Viðræður við Breta í forgang hjá EFTA Ásgeir Erlendsson skrifar 10. júlí 2016 19:15
Of snemmt er að segja til um hvers konar viðskiptasamningur verður fyrir valinu milli Íslands og Bretlands. Þetta segir utanríkisráðherra sem bendir á að Íslendingar þurfi að nýta sér formennsku í EFTA í viðræðunum og hefur óskað eftir að málið verði í forgangi. Lilja Dögg Alfreðsdóttir, utanríkisráðherra, og Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra voru fulltrúar Íslands á leiðtogafundi Atlandshafsbanalagsins sem fram fór í Varsjá um helgina. Lilja Dögg átti fund með Philip Hammond, utanríkisráðherra Breta, þar sem sameiginlegir viðskiptahagsmunir þjóðanna voru ræddir. Lilja segir að í kjölfar þjóðaratkvæðagreiðslunnar þar sem Bretar samþykktu að ganga úr Evrópusambandinu séu þeir nú að fara gaumgæfulega yfir sína stöðu og viða að sér upplýsingum um viðskiptasamninga annarra þjóða. „Nú eru þeir að vinna sína heimavinnu. Svo þegar það er komin ný forysta og ný ríkisstjórn þá er nokkuð ljóst að þeir fari að sýna sín spil.“ Segir Lilja Dögg. Íslendingar tóku við formennsku í EFTA og tveimur lykilstofnunum EES-samstarfsins í Brussel í síðustu viku og munu stýra þeim til áramóta. Lilja segir mikilvægt að Ísland haldi góðum tengslum við Breta og nýti sér formennsku í EFTA til að efla efnahags og viðskiptatengsl við Bretland. „Það er okkur alveg gríðarlegt hagsmunamál. Þetta er okkar stærsta viðskiptaríki. Þetta skiptir okkur mjög miklu máli. Við erum núna formennskuríki hjá EFTA og við þurfum að nýta okkur það mjög vel og ég hef þegar sett það á að þetta verði forgangsmál hjá EFTA.“ Íslendingar þurfi að fylgjast mjög vel með hvernig Bretar ætla að haga sínum málum við Evrópusambandið og nokkrir kostir séu í stöðunni. Of snemmt sé að segja til um hvaða leið verði valin. „Það er möguleiki að gera tvíhliða samning við Bretland. EFTA ríkin geta líka gert samning við Bretland og svo hugsanlega að EES ríkin myndu koma inn í útgöngusamning. Það er mjög erfitt á þessum tímapunkti að segja til um hvaða leið verði valin.“
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum Sjá meira