Handbolti

Draumabyrjun hjá Tvis Holstebro í EHF-bikarnum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Sigurbergur Sveinsson.
Sigurbergur Sveinsson. vísir/ernir
Íslendingaliðið Team Tvis Holstebro fór vel af stað í riðlakeppni EHF-bikarsins í kvöld.

Þá vann liðið þriggja marka sigur, 34-31, á þýska liðinu Göppingen. Staðan í hálfleik var 17-17.

Þetta var fyrsti leikur liðanna í riðlakeppninni en sextán lið komust þangað.

Sigurbergir Sveinsson skoraði þrjú mörk fyrir Holstebro og Egill Magnússon tvö.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×