Velþóknun lækna sögð forsenda einkaspítala Ingvar Haraldsson skrifar 4. ágúst 2016 07:00 Fyrirhuguð lóð fyrir einkaspítalann er á landi Sólvalla í Mosfellsbæ, nærri Hafravatni og Reykjalundi. vísir/stefán
Gunnar Ármannsson, stjórnarmaður í MCPB ehf. sem hyggst reisa einkarekið sjúkrahús í Mosfellsbæ, segir að að spænski læknirinn Pedro Brugada, sem sjúkrahúsið á að vera nefnt eftir, hafi talið það forsendu fyrir aðkomu sinni að verkefninu að ekki væri andstaða meðal hérlendra lækna við það. Þrír yfirlæknar á hjartadeild Landspítalans lýstu yfir áhyggjum af áformunum í grein í Morgunblaðinu um síðustu helgi. „Að sjálfsögðu tökum við alvarlega þær gagnrýnisraddir sem koma frá Landspítalanum,“ segir Gunnar. Brugada hafi fundað með íslenskum læknum hér á landi í vor til að kanna hvernig þeim hugnaðist að hann hæfi starfsemi á Íslandi. „Hann ætlaði ekki að taka nein frekari skref í þá áttina ef honum fyndist sér ekki vera vel tekið. Hann taldi, eftir þessa fundi, að hann hefði átt góð samtöl við lækna og æðstu embættismenn og það væru forsendur fyrir hendi til þess að koma hingað til starfa,“ segir Gunnar. Brugada hefur sagt að hann stefni á að hefja starfsemi í Klíníkinni í Ármúla í október.Gunnar Ármannsson, stjórnarmaður í MCPB.„Nú er það í hans höndum að vega það og meta hvað hann vill gera,“ segir Gunnar um Brugada. Hann hafi litið svo á að það væri fengur fyrir íslenska heilbrigðiskerfið að fá lækni með jafn mikla sérfræðiþekkingu og Brugada til landsins. „Ég get ekki betur séð en að sumir hafi farið á taugum í síðustu viku þegar fréttir fóru að berast og tjáð sig um það án þess að afla sér upplýsinga frá forsvarsmönnum verkefnisins,“ segir Gunnar. Þá segir hann að fyrir liggi skilaboð í heilbrigðisráðuneytinu um að forsvarsmenn MCPB séu tilbúnir að hitta Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra til að upplýsa hann um verkefnið hvenær sem honum henti. Gunnar efast um að það verði haldinn blaðamannafundur þegar Alþingi kemur saman líkt og Henri Middeldorp, stjórnarformaður MCPB, hélt fram í Fréttablaðinu í síðustu viku, þar sem átti að útskýra verkefnið frekar. „Okkar hugmynd var að vildum helst ekki vera að tjá okkur mikið í fjölmiðlum heldur ræða við hlutaðeigandi sem þurfa að koma að málinu beint og milliliðalaust.“ Gunnar segir að sýna þurfi fram á hverjir fjárfestar í verkefninu séu þegar sótt verði um ívilnanir til atvinnuvegaráðuneytisins. Aldrei hafi staðið til að halda því leyndu. „Við settum það sem skilyrði að það yrði sótt um þessar ívilnanir til þess að það lægi algjörlega fyrir hvaðan þessir fjármunir myndu koma.“ Gunnar segir að stefnt verði að því að leggja samsvarandi gögn fyrir Mosfellsbæ fyrir 1. desember 2017, en MCPB hefur til þess tíma til að sýna bæjaryfirvöldum fram á hvernig verkefnið verði fjármagnað og af hverjum.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent Fleiri fréttir Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Sjá meira