða leikreglur lýðræðisins. Borgarstjórn er æðsti vettvangurinn og tekur þær ákvarðanir sem þarf að taka.“Halldór Halldórsson, oddviti Sjálfstæðismanna í borginni.Vísir/PjeturMinnihlutinn ósáttur með framkvæmdirnar Verkið felst í því að fækka akreinum á Grensásvegi milli Miklubrautar og Bústaðavegs og koma þar fyrir hjólastíg. Heimild til þess að bjóða verkið út var naumlega samþykkt á fundi borgarráðs þann 21. janúar. Þar sem ekki náðist samstaða um málið í borgarráði þurfti að taka það fyrir á fundi borgarstjórnar. Útboðið var auglýst um helgina en umhverfis- og skipulagsráð frestaði því í gær og baðst velvirðingar. Það er þó ljóst eftir fundinn í gær að verkið verður boðið út að nýju. „Það er alveg einbeittur vilji meirihlutans í þessu máli,“ segir Halldór. „Við vorum ekki sammála því, á síðasta borgarstjórnarfundi lögðum við til að hætta við þetta. Þau felldu þá tillögu.“ Halldór segir minnihlutann vera þeirrar skoðunar að að minnsta kosti eigi að bíða með framkvæmdirnar á Grensásvegi, sem eiga að kosta um 170 milljónir, ekki síst í ljósi hagræðingar sem þarf að eiga sér stað hjá borginni á næstunni. „Það er svo skrýtið að þegar maður skoðar slysaskráninguna, þá eru engin skráð slys á þessum hluta Grensásvegs,“ segir hann. „Hinsvegar eru gatnamót Grensásvegar og Miklubrautar hættulegustu gatnamót á Íslandi. Það á ekkert að gera við þau.“
Tengdar fréttir Borgin auglýsti útboð sem á eftir að samþykkja Leiðtogi Sjálfstæðisflokks í borginni segir að ágreiningur hafi verið um útboðið í borgarráði og að borgarstjórn þurfi að samþykkja útboðið á fundi sínum í dag. 2. febrúar 2016 14:39 Útboð borgarinnar á hjólastíg við Grensásveg dregið til baka Samþykki þarf að fást á fundi borgarstjórnar í kvöld. 2. febrúar 2016 17:43 Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Fleiri fréttir Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Sjá meira
Borgin auglýsti útboð sem á eftir að samþykkja Leiðtogi Sjálfstæðisflokks í borginni segir að ágreiningur hafi verið um útboðið í borgarráði og að borgarstjórn þurfi að samþykkja útboðið á fundi sínum í dag. 2. febrúar 2016 14:39
Útboð borgarinnar á hjólastíg við Grensásveg dregið til baka Samþykki þarf að fást á fundi borgarstjórnar í kvöld. 2. febrúar 2016 17:43