Sælgætisgerðin Kólus í klípu Jakob Bjarnar skrifar 17. október 2016 10:47 Sótt er að Kólusi úr ýmsum áttum og nú gengur þessi falsaða mynd um netið.
Mynd sem virðist vera gömul auglýsing frá Kólus sælgætisgerð, sem er fimmtíu ára gamalt fyrirtæki, er nú á flakki um netið. Stíll myndarinnar er sem frá 6. áratug síðustu aldar, þegar staða kynjanna var í ólíkt fastari skorðum en nú er. Eiginmaðurinn hefur tekið eiginkonuna á kné sér og veitir henni ráðningu fyrir að hafa ekki keypt besta lakkrísinn – nefnilega Sambó. Við nánari athugun má sjá að hér hefur einhver óprúttinn húmoristi tekið gamla auglýsingu sem leit dagsins ljós um miðja síðustu öld þar sem verið er að auglýsa Chase & Sandborn kaffi. Og sett við íslenskan texta með myndvinnsluforriti. Ef maðurinn þinn kemst að því að þú kaupir ekki alltaf besta lakkrísinn ... þá áttu ekki gott í vændum. Og svo framvegis.Eftir því sem Vísir kemst næst er þetta upprunalega auglýsingin, sem Sambógrínið byggir á.Ýmsir beina nú spjótum sínum að Kólus vegna umbúða um Sambó lakkrís, en umbúðirnar fara fyrir brjóstið á þeim sem telja sig geta greint kynþáttafordóma í myndskreytingunni. Hún byggir á barnabók sem kom út um aldamótin 1900, er eftir Helen Bannermann, skoska konu sem bjó á Indlandi lengi og fjallar um indverskan dreng sem gabbar tígrisdýr en engin tígrisdýr eru í Afríku. Hins hefur menningarheimum eitthvað slegið saman hjá höfundi því sagan heitir upphaflega The Story of Little Black Sambo. Í nýrri útgáfu heitir hún The Story of Little Babaji. Gústaf Hannibal skrifaði grein í Grapevine og hvetur til þess að fólk sniðgangi Kólus, eða sendi tölvupóst til fyrirtækisins þar sem þessum umbúðum er mótmælt. Vísir fjallaði um málið um helgina og vakti málið verulega athygli. Forsvarsmenn Kólus hafa vísað því alfarið á bug að umbúðirnar lýsi kynþáttahyggju. Mannfræðingurinn Kristín Loftsdóttir prófessor gefur hins vegar engan afslátt og segir merkilegt að Kólus vilji tengja vöru sína við svona gamla kynþáttafordóma.Myndin af sælgætisumbúðunum er nú horfin af vefnum, það er hjá dreifingaraðilanum sem er Ó.Johnson & Kaaber ehf, en forsvarsmenn fyrirtækisins, sem vilja ekki láta neinn bilbug á sér finna, segja það hafa verið fyrir mistök. Hafa sprottið upp talsvert heitar umræður um málið á athugasemdakerfinu þar sem sitt sýnist hverjum: Ýmist er talað um nornaveiðar eða inngróinn rasisma.
Tengdar fréttir Umbúðir utan um Sambó kremlakkrís fara öfugt ofan í fólk Framkvæmdarstjóri Kólos skilur ekki að mál sé gert úr umbúðum Sambó og kallar það móðursýki. Mynd af vörunni hvarf af vef Ó. Johnson & Kaaber. 15. október 2016 07:00 Mest lesið Bondi vikið úr embætti dómsmálaráðherra Erlent Ljósmyndarinn lifir ekki á „tagginu“ einu saman Innlent Kjartan Guðmundsson er látinn Innlent Framsókn næði ekki inn á þing Innlent Íslendingur tók þátt í að gera tunglskotið að veruleika Innlent Innanlandsflugi aflýst vegna veðurs Innlent Gerði grín að Macron og eiginkonu hans með frönskum hreim Erlent Þáttaskil í sögu Lýðskólans á Flateyri Innlent Oddvita sparkað af listanum og segir af sér formennsku Innlent New York Times fjallar um íslenskar pylsur: Ekkert jafnist á við eina með öllu Innlent Fleiri fréttir Ljósmyndarinn lifir ekki á „tagginu“ einu saman Framsókn næði ekki inn á þing Þáttaskil í sögu Lýðskólans á Flateyri Innanlandsflugi aflýst vegna veðurs Hryðjuverkamálið á dagskrá Landsréttar í maí Umferðin gengur hægt en stóráfallalaust fyrir sig Íslendingur tók þátt í að gera tunglskotið að veruleika Oddvita sparkað af listanum og segir af sér formennsku Sendiherrum og skrifstofustjórum stokkað Ísland, Grænland og Færeyjar saman hefðu sterka samningsstöðu Kjartan Guðmundsson er látinn Sjálfstæðismenn og óháðir staðfesta listann í Vogum New York Times fjallar um íslenskar pylsur: Ekkert jafnist á við eina með öllu Stjórnstöð í Kópavogi sem líkist geimferðamiðstöð „Leyfið grínurunum aðeins að eiga sviðið í dag“ Vilja fá valdið aftur Hátt í sextíu prósent óánægð með störf borgarstjóra „Ég táraðist í flugvélinni“ Finna aukna fordóma: Syninum sagt að „drulla sér aftur upp í tré“ Yfirgaf Sjálfstæðisflokkinn og leiðir Miðflokkinn í Borgarbyggð Enn ein veðurviðvörunin yfirvofandi í nótt Síðasti séns til að skrá kílómetrastöðuna Páskaeggja-„hefðinni“ var komið á í Covid Gestum neyðarskýla fækkar verulega milli ára Ráðherra vissi af gabbi um kílómetragjald fyrir fram Icelandair á leið til Möltu og heimilislausum fækkar Segja Skúla Tómas hafa hneppt móður þeirra í „lyfjafjötra“ Sárt fyrir aðstandendur að enginn taki ábyrgð Veiðimenn klæði sig í föðurlandið á morgun Mesta kvikusöfnun til þessa Sjá meira
Umbúðir utan um Sambó kremlakkrís fara öfugt ofan í fólk Framkvæmdarstjóri Kólos skilur ekki að mál sé gert úr umbúðum Sambó og kallar það móðursýki. Mynd af vörunni hvarf af vef Ó. Johnson & Kaaber. 15. október 2016 07:00