Heilsugæslan gæti tekið fleiri Svavar Hávarðsson skrifar 3. nóvember 2016 07:00 Margir leita á bráðamóttöku LSH sem gætu auðveldlega fengið úrlausn sinna mála hjá heilsugæslu eða Læknavaktinni. vísir/stefán „
Heilsugæslan getur auðveldlega tekið á móti þessum hópi. En það þarf að tryggja að fólk viti hvert það á að leita,“ segir Óskar Reykdalsson, framkvæmdastjóri lækninga við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Eins og Fréttablaðið sagði frá í gær hefðu 13.000 af þeim um 85.000 einstaklingum sem leituðu til bráðamóttöku Landspítala í Fossvogi á síðasta ári í raun átt að leita til heilsugæslunnar til að leita úrlausnar vegna heilsuvanda síns. Bráðamóttakan er hugsuð fyrir þá sem þurfa að leita sér aðstoðar vegna bráðra veikinda eða slysa og geta ekki beðið úrlausnar heilsugæslu eða á Læknavakt. Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri flæðisviðs LSH, telur að undirliggjandi ástæða þessa sé sú að það vanti skýran vegvísi um kerfið – hvert beri að leita í það og það skiptið. Þessu er Óskar sammála. „Öflugur vegvísir að hætti norrænna þjóða mun skila sér í að fólk leiti á rétta staði innan kerfisins. Nú þegar er símanúmerið 1700 mjög góður vegvísir en það þyrfti að gera góða opinbera heimasíðu með ráðleggingum.Ólafur ReykdalssonÞannig vinna aðrar norrænar þjóðir til að tryggja betri þjónustu,“ segir Óskar og bætir við að ef um bráðaveikindi er að ræða sé hjúkrunarfræðingur á öllum heilsugæslustöðvum á vöktum allan opnunartímann, og á bak við hann er læknir sem sinnir sjúklingum ef þörf er á. Allar heilsugæslustöðvarnar eru mannaðar með þessum hætti í dag. Til viðbótar koma síðdegismóttökur heilsugæslustöðvanna þar sem allir geta komið, og eftir að þeim er lokað tekur Læknavaktin við. „Það er nóttin sem við getum ekki sinnt,“ segir Óskar. Á höfuðborgarsvæðinu eru sautján heilsugæslustöðvar, og fjölgar þeim í nítján innan tíðar. Á heilsugæsluna komu 32.183 sjúklingar á heilsugæslustöðvarnar í september og um sjö þúsund á Læknavaktina; sem er nærri 40.000 komur samtals. Ef þeir sem leita á bráðavaktina að ósekju færu til heilsugæslunnar þá myndi Læknavaktin, síðdegis-, og bráðamóttökur þurfa að taka við 25 einstaklingum á dag til viðbótar. Óskar útilokar ekki að það sé inngróið frá gamalli tíð að ómögulegt sé að bíða eftir tíma hjá heilsugæslunni. „Það þarf bara að leiðbeina fólki svo það viti hvert það á að snúa sér. Þó talan sé há sem leitar á bráðadeildina þá er það mjög lítil viðbót fyrir okkur þegar litið er til þess hvað við sinnum mörgum á dag,“ segir Óskar.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Mest lesið Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Fleiri fréttir Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Sjá meira