Umbúðir utan um Sambó kremlakkrís fara öfugt ofan í fólk Þorgeir Helgason skrifar 15. október 2016 07:00 Myndin af umbúðunum sem að hvarf af vörulista Ó. Johnson & Kaaber. Mynd/ojk.is „
Það er merkilegt að þeir vilji tengja við svona gamla kynþáttafordóma,“ segir Kristín Loftsdóttir, prófessor í mannfræði. Umræða hefur spunnist síðustu daga um sælgætisgerðina Kólus og umbúðir sem prýða kremlakkrís frá þeim. Kólus framleiðir lakkrís undir heitinu Sambó en það er einnig rasískt hugtak í ensku. Hugtakið sem á við einstakling sem á hvíta og hörundslitaða forfeður hefur verið notað með niðrandi merkingu frá því um miðja 19. öld. Kjartan Páll Kjartansson, framkvæmdarstjóri Kólus, segir ekkert rasískt vera við umbúðirnar og segir strákinn á umbúðunum vera litla svarta Sambó sem er indverskur drengur úr bókinni Sagan af litla svarta Sambó. Hann skilur ekki hvers vegna fólk er að gera mál úr þessu og segir þetta einfaldlega vera móðursýki. Bókin hefur verið harðlega gagnrýnd en hún er sögð einkennast af fordómum vegna staðlaðra hugmynda um svart fólk og þá sérstaklega teikningar bókarinnar.Kristín Loftsdóttir, prófessor í mannfræði.vísir/valli„Það er ekki íslensk uppfinning að teikna fólk sem er með dökkt litaraft á þennan hátt. Þetta eru bein áhrif frá rasistaímyndum sem voru sterkar víða í Evrópu í lok 19. og í byrjun 20. aldar. Í bókinni hans Muggs um negrastrákana tíu sjáum við sömu ímynd í teikningum bókarinnar. Mér þykir mjög merkilegt að þetta fyrirtæki vilji tengja vöru sína við kynþáttafordóma,“ segir Kristín. Árið 2007 kom svipað mál til kastanna þegar bókaútgáfan Skrudda endurútgaf bókina Negrastrákarnir. Kristín rannsakaði og greindi umræðuna um útgáfuna en niðurstaða hennar var að innfæddir Íslendingar skiptust í tvo hópa sem voru á öndverðum meiði um skilaboð bókarinnar en innflytjendum á Íslandi þótti bókin lýsa fordómum. Ó. Johnson & Kaaber eru dreifingaraðili fyrir Kólus. Á vörulista vefsíðu fyrirtækisins mátti á fimmtudag finna mynd af umbúðunum en í gær var myndin horfin. Alfreð Jóhannsson, sölustjóri hjá Ó. Johnson & Kaaber, segir tilviljun að myndin sé horfin af vefnum og að það hafi ekki verið ætlunin að fjarlægja hana.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Maðurinn skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Máttu tæma lónið Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Fleiri fréttir Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Sjá meira